Vikan - 18.12.1993, Page 29
innar. Viö hljótum að verða
að flytja þá sálma sem hrífa
samtímann hverju sinni.
Þegar Marteinn Lúter kom
fram með sálminn Vor Guð
er borg á bjargi traust var
hann vakningarsálmur fyrir
Þjóðverja. Við þurfum að
átta okkur á því hvað hentar
hverju sinni. Okkar kynslóð
er meira og minna samofin
tónlistinni sem kom fram
með Bítlunum og fleirum á
sjöunda áratugnum með gít-
ar- og trommuundirleik.
Þetta hentar okkur betur,
það er búið að ala okkur
svona upp. Þess vegna eru
margir sálmanna of þungir
og orgelundirleikur líka.
Það var orgel í Betel,
gamalt og fótstigið, sem var
alltaf notað um jólin. Þar var
líka rafmagnsorgel en það
varð ónýtt. Sjálfsagt eigum
við eftir að eignast fullkomið
hljómborð. Við viljum ekki
útiloka neitt, hvorki pípuorgel
né annað, allt sem kemur
inn í okkar söfnuð - það lofi
Drottin - eins og fram kemur
í Davíðssálmi.....lofi hann
með hjarðpípum" og svo
framvegis."
- Hvað er Betelsöfnuður-
inn stór?
„Við erum í kringum 90
manns. Mitt hlutverk hefur
verið í því fólgið að söfnuð-
urinn fái öruggan aðgang að
ákveðnum stundum og mér
er ætlað að sameina hann til
helgihalds og helgiþjónustu.
Ætli við séum ekki allt í allt
700-800 hér á landi.“
KRIST INN Á HEIMILIN
- Hverju viltu helst koma á
framfæri við þjóðina núna
um jól og áramót?
„Að átta sig á því hver
ræður lífi okkar. Ef íslend-
ingar sjá að líf þeirra stefnir
niður á við þá vita þeir um
leið að konungur þeirra er
þessi lélegi konungur sem
þegar er búinn að tapa. Þeir
þurfa að skipta um stjórn-
anda. Við þurfum að fá guð-
lega visku, guðlega speki og
guðlega náð inn í líf okkar.
Við þurfum Krist inn á heimil-
in. Konungurinn sem ég
nefni er Satan, hann stelur,
slátrar og eyðileggur. Það er
of dýrt að lifa þannig lifi að
eyða þurfi 700 fóstrum á ári.
Það er of dýrt að taka þann-
ig á málum okkar að efna-
hagskerfi landsins skuli
meira og minna hrynja
vegna eyðslusemi og inn-
kaupabrjálæðis. Það er of
dýrt að ganga á fiskistofn-
ana til þess að geta haldið
uppi ákveðnum lífsmáta.
Við eigum við efnahags-
þrengingar að stríða sem
dunið hafa yfir út um allan
heim. Þetta er eins og skýfall
sem allt í einu kemur yfir.
Mönnum hættir til að leysa
þessi mál með skyndilausn-
um. í Evrópu munu menn
reyna þetta - þar mun koma
fram maður sem stuðla mun
að friði fyrir botni Miðjarðar-
hafs og leysa efnahags-
vanda Evrópu. Um leið mun
hann krefjast þess að vera
kallaður konungur og guð
þessara ríkja. Biblían hefur
spáð fyrir þessum manni og
kallað hann anti-krist. í dag
þurfa íslendingar að taka við
Jesú Kristi sem Drottni áður
en hinn konungurinn kemur
því að við hann ráðum við
ekki nema að hafa Jesú í
okkur. Fólki kann að þykja
þetta fjarlægt en það er samt
að koma. □
24. TBL. 1993 VIKAN 29
TRUMAL