Vikan - 30.05.1940, Síða 9
Frúin: Ég ætla að fá mér hatt, en það verður
að vera allra nýjasta tízka.
Afgreiðslumaðurinn: Gætuð þér beðið aðeins
nokkrar mínútur, frú. Það er einmitt verið að
skipta um tízku núna.
•—- Gráttu nú ekki svona, Elsa min. Þú
getur efalaust fengið annan mann.
— Já, en hann gat búið svo fallega
hringi, þegar hann var að reykja.
-— Það mundi líða yfir yður, ef ég segði yður
það, sem hún sagði um manninn sinn.
— Segið þér það bara, frú Jónsson, ég hætti
á það.
— Það er því miður ekki hægt að skrifa
fleiri flöskur.
— Nú, vantar yður blek?
— Staða yðar gerir menn ekki beinlínis að
englum, herra málaflutningsmaður.
■—■ Nei, doktor Páll, á því sviði verður ykkur
læknunum meira ágengt.
— Anzi er það vel til fundið, hirðveiðistjóri,
að láta dýrið vera svona í tveimur herbergj-
um!