Vikan


Vikan - 11.09.1941, Side 9

Vikan - 11.09.1941, Side 9
VIKAN, nr. 37, 1941 9 Stuðningur Norðmanna við Breta. Ólafur ríkiserfingi Noregs kveikir sér í vindli eftir miðdegisverð í New York. — 1 fyrstu opinberu skýrslunni, sem hann gaf, eftir að hann kom til Bandarikjanna, sagði hann að 1000 norsk skip flyttu vörur frá Ameríku til Bretlands. Hann sagði að það vœri mesta hjálpin, sem Norðmenn veittu Bandamönnum. Eftirmaður VVavelis. Sir Claude Auchinleck, sem er 57 ára gamall Skoti og stjómaði árás Breta á Narvík, er nú orðinn eftirmaður Sir Archibald P. Wavells hershöfð- ingja á vigstöðvunum í Norður- Afriku. Wavell var fluttur til Ind- lands. Nýr skipstjóri. O. M. Hustvedt tekur við stjórn orustuskipsins XJ.S.S. North Carolina. Það er fyrsta orustuskipið, sem Banda- ríkin byggðu eftir 1921. Kjölur skipsins var lagður 27. okt. 1937. Þjóðverjar taka rússneskt virki. Mynd þessi er af þýzkri hersveit, sem er í þann veginn að taka rússneskt virki einhvers staðar á austurvígstöðvunum. Þjóðverjar segjast hafa tekið mörg af nýjustu, þreföldu virkjum Rússa. Neitar að fara. ,,Hér er gott að vera og hér vil ég vera,“ segir Kent Keller fyrrverandi þingmað- ur frá Illinois. Hann féll við sið- ustu kosningar, en neitar að víkja úr þingmannsskrifstofu sinni í Washington. Þingmennirnir eru í vandræðum með, hvað þeir eigi að gera við hann. Bandaríkin taka ítölsk skip. Þegar uppvíst vai'ð, að skipshafnir ítalskra skipa, sem voru í höfnum Bandaríkjanna, hefðu i hyggju að eyðileggja vélar þeirra, ef Bandaríkin ætluðu að taka þau, var settur strandvörður við tuttugu og sjö ítölsk skip, sem lágu i höfn- unum frá Boston til Portland og á Panamaskurðarsvæðinu. Mynd þessi sýnir fjögur ítölsk skip og nokkur strandgæzluskip á höfninni í Port Newark. Skipin eru San Leonardo, Brennero, Alberto og Aussa. Beitiskipi hieypt af stokkunum. Nýjasta og hraðskreiðasta beiti- skipi Bandarikjanna, U.S.S. San Diego, hleypt af stokkunum í Quincy. Það er fyrsta af fjórum nýjum beitiskipum, sem verið er að byggja. San Diego er minna en beitiskip af Omaha-gerðinni, sem byggð voru fyrir tuttugu árum. Þingmaður og ofursti. Hamilton Fish yngri, sem er þingmaður New York borgar, er nú i Norður-Caro- lina, þar sem hann tekur þátt í heræfingum 41. vélahersveitar Bandaríkjanna. Hamilton Fish er ofursti. FRÉTTAM¥IDIR

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.