Vikan - 09.06.1949, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 23, 1949
9
Fréttamyndir
Mynd þessi er einskonar samnefnari fyrir „happy ending“ -
skáldsögur. Brúðurin, Alice Korotkin, var lögð- inn á sjúkrahus
fyrir 6 árum, illa lömuð. Þar kynntist hún brúðgumanum, Albert
Greene lækni. Með þeim tókust ástir og giftust þau, en Alice gat
losað sig við hækjur og hjólastól, þar sem hún varð albata undir
læknishendi mannsefnis síns.
I Japan eru tveir konudagar. Kommún-
istar halda upp á annan daginn, en hin-
ar meira hægfara hinn. Þær síðar-
nefndu sjást hér með kröfuspjöld sin.
Þegar lögreglan franska var á hött-
unum eftir kommúnistiskum njósnur-
um ekki alls fyrir löngu, tók hún m. a.
fastan fallhlífaforingja að nafni Azema
höfuðsmaður. Blaðaljósmyndari einn
ætlaði að ná mynd af höfuðsmanninum,
en hann rauk þá upp í vonzku og réðst
á ljósmyndarann. Lögreglan gat þó
stillt til friðar og stungið Azema inn í
bifreið sína.
Yfirvöldin í Boston hafa komist að
því, að kona ein hefur haldið syni sin-
um, nú 14 ára, innan húss allt frá fæð-
ingu hans. Ástæðan til þessa tiltækis
var sú, að barnið var fætt í lausaleik.
Gerald Sullivan (en svo er nafn drengs-
ins) talar eins og smábarn.
Kvikmyndaleikkonan Maria Montez
sést hér bálill yfir þeim orðrómi, að hún
ætli að skilja við mann sinn. Segir hún
það tilhæfulaust með öllu. Maður hennar
er franski leikarinn Jean Pierre-Aumont.
Hér sjást gestir, bæði ungir og aldnir, koma í veizlu, sem haldin var í sambandi við 58. þing
..Dætra amerisku byltingarinnar." Sá félagsskapur er til að heiðra minningu þeirra kvenna, er sendu
syni og eiginmenn út í frelsisstríð Bandaríkjamanna 1775—83.
Svissneska flugfélagið „Svissair" lét á
dögunum vígja nýja flugvél. Þá athöfn
framkvæmdi pririsinn af Napoli, sonur Um-
berto fyrrum Ítalíukonungs. Á myndinni
sést prinsinn (drengurinn í miðju) ásamt
kennara sinum Jacques Piccard, en hann er
einn af sonum Auguste Piccard, eðlisfræði-
prófessors í Brússel.