Vikan


Vikan - 07.09.1939, Blaðsíða 18

Vikan - 07.09.1939, Blaðsíða 18
18 VIKAN Nr. 36, 1939 ÓGÆFA. Framh. af bls. 9. varð ekki yfir sig glöð af að sjá eigin- mann sinn, að henni mislíkaði, hvernig hann borðaði, komst hún skyndilega að þeirri niðurstöðu, að hún væri farin að ala á hatri til hans. Sljór af hungri og þreytu, réðst Andrey Ilyitch á bjúgun á meðan hann beið eftir súpunni, át græðgislega og kjamsaði svo að kvað við. — Drottinn minn! hugsaði Sofia Petr- ovna. — Ég elska hann og virði, en------ hver vegna smjattar hann svo viðbjóðs- lega? Ringulreið hugsana hennar var engu minni en ringulreið tilfinninganna. Eins og allir, sem óvanir eru að berjast við óskemmtilegar hugsanir, reyndi frú Luby- antsev af fremsta megni að forðast að hugsa um erfiðleika sína, og því meira sem hún reyndi, því ljósari stóð Ilyin, sand- urinn á hnjám hans, flókaskýin og lestin fyrir hugskotssjónum hennar. — Hvers vegna var ég að álpast þangað í dag? hugsaði hún. — Er ég í raun og veru svo veiklunduð, að ég geti ekki treyst sjálfri mér? Óttinn magnar hættuna. Þegar Andrey Hyitch var að ljúka við síðasta réttinn, hafði hún ákveðið að segja manni sínum allt af létta og flýja hættuna! — Ég þarf að tala við þig um alvarlegt málefni, Andrey, sagði hún á meðan Andrey var að fara úr jakkanum og stíg- vélunum, áður en hann legði sig út af. — Hvað er það? — Við skulum fara héðan! — Hm--------Hvert eigum við að fara? Það er of snemmt að fara til borgarinnar. — Nei, í ferðalag eða eitthvað því um líkt. — í ferðalag —----át lögmaðurinn upp eftir henni og teygði sig. Mig dreymir um það sjálfan. En hvaðan eigum við að fá peninga til þess, og hvern á ég að biðja fyrir skrifstofuna ? Eftir htla umhugsun bætti hann við:'— Þér leiðist auðvitað, þú getur farið ein, ef þú vilt. Sofia Petrovna féllst á það, en svo datt henni í hug, að Ilyin mundi glaður grípa tækifærið og fara með henni í sömu lest, í sama klefa-------. Hún horfði á mann sinn. Hún var ánægð nú, en enn þá sljó. Henni varð litið á fætur hans — litla, næstum kvenlega fætur, klædda í röndótta sokka. Það hékk þráður fram úr hvorri sokktá. Á bak við gluggatjöldin dundi býfluga á rúðunni. Sofia Petrovna horfði á þræðina fram úr sokkunum, hlustaði á býfluguna og gerði sér í hugarlund, hvernig ferðin mundi byrja------. Andspænis henni mundi Ilyin sitja, dag og nótt, án þess að hafa augun af henni, reiður yfir veiklyndi sínu og fölur af sálarkvölum. Hann mundi kalla sig ósiðaðan skólastrák, áfella hana, rífa í hár sér, en þegar myrkrið dytti á, og far- þegamir væra sofnaðir, eða hefðu farið út við einhverja stöð, mundi hann nota tæki- færið til að krjúpa á kné frammi fyrir henni og þrýsta að hnjám hennar eins og hann hafði gert í skóginum-------. —Heyrðu, ég fer ekki ein. Þú verður að koma með mér, sagði hún. — Hvaða vitleysa, Sofotchka, sagði Lubyantsev og stundi. — Þú verður að vera skynsöm. Það þýðir ekki að biðja um það, sem ekki er hægt. — Þú kemur með mér, þegar þú veizt hvernig í öllu liggur, hugsaði Sofia Petr- ovna. Þegar hún hafði ákveðið að fara, hvað sem það kostaði, fann hún, að hún var úr allri hættu. Hugsanir hennar urðu smám saman skýrari; það glaðnaði yfir henni við þessar hugsanir, því að hún fann, að hversu mikið sem hún hugsaði um þetta og dreymdi, mundi hún eigi að síður fara. Á meðan maðurinn hennar svaf, færðist rökkrið yfir. Hún sat í dagstofunni og lék á píanóið. Hin aukna umferð úti, hljóðfærasláttur- inn, en umfram allt, sú hugsun, að hún væri skynsöm kona, að hún hefði sigrazt á erfiðleikum sínum, komu algerðu jafn- vægi á skap hennar. Aðrar konur, sagði róleg samvizka hennar, hefðu sennilega misst vald yfir sér, gersamlega kom- izt úr jafnvægi, en hún hafði næstum dáið af blygðun, hafði liðið sálarkvalir, og var nú að flýja hættuna, sem ef til vill var alls ekki til! Hún var svo hrifin af hreinlyndi sínu og stefnufestu, að hún skoðaði sig tvisvar eða þrisvar í speglinum. * Um kvöldið komu gestir. Karlmennirnir settust að í borðstofunni og fóru að spila. Konurnar sátu kyrrar í dagstofunni eða úti á svölunum. Síðastur kom Ilyin. Hann var þungbúinn, önuglyndur og sjúklegur útiits. Hann settist í sófahornið og hreyfði sig ekki þaðan allt kvöldið. Hann, sem var venjulega glaðlyndur og skrafhreyfinn, var nú þögull, brúnaþungur og nuddaði augabrýrnar. Þegar á hann var yrt, brosti hann með erfiðismunum og svaraði höstu- lega. Fjórum eða fimm sinnum sagði hann einhver gamanyrði, en þau voru nöpur og særandi. Sofiu Petrovnu virtist hann vera að missa stjórn á sjálfum sér. Nú fyrst, þar sem hún sat við píanóið, varð henni fylli- lega ljóst, að þessum vesalings manni var þetta bláköld alvara, að sál hans kvaldist, og að hann gat ekki fundið frið. Hennar vegna sóaði hann beztu árum æfi sinnar, atvinnu sinni og peningum, yfirgaf móður sína og systur, og það sem verst var, sleit sér út i kveljandi baráttu við sjálfan sig. Það varð að taka hann alvarlega. Þessi vissa olli henni á þessu augnabliki svo mikils sársauka, að ef hún hefði farið til hans og sagt: — Nei, mundi svo mikill máttur hafa verið í röddinni, að erfitt hefði verið að óhlýðnast. En hún fór ekki til hans og sagði ekkert — datt jafnvel ekki í hug að gera það. Dutlungar og eigin- girni æskunnar höfðu aldrei verið eins áberandi í framkomu hennar og þetta kvöld. Hún vissi, að Ilyin var óhamingju- samur og að hann sat í sófahorninu, eins og á glóðum. Hún vorkenndi honum, en jafnframt fyllti nærvera hans, — manns- ins, sem elskaði hana svona ákaft, — sál hennar sigurhrósi, og meðvitund um mátt sinn. Hún fann til æsku sinnar, fegurðar og ósigrandi dyggðar, og af því, að hún hafði ákveðið að fara, gaf hún sér lausan tauminn þetta kvöld. Hún lék á als oddi, hló og söng, ýmist fagnandi eða ástríðuþrungið. Hún gerði sér gaman úr öllu. Hún skemmti sér við endurminninguna um atburðinn á bekkn- um í skóginum, og varðmanninn, sem horft hafði á. Hún skemmti sér við gestina og hin nístandi gamanyrði Ilyins, við prjón- inn i hálsklútnum hans, sem hún hafði aldrei tekið eftir fyrr. Það var rauður höggormur með demantsaugum á prjón- inum. Henni fannst höggormurinn svo skemmtilegur, að hún hefði getað kysst- hann. Sofia Petrovna söng með titrandi röddu, með ögrandi kæruleysi, eins og hún væri ölvuð, og hún valdi sorglega, angurværa söngva, söngva um glataðar vonir, horfna fortíð og elli, eins og hún væri að hæðast að sorg einhvers annars. ,,Og ellin kemur nær og nær“, söng hún. Hvað var ellin í hennar augum? — Ég er víst ekki eins og ég á að mér að vera, hugsaði hún öðru hvoru gegnum hláturinn og sönginn. Gestirnir fóru um tólfleytið. Ilyin fór síðastur. Sofia Petrovna var enn nógu kærulaus til að fylgja honum niður í neðsta þrepið á svölunum. Hana langaði til þess að segja honum, að hún væri að fara í burtu með manninum sínum, og sjá, hvaða áhrif það hefði á hann. Tunglið var á bak við skýin, en það var nógu bjart til þessr að Sofia Petrovna gat séð, hvernig vind- urinn blakaði til frakkalöfunum hans og sóltjaldinu á svölunum. Hún gat einnig séð, hvað Ilýin var fölur, og hvernig hann fitjaði upp á efri vörina og reyndi að brosa. — Sonja, Sonitchka .... ástin mínr hvíslaði hann og varnaði henni þess að tala. — Yndið mitt! Hjartað mitt! I ofsakenndri blíðu, með grátstaf í rödd- inni hellti hann yfir hana blíðuorðum, sem sífellt urðu blíðari og blíðari, og hann þú- aði hana jafnvel, eins og hún væri kona hans eða frilla. Alveg óvænt tók hann ann- arri hendinni utan um mitti hennar og með hinni um olnbogann. — Dýrgripurinn minn! Yndið mitt! hvíslaði hann og kyssti hana aftan á háls- inn. — Vertu hreinskilin, komdu með mér undir eins! Hún losaði sig úr örmum hans og lyfti höfðinu til þess að gefa reiði sinni útrás. En reiðin vildi ekki koma, og allar hinar marglofuðu dyggðir hennar og hreinlífi var aðeins nægilegt til að hjálpa henni að stynja upp þeim venjulegu orðum, sem

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.