Vikan - 09.06.1949, Blaðsíða 8
8
VIKAN, nr. 23, 1949
Undur veraldar.
Teikning eftir George McManus..
Palli snúSur: Eg las það nýlega, að þau væru
aðeins sjö furðuverk heimsins.
Gissur: Það er haugalygi! Hafið þið aldrei orð-
ið hissa á því, hversvegna í gömlu reyfarabókun-
um----------
--------að glæpahetjan blotnaði aldrei
þó að skipið sykki undan honum. Gekk
í kjólfötum frá morgni til kvölds og saug
vindilinn við öll tækifæri — — —
Og ég furða mig á því, hversvegna kúrekarnir eru að
skæla þótt þeir syngi: „Eg sakna hennar Kötu minna
kæru.“ Við ættum frekar að gráta að þurfa að hlusta á.
þá---------
Og er það ekki skrýtið, að veizlustjór-
inn skuli eiga að kynna ræðumenn, en
talar svo lengi að enginn kemst að, en
segir samt alltaf: „— að lokum vildi
ég segja þetta — hér — þarna —
þama —“---------------
Og Það er segin saga, að minnsti
maðurinn spilar á stærsta hljóðfærið, en
sé stærsti blæs í flautu------------
Og undarlegt er það að
stelpukrakkar segja ekkert
fyrr en þær eru giftar. Þá
leggja þær aldrei saman á
sér þverrifuna---------
Og ég er hissa á því, að fólk, sem þarf
að létta sér upp og njóta næðis og yndis
frá daglegu striti skuli fara á dansleiki,
þar sem hávaðinn í hljómsveitinni ætlar
að æra mann og yfirgnæfir kjaftaganginn
í fólkinu----------
Og það er merkilegt að hetjan í Hollywood-myndum getur
lagt að velli hundruð manna með tveimur 6-skota skamm-
byssum, þótt púðrað sé á hann á bersvæði úr ótal fallstykkj-
um------—
Og þótt tíu þjónar standi aðgerðar-
lausir verður þeim ekki að vegi að
hreyfa sig, þótt maður öskri og
óskapist.
Og er það ekki furðulegt, að Bjössi og Billi gátu
aldrei hamið sig í vöggunni, þegar þeir voru litl-
ir, en nú hafa þeir vinnu eins og sést hér á mynd-
inni.