Vikan - 09.04.1941, Side 1
FIMMBURARNIR FRÆGU.
Mikla athygli vakti það fyrir um sjö áxum, þegar kona ein
í bænum Callander í Ontario í Kanada eignaðist fimmbura,
fimm telpur, sem allar lifðu og lifa enn. Telpurnar voru strax
teknar úr umsjá foreldranna og aldar upp undir handieiðslu
Defoe læknis. Þær hafa verið hafðar algerlega út af fyrir
sig og leika sér aldrei með öðrum börnum, þess vegna er
orðaforði þeirra mjög takmarkaður, en annars eru þær ekki
illa gefnar að eðlisfari. Foreldramir eru af frönskum upp-
runa og þess vegna er telpunum kennt á því máli. Systurnar
heita Annette, Emilie, Cecile, Marie og Yvonne. Samkvæmt
kaþólskum uppeldisvenjum í Kanada, voru þær látnar ganga
til altaris 15. ágúst síðastliðið ár, eða á sjöunda sumri æfinn-
ar. Þó að systumar séu við fyrstu sýn ákaflega líkar, kemur
þó í Ijós við nánari kynningu, að margt er ólíkt með þeim,
bæði í skapgerð og útliti. Annette er hraustleg og síbrosandi;
hún líkist mest Yvonne. Emilie er örfhent og líkust Marie.
Cecile er stærst og talin laglegust. Marie er seinþroskuðust,
en hefir þó heldur sótt sig, en hún er augnveik. Yvonne var
lengi vel stærst, en er nú minnst af systrunum.