Vikan - 21.09.1939, Page 18
18
VIKAN
Nr. 38, 1939
BRÉFIÐ. i * .±! ± i
Jæja? Victor Lassie horfði rannsakandi
á einkanjósnarann, sem kom inn í
vinnustofu hans.
— Við og við, svaraði hann, — neyðist
maður til að taka eitthvað af þeim, sem
maður á að njósna um. Þegar konan yðar
fór út úr sporvagninum áðan, sá ég mér
fært að taka þetta bréf upp úr töskunni
hennar. Kannske yður langi til þess að
lesa það?
— Páið mér það, sagði Victor stuttara-
lega.
Einkanjósnarinn rétti honum bréfið, sem
hann þreif með áfergju. Á umslaginu stóð
aðeins: Hr. Paul Grodet. Rithönd frúarinn-
ar var á bréfinu. Victor las nafnið hvað
eftir annað á meðan njósnarinn talaði:
— Mér fannst réttast að afhenda yður
bréfið strax. En ef þér vilduð, ætti að vera
hægt að fá nánari upplýsingar um mann-
inn.
— Þér skuluð bíða með það, þar til ég
hefi kynnt mér efni bréfsins, svaraði
Victor. — Ef til vill er þetta ekkert. Ann-
ars læt ég yður vita.
Njósnarinn kvaddi og fór.
Victor Lassie langaði aðeins til þess að
vera í ró og næði. Hann hefði auðvitað
getað opnað bréfið í nærveru njósnarans,
en undir slíkum kringumstæðum er óþægi-
legt að hafa vitni.
Þegar hann var einn eftir, sneri hann
bréfinu í sífellu á milli fingranna og hik-
að við að opna það, þó að hann langaði til
þess að vita, hvað í því stæði.
Hann hafði ákveðið að opna það, þegar
útidyrahurðinni var skellt og fótatak konu
hans heyrðist í forstofunni. Hann stakk
bréfinu í flýti í jakkavasa sinn.
Andartaki síðar kom frú Lassie inn í
vinnuherbergi manns síns. Hún heilsaði
GEORG — EÐA HINRIK?
Framh. af bls. 8.
og sagði henni, að ungur maður vildi tala
við hana.
Hún hrökk við, þegar Hinrik kom inn.
Hún varð fyrir vonbrigðum. Það fyrsta,
sem hún gerði var að sækja sjálfblekung-
inn og afhenda honum hann.
— Þakka þér fyrir! hrópaði Hinrik. —
Þú léttir þungum steini af hjarta mínu. Ég
hefi leitað að honum um allt, en allt í einu
datt mér í hug, að ég hefði skilið hann
eftir hjá þér. Þetta er nefnilega sjálfblek-
ungurinn hans Georgs. Hann lánaði mér
hann í gær.
Hann leit undrandi á Elínu, vegna þess
að hann skildi ekki, hvers vegna hún hló
eins og hún gerði.
honum ástúðlega og sagði honum, hvað
hún hefði haft fyrir stafni um daginn.
Á meðan hún talaði, horfði Victor rann-
sakandi á hann, en svipur hennar bar
hvorki vott um kvíða né ótta. Og samt
fannst honum, að hún hlyti að hafa tekið
eftir því, að bréfið var horfið úr töskunni.
Hann vissi ekki, hvað hann átti að halda.
Annað hvort var hún snillingur í að leika
eða hún hafði góða samvizku.
Þegar hún var farin, tók hann bréfið
upp, las enn einu sinni utanáskriftina og
tók að snúa því á milli fingranna. Lang-
aði hann nú í alvöru til þess að fá sann-
anir fyrir ótryggð hennar? Hafði hann í
raun og veru nokkra ástæðu til þess að
gruna hana? Þorði hann að horfast í augu
við sannleikann ? Hann hafði gert sér mikið
ómak til þess að fá sannanir----------og
nú langaði hann ekki til þess að fá þær.
Hvor þjáningin var verri------vissan eða
efinn?
Þriðji möguleikinn var til: að innihald
bréfsins sannfærði hann um, að grunur
hans hefði ekki við neitt að styðjast. Auð-
vitað var það þannig.
En samt sem áður var trú hans ekki
nógu sterk til þess, að hann þyrði að hætta
á það.
Hann sá ekki nema eitt ráð: að bíða.
Ekkert lá á. Hann gat fengið sannanir,
hvenær sem hann vildi. Hann varð að bíða
til morguns. Hann ýtti umslaginu niður í
skrifborðsskúffuna og lokaði henni með
lykli.
Við miðdegisverðinn sást ekkert á frú
Lassie. Hún var góð og eðlileg. Um kvöld-
ið spjallaði hún við mann sinn um leið og
hún prjónaði, spurði hann um vinnuna,
gerði að gamni sínu og hló.
Af konu að vera, sem veit, að allt hefir
komizt upp, sýndi hún óvenjulega sálar-
ró. Kannske hafði hún alls ekkert að á-
saka sig fyrir eða hún lét hverjum degi
nægja sínar þjáningar?
Næsta dag opnaði Victor ekki bréfið og
ekki heldur næstu daga.
Annað veifið tók hann það fram úr
skúffunni og starði á það.
Síðan lét hann það renna á ný ofan í
skúffuna, og um leið var eins og þungum
steini væri létt af hjarta hans.
Hann tók að velta stöðu sinni fyrir sér
til þess að friða samvizku sína. Ef hann
opnaði bréfið og fengi sannanir, hvað þá?
Ef hann léti það vera, gæti hann lifað ró-
legu og friðsamlegu lífi eins og áður. Hann
gæti haft heimili sitt og konu, sem alltaf
var góð og blíð, eins og áður. Hún var
alltaf góð og ástúðleg og lifði fyrir mann
sinn og heimili-----og þetta ætlaði hann
að eyðileggja með htlum bréfsnepli.
Victor opnaði aldrei umslagið. Hann
skoðaði það sjaldnar og sjaldnar. Að lok-
um gleymdi hann því. Að minnsta kosti
skoðaði hann það aldrei.
Smám saman náði hann sér. Hann mundi
aðeins einstöku sinnum eftir því, að í skúff-
unni lá bréf------eitthvað leiðinlegt, sem
hann varð að brenna.
Hr. og frú Lassie voru orðin gömul. En
þau sáust alltaf saman, og hjónaband
þeirra var fyrirmyndarhjónaband.
Kvöld eitt, þegar Victor var einn í vinnu-
herberginu, mundi hann allt í einu eftir
bréfinu. Hann varð að skoða það. Það var
eins og eitthvert ósýnilegt afl ræki hann
til þess. Hann opnaði skúffuna og tók upp
bréfið, sem hafði valdið honum svo mikilla
óþæginda. Hann las utanáskriftina eins og
hann hafði gert svo oft áður. En hvað
það var annars langt síðan, að hann hafði
haldið á því í hendinni ?
Nú fengi það ekkert á hann, hvað sem í
bréfinu stæði. Reyndar hefði það aldrei
getað eyðilagt hjónaband þeirra.
Lítil hreyfing, skurður með blaðahnífn-
um-------og hann vissi, hvað í bréfinu
stæði. En hann gerði þetta ekki. Nei, hann
ætlaði að rífa það í smásnepla, og svo
væri það búið.
En hann gerði það ekki. Reyndar hafði
hann tekið utan um það með báðum hönd-
um-------, en hann gat ekki frekar en áður
ákveðið sig. Og enn einu sinni lét hann
það renna niður í skúffuna.
Næsta dag lá hann dáinn í rúminu sínu.
Sorg frú Lassie var eins mikil og sorg
þeirra, sem missa sinn bezta vin.
Að jarðarförinni lokinni tók hún að
blaða í skjölum manns síns. Það var ekkert
erfitt, þar sem allt var í röð og reglu. Á
meðal skjalanna fann hún lokaða umslagið
með sinni eigin rithönd.
Hún las heimilisfangið: Hr. Paul Grodet,
sneri umslaginu fyrir sér eins og maður
hennar hafði gert. Settist síðan niður and-
artak og starði undrandi fram fyrir sig.
Hún brosti angurvært, þurrkaði nokkur
tár í burtu og fleygði bréfinu skyndilega
í eldinn. Það fuðraði upp og varð að ösku.
Þegar örkin hans Nóa strandaði á
Ararat, skipaði Nói dýrunum að ganga í
land eftir stærð. Hópurinn lagði af stað,
og var fíllinn í broddi fylkingar. Síðust
gekk flóin, því að hún var minnst. Hún var
óþolinmóð að komast í land og þegar hún
gat ekki stillt sig lengur, tók hún undir
sig stökk og lenti aftan á fílnum.
Fíllinn sneri rananum og sagði reiðilega:
— Viltu hætta að ýta á!
— Hefir þú heyrt þessa um stúdentinn,
sem kom fullur heim og hellti úr vatns-
fatinu út um gluggann, og þegar einhver
æpti niðri á götunni, fór hann út í glugga
og sagði: — Fyrirgefið, ég sá yður ekki
í vatnsfatinu.
— Nei, ég hefi ekki heyrt hana. Hvernig
er hún?