Vikan - 22.08.1940, Síða 1
Demants-skeifan er hún kölluð neðsta stúkan í Metropolitan-óperunni í New York, glæsilegustu hljómlistahöll heimsins. Hún er líka stundum
kölluð gull-skeifan, af því að þar eiga auðugustu fjölskyldur Ameriku sæti sin. Fyrsta sýningin á. haustin í Metropolitan-óperunni er stórviðburður
í lífi amerísku auðmannastéttanna. Þá fylla fjármála- og iðnaðarkóngarnir stúkur sínar — konur ljóma í guili og gimsteinum — og lýðurinn í efri
stúkunum klappar. Á leiksviðinu eru það lika hin stóru nöfn, sem ijóma, en áhuginn fyrir því, Sem fram fer á leiksviðinu er áreiðanlega ekki eins
mikill og fyrir demants-skeifunni. Þannig hefir það verið frá því óperan var opnuð 1883, og þrátt fyrir óánægju allra sannra hljómlistaunnenda, sem
í háði kalla þetta fína fólk „Glitterbugs" (geislabjöllur), er ekkert útlit fyrir, að þetta breytist í náinni framtíð.