Vikan - 09.06.1949, Blaðsíða 1
Páskaferð að Hagavatni 1949
Að ofan, frá vinstri: Við birgðastöðina, þar sem sleðarnir voru geymdir. ■— Sæluhús Ferðafélags íslands við Hagavatn. — Fjórir ferðafélaganna í sól-
þaði í snjóbyrgi. — Að neðan, frá vinstri: Komið úr skíðaferð að sæluhúsinu. — Kokkurinn kallar til matar. — Á ferð með sleðana í hríðarveðri.
Það eru tiltölulega fá ár síðan hópferðir kaupstaðafólks í óbyggðir og á jökla fóru að tíðkast.
Þessar heilbrigðu og karlmannlegu skemmtanir hafa farið mjög í vöxt á síðari árum, einkum
eftir að skálum f jölgaði, fyrir atbeina Ferðafélags íslands, Fjallamanna, skáta og íþróttafélaga.
Vikunni þykir fengur í að birta nú frásögn af einni slíkri för og myndir úr henni.
(Sjá bls. 3).