Vikan - 22.08.1940, Page 10
10
VIKAN, nr. 34, 1940
Heimilið
Matseðillinn.
Brún hvítkálssúpa.
Skerið í sundur hvítkálshöfuð í smá bita. —
Brúnið smjör með 2 matskeiðum af púðursykri,
bætið síðan hinu smáskorna káli saman við og
brúnið vel. Setjið síðan í súpupottinn, sem kjöt-
soðið er í (Maggi-soð) og sjóðið með luktu loki
(en hrærið vel í, því að kálinu er hætt við að
brenna við). Þegar kálið er orðið meyrt, á súpan
líka að vera orðin brún. Sé svo ekki, þá sjóðið
hana áfram um stund án loks. Lítið eitt af sósu-
lit má bæta í ef vill og salta eftir smekk.
Nautasteik á nýjan hátt.
Kaupið eitt kíló af buffkjöti (úr læri nautsins),
berjið það á öllum hliðum með kjöthamri, leggið
síðan yfir nóttina í almennt edik. Takið upp úr
edikinu daginn eftir og spikþræðið. Brúnið síðan
í smjöri eða smjörlíki, með luktu loki, í 2 tíma.
Kryddið með salti og pipar, hellið smám saman
mjólk yfir steikina, 6—7 sinnum, meðan hún er
að steikjast. Takið hana nú upp, þegar hún er
orðin meyr. Sé þörf á, þá síið sósuna, setjið hana
upp aftur og bætið með rjóma ogsoðhlaupi, sé það
fyrir hendi; hrærið stöðugt í þar til sýður, hellið
síðan yfir steikina. Berið á borð með soðnum
kartöflum.
Húsráð.
Salt, uppleyst í sítrónusafa, er gott til margra
hluta. Með því má ná blekblettum úr fötum.
Það er borið á blettinn með mjúkum pensli, og
eftir nokkrar mínútur er það þvegið úr. Sótuga
koparkatla og potta má hreinsa með því.
Rófur, gulrófur o. s. frv. geymist bezt i dimm-
um, köldum stað, í þurrum sandi eða mold.
Ein matskeið af ammoníaki í síðasta skolvatn-
inu endurlífgar litinn i mislitu silki eða bómullar-
taui. Það leysir einnig upp bletti af rauðu bleki,
ávaxtasafa eða grasbletti.
Silkisokkar verða miklu endingarbetri, ef þeir
eru iagðir í bleyti í köldu vatni, nokkrar klukku-
stundir, áður en þeir eru notaðir í fyrsta skipti.
Litirnir í upplituðum teppum skýrast, ef þau
eru strokin með volgri blöndu af ediki og vatni
eftir að þau hafa verið barin.
Til þess að vatnsglös og önnur glerilát verði
verulega fögur og fægist vel, má nota ofurlitinn
taubláma í uppþvottarvatnið.
Það getur brakað leiðinlega í nýjum skóm, jafn-
vel þó að þeir séu ekki keyptir „upp á krít“. —
Hellið ofurlitlu af laxerolíu á volga járnplötu og
látið skóna standa á því um stund. Sólarnir sjúga
þá í sig olíuna og marrið hættir.
Helga Thorlacius.
Ný matreiðsiiabók.
H.f. Leiftur hefir nýlega gefið út Mat-
reiðslubók eftir frk. Helgu Thorlacius.
Bjarni Bjarnason læknir skrifar formála
fyrir bókinni og segir þar m. a.: „Það sem
vakti mesta athygli mína og ánægju, er
ég fór yfir handrit þessarar bókar, voru
hinir ýmsu réttir og drykkir úr íslenzkum
nytjajurtum. . . . Bókin verður að því leyti
brautryðjandi, að hún kennir þeim, sem
lesa hana, að nota íslenzkar nytjajurtir
meira en tíðkazt hefir, bæði með því að
blanda þeim öðrum fæðutegundum og búa
til úr þeim sjálfstæða rétti og drykki.“
Bókinni er skipt í eftirfarandi kafla:
Mjólkurmatur og súpur. — Grænmetis-
mauk og jafningar með mjólk eða jurta-
seyði. — Fiskréttir. — Kjötréttir. — Búð-
ingar. — Ýmsir réttir úr innmat úr kálf-
um og lömbum. — Eggjaréttir. — Sósur.
— Salöt. — Salatsósur súrar, sætar og
kryddaðar. — Kaldir réttir. — Ábætis-
réttir. — Drykkir.
Mjög skilmerkilega er frá efninu gengið
og bókin vel og smekklega útgefin, eins
og venja er þessa útgefanda.
Matreiðslubók
eftir frk. Helgu Thorlacius, með formála eftir
Bjarná Bjarnason lækni, er kominn út.
Frk. Helga Thorlacius er löngu orðin þjóðkunn fyrirfram-
úrskarandi þekkingu á sviði matgerðarlistarinnar og hefir
á undanföfnum árum beitt sér af alefli fyrir aukinni græn-
metisneyzlu og neyzlu ýmissa innlendra jurta, t. d. skarfa-
káls, hvannar, heimulunjóla, hófblöðku, Ólafssúru, sölva,
fjallagrasa, berja o. s. frv.
1 bókinni er sérstakur kafli um tilbúning drykkja úr inn-
lendum jurtum.
Húsmæður!
Kynnið yður matreiðslubók Helgu Thorlacius
áður en þér sjóðið niður fyrir veturinn.
Bókin kostar aðeins kr. 4,00 í fallegu bandi.
ar- AUOLÝSIÐ í VIKUNNI! -m
Flöskur og glös.
Við kaupum daglega fyrst um sinn
allar algengar tegundir af tómum
flöskum og ennfremur tóm glös af
öllum tegundum, sem fró okkur eru
komin, svo sem undan bökunardrop-
um, hórvötnum og ilmvötnum.
Móttakan er í Nýborg.
Áfengisverzlun ríkisins.