Vikan - 27.01.1944, Qupperneq 15
VIKAN, nr. 4, 1944
15
Fæðingar og fæðingar-
hjálp í heimskautslöndum.
Framhald af bls. 10.
fóstrið liggi skakkt o. s. frv., en það
virðist allt vera mjög sjaldgæft.
Eiga nú þessir Eskimóar heims-
skautslandanna nokkuð það til, sem
heitið getur fæðingarhjálp í eiginleg-
um skilningi ? Auðvitað ekki. Þeir
hafa hvorki lækna né ljósmæður og
lifa mjög frumstæðu lífi. Fæðingin
gengur fljótt og vel, án allrar hjálp-
ar, og afar sjaldgæft er að nokkuð
beri út af eða hætta sé á ferðum.
En þegar slíkt ber við, er auðvitað
ekkert við því að gera og móðirin
isetur lifið sem óumflýjanlega fórn á
áltari móðurskyldunnar. Fáein dæmi
mætti nefna til þess að sýna, hvemig
fæðing gengur fyrir sig hjá þessum
konum. Að vetrlnum til fæðir konan
á fleti sínu, sem þakið er loðskinnum,
á sumrin fæðir hún í tjaldi. Oftast er
hún ein sins liðs, en komið getur það
fyrir, að önnur kona sé viðstödd, en
ekki-er þó um neina fæðingarhjálp
að ræða. Hjá sumum frumstæðum
þjóðum, t. d. fyr á timum hér í
Evrópu', var það siður að toga i
• lækinn eða jafnvel sækja fylgjuna
með hendi. Þetta virðist alls ekki
vera þekkt á Grænlandi meðal Eski-
'móa, því að til þess útheimtist ein-
hver þekking á eðli fæðingarinnar,
en hún virðist engin vera hjá Eski-
móum, eftir því sem kunnugt er af
frásögnum heimskautafara.
Á sumrin, þegar fjölskyldan er á
flakki sinu með ströndum fram, fell-
Ur það í hlut konunnar að róa kven-
bátnum, meðan maður hennar rær
til fanga á húðkeipnum. Vanfærar
konur verða einnig að róa og vinna
hvað sem er. Þessi sumarferðalög
Eskimóa taka oft marga mánuði.
Taki nú kona léttasóttina á slíku
ferðalagi, er lagt' að landi. Konan
gengur afsiðis í skjól undir stein eða
Isjaka og bíður þar, unz bamið og
fylgjan er fætt, sem vanalega tekur
aðeins skamman tima. Þá tekur hún
bamið, vefur það í loðskinnsfeld,
festir það á bak sér og gengur til
Skips. Ferðinni er svo haldið áfram,
eins og ekkert hafi í skorizt. Konan
sezt undir árar og rær sem fyrr.
Ekki vita menn neitt um það, hvort
bundið er fyrir lækinn, en ekki er
það sennilegt.
Eskimóar hafa böm sín á brjósti,
off mjög lengi. Móðirin-leggur þau á
brjóst úti sem inni, hvemig sem viðr-
ar, á hvaða tíma árs sem er. Enskur
heimsskautafari segir frá konu, sem
kom niður til skips í 40 stiga frosti,
fletti sig klæðum, tók nakinn hvít-
voðunginn innan úr reifunum og lagði
hann á brjóst. Móðurmjólkin er eina
fæða hvítvoðungsins, en snemma er
þó farið að gefa honum þurrfisk og
selspik. Hreindýramjólk er óþekkt
hjá Eskimóum. Hreindýrin em aðeins
þekkt sem veiðidýr, em annars mjög
sjaldgæf. (Úr Ljósmæðrablaðinu).
Yidskiptaskráin 1944
kemur út innan skamms.
Ný verzlunar- og atvtrmufyrirtæki eru beðin að gefa sig fram sem
fyrst. Ennfremur eldri fyrirtæki, er kynnu að vilja breyta einhverju
því, er um þau er birt í Viðskiptaskrá 1943.
Ef breyting hefir orðið á félögum eða stofnunum, sem birt hafa
verið í Félagsmálaskrá 1943, er ósltað eftir leiðréttingu sem
fyrst. Sömuleiðis óskast tilkynning iun ný félög.
Póstferðirnar
og samgöngutækin.
Framhald af bls. 7.
fjörhestur og sérstaklega vitur. En
eigi var nema stöku maður, sem það
lag hafði að geta ráðið við hann."
„ ... Tek ég nú Sokka og set hann
út í til þess að sjá, hve langt hann
botni. Rétt framundan, þar sem við
höfðum farið, grípur hann sund. Hreif
straumurinn hann þegar og bar óð-
fluga niður eftir, og sá hann hvergi
leið að komast upp úr ánni. Hvarf
hann okkur brátt all-langt neðar í
ánni, og bjóst ég við, að jakar hefðu
rotað hann eða keyrt í kaf. En að
vörmu spori sjáum við í toppinn á
honum með vesturlandinu, þeim meg-
in, sem við vorurn. Reynir hann í sí-
fellu að ná þar fótfestu, en það tekst
ekki. Syndir hann nú upp ána og ríf-
ur sig upp á jaka og kemst þá allur
upp úr. Eigi staðnæmdist hann þó
þama, heldur steypir sér þegar til
sunds á ný, og virðist nú miða áfram
upp ána. öðruhvoru kemst hann upp
á jaka, en steypir sér jafnóðum til
sunds, og gengur á þessu langa hríð.
Er hann loks kominn upp undir vaðið
skammt frá okkur. En þá verður
fyrir honum kvísl úr ánni, sem brýst
beljandi undir ískampinn. Sér Sokki
þegar, að þarna myndi hann óðara
sogast inn undir ísgarðinn, og leggur
þvl ekki í kvísiina, heldur stefnir þvert
suður yfir ána, hefir það af og nær
þar fótfestu utan i ísgarðinum. Þar
stöðvast hann og virðist hafa botn.
Nú reynum við að fara niður með
ánni og koma manni yfir um, en
árangurslaust. Urðum við því að
skilja við Sokka þama. Rigningin
hélzt, og töldum við víst, að Sokki
hlyti að fara í ána, enda var Norðurá
Reglur um upptöku í Vidskiptaskrána:
1 Félagsmálaskrá
er getið lélaga og stofnana, sem ekki ,reka viðskipti, en eru almenns
eðlis. Að jafnaði er getið stofnárs, stjórnar (eða form.), tilganga
o. fl., eftir ástæðum. Skráning í þennan flokk er ókeypis. (Eyðublöð,
hentug til útfyllingar, er að finna í Viðskiptaskránni, bls. 907).
I Nafnaskrá og Vamings- og starfsskrá
eru skráð fyrirtæki, félög og einstaklingar, sem reka viðskipti í ein-
hverri mynd. Geta skal helzt um stofnár, hlutafé, stjórn, fram-
kvæmdarstjóm, eiganda o. s. frv., eftir því sem við á, svo og aðal-
starfs eða hvetrs konar rekstur fyrirtækið reki.
I Vamings- og starfsskrá
eru skráð sömu fyrirtæki sem i Nafnaskrá, en raðað þar eftir vam-
ings- eða starfsflokkum, eins og við á. Þar era og skráð símanúmer.
Skráning i Nafnaskrá er ókeypis með grönnu letrL 1 Varnings- og
starfsskrá era íyrirtækin einnig skráð ókeypis (með grönnu letri)
& 2—4 stöðum. Óski menn sin getið á fleiri stöðum, eða með feitu
letri, greiðist þóknun fyrir það. Eyðublöð, hentug til útfyliingar
fyrir þessar skrár, er að finna í Viðskiptaskránni, bls. 905.
Viðskiptaslcráin er handbók viðskiptanna.
Auglýsingar ná því hvergi betur tilgangi sínum
en þar.
Lát'ð y^ur ekki vanta i V<ðslc:ptaskrána.
Utanáskrift: STCIHIDÓRSPREHIT H.F.
Kirkjustræti 4. — Reykjavík.
tekin að flæða upp á eyrina að sunn-
anverðu, og þá myndi hún skjótt
ryðja öllum jakakamtíinum á klárinn
og sópa öllu burtu. Taldi ég því
Sokka af.“ Urðu nú ferðamennimir
frá að hverfa og gista í Hvammi
tvær nætur, en síðan haldið aftur af
stað. „ ... Var nú haldið áfram að
Sveinatungu, og voru viðtökur þar
hinar ágætustu að vanda. Urðu þar
einnig óvæntir endurfundir: Ut úr
hesthúsi á túninu kemur Sokki brun-
andi, þurr og úttroðirm, og er nú
heldur fasmikill, er hann stekkur til
hestanna. Var ekki lítUl fögnuður
manna og hesta að heimta hann aft-
ur.“ Menn frá Sveinatungu björguðu
honum. „Höfðu piltarnir séð Sokka
í hrönninni og farið yfir um og rutt
frá honum, svo að hann losnaði úr
heljargreipum. En kalda nótt hefir
hann átt þarna og langa.“
cCdtíb
SölumSðstöðina
aðstoða yður við kaup og sölu á fasteignum, sltipum, verð-
bréfum, verzlunum og öðrum fyrirtækjum.
Áhersla lögð á ábyggileg viðsldpti.
Sölumiðsteðin
Klapparstíg 16, 3ju hæð. Símar 3323 og 2572
Símnefni: Sala. Pósthólf 774.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Bréfaskóli S.Í.S.
er ætlaður jafnt ungum sem gömlum.
Námsgreinar eru þessar:
Bókfærsla I. og II., fslenzk réttritun, Enska handa byrj-
endum, Báreikningar, Fundarstjórn og fimdarreglur,
Skipulag og starfshættir samvinnufélaga.
Námið er stundað heima, frjálst val um náms-
greinar og námshraði við hæfi hvers nemanda.
Lágt kennslugjald. — Leitið upplýsinga hjá
Bréfaskólanum, Sambandshúsinu, Reykjavík.
illllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilltlllllllllllillliiiiliililliiiiiiiiiiiini