Vikan - 18.12.1993, Qupperneq 14
VOLVUSPAIN 1994
Kemur hingað til heilsubótar eftir mikið
vinnuálag undanfarið.
Fálkaeldi arövænlegur atvinnuvegur, en
því miöur . . .
aö fá eldri konur, oftast
ömmur, til aö ganga meö
barnabarnið í stað þess aö
unga konan þurfi aö eyða
tíma eða verða fyrir álagi
vegna meðgöngunnar. Þessi
tilhneiging ungra kvenna hér
mun verða umdeild en engu
að síður þykja heppileg
lausn hér við núverandi
þjóðfélagsaðstæður.
■Strax eftir áramótin verður
uppi mikið fjaðrafok vegna
staðfastrar neitunar banka og
sparisjóða um að verða við
óeðlilegum þrýstingi eins og
það verður orðað, um nafn-
vaxtalækkun. Bankamenn og
sparifjáreigendur munu vísa á
þá staðreynd að margir millj-
arðar króna liggi á svonefnd-
um kjarareikningum og því
séu hendur bankanna meira
og minna bundnar að þessu
leyti.
■Á árinu verður tekið upp
það nýmæli til reynslu að
selja aðgang fyrir bifreiðar að
öllu miðbæjarsvæðinu, frá
Garðastræti að vestan og
Snorrabraut að austan.
Ákveðin „hlið“ verða sett upp
við sérstakar innakstursgötur
þar sem innheimt verður
stöðugjald sem gildir í heilan
dag. Síðan má leggja bifreið-
um hvar sem er innan svæð-
isins, jafnt í bílageymslu-
húsum sem annars staðar án
þess að greiða frekar fyrir.
Þetta fyrirkomulag mun eiga
vinsældum að fagna.
■Lífeyrismálin verða enn til
umræðu á árinu og verður
margsköttun lífeyrisgreiðslna
kærð til alþjóðadómstóls til að
láta reyna á réttlætisgildi nú-
verandi gjaldtöku af lífeyris-
greiðslum.
■Sparisjóðirnir gera tilraun
með það sem kalla má raf-
tæknibanka sem á að spara
reksturskostnað þeirra veru-
lega. Munu þá viðskiptavinir
geta sjálfir annast mestalla
þjónustu sína við þessar pen-
ingastofnanir sjálfir með leið-
beiningum sem settar verða
um notkun þessara tilrauna-
banka. Þess konar bönkum
svipar mjög til hraðbankanna
en verða mun tæknilegri og
gerðir fyrir fleiri færslur og
þjónustu.
■Krafa verður gerð um að
stórauknu fé verði veitt til
gerðar jarðganganna undir
Hvalfjörð og framkvæmdaféð
verði ekki undir einum millj-
arði króna á næsta ári. En
það er helmingi meira fó en
nú er ætlað að unnið verði
fyrir á árinu.
■í Reykjavík heldur borgar-
stjórinn áfram tilraunum með
verkefni sem byrjað verður á
af fullum þunga á árinu, þ.e.
að innrétta íbúðir á efri hæð-
um stórra húsa sem í dag
gegna hlutverki sem þjón-
ustufyrirtæki og verslanir.
Þetta verða eftirsóttar íbúðir
því þær verða með vörslu og
símaþjónustu af nýjustu gerð
í anddyri og þurfa íbúar ekki
að greiða fyrir þessa þjónustu
sérstaklega."
UMHEIMURINN
SKIPTIR MÁLI
Hvernig stöndum við í sam-
skiptum við umheiminn og
hafa einhverjir erlendir at-
burðir eða samskipti við er-
lendar þjóðir bein áhrif á okk-
ur íslendinga?
■Það eina, sem telja verður
fullvíst, er að umheimurinn
skiptir alltaf máli fyrir okkur á
íslandi. En það, sem ég sé á
þessu andartaki, er þó aðal-
lega tvennt sem ég vil benda
á. Annars vegar er það við-
vörun til okkar, hins vegar
heilræði okkur til handa.
■Ef ég tek fyrra atriðið, við-
vörunina, þá sé ég afar
óheppilegt samband ís-
lenskra stjórnvalda við stjórn-
málamenn í tveimur ríkjum
Evrópu. Annars vegar í
Þýskalandi og svo í Belgíu.
Þetta tengist hvort tveggja
nýjum reglum og viðskipta-
samböndum en ekki þessum
ríkjum sérstaklega. Gerð
verður tilraun til að þröngva
upp á okkur viðskiptareglum
sem við getum ekki gengist
inn á. íslensk stjórnvöld ættu
ekki að hafa neitt frumkvæði í
þessum efnum á meðan ekki
er fullgengið frá öllum þráðum
í hinu nýja viðskiptaumhverfi
Evrópu.
■Síðara atriðið er af betri
gerðinni. - Það verður
augsýnilega mikil ásókn frá
íslandi til suðurríkjanna í
Vesturálfu og er Mexíkó þar
fremst. Það verður gerður
samningur milli sjálfstæðra
fyrirtækja þar syðra við ís-
lenska aðila í sjávarútvegi eft-
ir viðamiklar athuganir á laga-
legum heimildum okkar
manna til að hasla sér þarna
völl við fiskveiðar. - Mun
meiri ásókn verður héðan til
þessa heimshluta til tíma-
bundinna verkefna en hægt
er að anna í fyrstu lotu en
þessu verkefni eigum við að
sýna mikla rækt og leggja
metnað okkar í að hasla okk-
ur völl í þessari tegund við-
skipta.
■Enn verður leitað hér fanga
af erlendu tryggingafélagi og
stórt íslenskt tryggingafélag
semur við erlenda samsteypu
í tryggingaviðskiptum um
endurtryggingu á öllum trygg-
ingum hins íslenska félags.
Þetta munu reynast hagstæð
langtímaviðskipti.
■Virt vísindastofnun, sem
hefur aðsetur beggja megin
Atlantshafsins, mun óska eftir
að fá íslensk svín sem til-
raunadýr með fyrirhugaða líf-
færaflutninga úr þeim í
mannslíkama að leiðarljósi.
Beiðninni verður hafnað af
einskæru þekkingarleysi hér-
lendra aðila.
■íslendingum verður falin for-
ysta við að sjá um að greiða
framlag nokkurra EES þjóða
fyrir Liechtenstein ( byggða-
sjóð EES fyrir hönd hinna fá-
tækari Evrópuþjóða. Verður
sérstakur fulltrúi ráðinn héðan
í þessa stöðu tímabundið.
■Þekkt stofnun vestanhafs
sem sinnir eyðnisjúklingum
óskar eftir samstarfi íslenska
heilbrigðiskerfisins og lækna
hér varðandi rannsóknir á
krökkum með tilliti til hugsan-
legra smitleiða gegnum hrein-
lætisáhöld sem börn á leik-
skólum hafa afnot af. Þetta
verður viðamikið verkefni og
veitir hópi í heilbrigðiskerfinu
talsverða vinnu, ef af sam-
starfi verður.
■Utanríkisráðherra Noregs,
sem hingað kom fyrir nokkr-
um mánuðum og hefur átt við
heilsubrest að stríða vegna of
mikils vinnuálags við sáttaum-
leitanir milli ísraela og Palest-
ínumanna, mun óska eftir að
fá að dvelja hér sér til heilsu-
bótar við Bláa lónið eða í
Hveragerði. Fleiri þekktir
persónuleikar munu fylgja
dæmi hans síðar á árinu.
■Skyndileg stöðvun verður á
innflutningi bifreiða hingað til
lands frá Japan um mitt árið
er eftirspurn eftir japönskum
bifreiðum í Ameríku sprengir
framleiðslulínur japanskra
bílaframleiðenda. Mörg lönd
verða fyrir viðskiptatapi vegna
þessa.
■Nýtt fyrirtæki hér á landi
sækir um undanþágu til að
ala fálka til útflutnings og upp-
stoppunar. Geysileg eftir-
spurn verður eftir fálkum frá
flestum Evrópulöndum og
nokkrum Arabalöndum.
Beiðninni verður tekið fálega í
fyrstu hjá viðkomandi ráðu-
neyti en könnun á arðsemi
fálkaeldis breytir viðhorfinu og
veitt verður leyfi til bráða-
birgða undir eftirliti landbún-
aðarráðuneytisins."
HNATTRÆNT YFIRLIT
Ertu einhvers visari um
nýmæli eða óvæntar fréttir
sem okkur berast erlendis frá
og gefa tilefni til umræðna
eða skoðanaskipta hér á
landi?
■„Ýmislegt sé ég hér sem
gæti verið svar við þessari
spurningu en slíkt er flæði
viðburðanna að varla er um
annað að ræða en að grípa
það sem skýrast kemur fram
í þessum spilum. Eitt er t.d.
það að varðandi hinn umtal-
aða GATT samning að þótt
samningar náist í þessari
lotu og þeir verði kynntir fljót-
14 VIKAN 24. TBL. 1993