Vikan - 18.12.1993, Page 34
HESTAMENNSKA
ÞEKKTU EKKI
ÍSLENSKA HREIMINN
Ég var komin að mikilli reið-
höll en hvergi sá ég merki
um íbúðarhús svo ég ávarp-
aði ungan mann á þýsku og
spurði um frú Aðalsteinsson.
Hann sagði mér einnig á
þýsku að aka veginn á enda
og þar myndi ég finna frúna.
Hvorki ég né ungi maðurinn
gerðum okkur fyllilega Ijóst
að viðmælandinn var ís-
lenskur. Til þess hefur
þýskukunnátta okkar líklega
ekki nægt, þótt bæði viður-
kenndum við um kvöldið að
eitthvað hefði hljómurinn
verið öðruvísi en við hefðum
búist við af vörum Þjóðverja.
Hér var kominn Gestur Júlí-
usson, ungur Akureyringur
sem verið hefur tvö sumur
hjá Höska og Michi, þeim til
aðstoðar við hirðingu hesta
og sitthvað fleira.
Við enda vegarins er
Waidhof, heimili Familie
Adalsteinsson eíns og sagt
er í Vínarskógi. Húsmóðirin,
lítil og dökkhærð, algjör and-
stæða eiginmannsins, sem
er hávaxinn og Ijóshærður,
tók á móti mér og sömuleiðis
Signý, Ijóshærð hnáta, og
Leondinger-tíkin Dísa. Höski
birtist nokkru síðar. Það var
mánudagur og mikið hafði
verið að gera um helgina á
Forsthof í tengslum við gæð-
ingakeppnina, fjölmargir
þátttakendur og víða að
komnir. Nú voru hjónin að
undirbúa árlegt tveggja
vikna sumarleyfi sitt, sem átti
að hefjast daginn eftir. Þau
gáfu sér samt tíma til að
sýna mér umhverfið og
segja mér frá því hvað þau
eru að gera svona dagsdag-
lega.
ERU MEÐ REIÐSKÓLA
„Við erum með um níutíu
hesta en þar af eru rúmlega
fjörutíu sem við erum með á
húsi fyrir fók, aðallega frá
Vín. Fólkið kemur hingað
mest um helgar, þótt sumir
komi oftar, til þess að
bregða sér á bak og sinna
hestunum. Síðan starfrækj-
um við reiðskóla bæði fyrir
byrjendur og lengra komna,
fullorðna og börn. Á sumrin
höldum við vikunámskeið og
þá dveljast þátttakendur hér
hjá okkur. Við getum mest
tekið á móti átján manns í
einu,“ segja Höski og Michi.
Nemendurnir búa ( húsinu
hjá þeim og borða þar að
sjálfsögðu líka. Mest er af
unglingum en þátttakendur
eru á aldrinum frá sex til
sautján ára, þótt flestir séu
átta til tólf ára. Tveir reiðtím-
ar eru á dag auk þess sem
nemendunum er kennt að
leggja á hestinn, hirða hóf-
ana og þvo augu hestsins en
það er mikilvægt á sumrin
þegar mikið er um flugur.
Einnig læra nemendur sitt-
hvað bóklegt sem viðkemur
hestamennskunni. Michi og
Höski kenna bæði á nám-
skeiðunum og einnig stúlkur
sem eru þeim til aðstoðar en
Höski segist sjálfur annast
tölt- og skeiðkennsluna.
En hvað kemur til að hér
skuli vera saman komnir hátt
í hundrað íslenskir hestar og
fjölskylda sem kennir þeim
sem áhuga hafa að ríða
þessum íslensku hestum eft-
ir kúnstarinnar reglum - og
hvað kemur til að húsbónd-
inn skuli vera íslenskur en
ekki austurrískur?
FYRSTI HESTURINN
FERLEG TRUNTA
Það var í raun móðir Micha-
elu, Edith Uferbach, sem
keypti Forsthof árið 1979 og
hún og dætur hennar tvær
komu þangað síðan með
hesta sína. Áhuginn á ís-
lensku hestunum vaknaði þó
nokkru fyrr. Skólasystir syst-
ur Michaelu átti íslenska
hesta. Þeim mæðgum var
boðið að koma og kynnast
íslandshestum hjá vinkon-
unni og áhuginn vaknaði
strax hjá Edith sem hefur
verið áhugasamur fslands-
hestaeigandi alla tíð síðan.
„Fyrsti hesturinn okkar var
ferleg trunta, var íslenskur
en keyptur í Austurríki. Svo
fengum við annan hest sem
kom beint frá íslandi og var
miklu betri. Þegar mamma
keypti Forsthof var hér ekk-
ert nema húsið sem hún býr
nú í,“ segir Michaela. „Við
vorum hér með sjö til átta
hesta og pínulítið gerði áður
en Höski kom.“
„Svo kom ég hingað af al-
gjörri tilviljun," heldur Höski
áfram. Hann hafði unnið um
tíma hjá Jóhannesi Hoyas,
austurrískum íslandshesta-
eiganda, þegar hann brá sér
á Evrópumót íslenskra hesta
í Þýskalandi árið 1983. „Þar
hitti ég Hollending og ákveð-
ið var að ég yrði hjá honum
einhvern tíma. Eftir að mót-
inu lauk var fólk að rabba
saman. Þar sem ég fann
ekki Hollendinginn setti ég
töskurnar mínar upp í bíl
Austurríkismannanna.
Um svipað leyti og bíllinn
hvarf á braut með töskurnar
til Austurríkis fann Höskuldur
Hollendinginn. Það var úr að
hann færi á eftir töskunum
en kæmi aftur eftir nokkra
daga. Málið æxlaðist öðru-
vísi. Edith, móðir Michi,
bauð honum að koma og
vera hjá sér í þessa tvo þrjá
daga sem hann ætlaði að
vera í landinu en brottförin
dróst alltaf og dróst „og ég er
hérna enn“, segir Höski
brosandi. Reyndar hefur
hann ekki verið í Forsthof
óslitið frá 1983. Hann var
fyrst í eitt og hálft ár og fór
þá til Þýskalands til Reynis
Aðalsteinssonar, bróður
síns. Þegar Michi tók síðan
við búinu spurði hún hann
hvort hann vildi ekki bara
vera með henni í þessu og
það varð úr, eins og sjá má í
dag.
RÆKTA HROSS
Hestaeignin á Forsthof hefur
heldur betur aukist. Michi og
Höskuldur eru sjálf með um
fimmtíu hesta, fyrir utan þá
sem þau eru með á húsi fyrir
aðra. Meiri hluti hestanna er
kominn beint frá íslandi, þótt
hjónin séu farin að stunda
töluverða hrossarækt síð-
ustu ár. Meðal annars voru
þau að fá graðhestinn Silfur-
topp frá íslandi, sem er úr
ræktun Reynis bróður
Höska. Annan graðhest eiga
þau, Glitfaxa frá Kirkjubæ.
„En við ætlum að spara
hann núna,“ segir Höski.
„Við erum aðallega að rækta
hesta til að selja en það er
alltaf gott að hafa góða hesta
í skólanum og okkur vantar
eina tíu hesta til þess.“
Hösli kennir ekki aðeins
reiðmennsku heima á Forst-
hof heldur fer hann um allt
Austurríki og jafnvel til Sviss
og Þýskalands til að halda
námskeið. í Austurríki segir
hann vera um tíu þúsund ís-
lenska hesta, svo greinilegt
er að nauðsynlegt hlýtur að
vera að fræða fólk um með-
ferð þeirra og kenna réttar
aðferðir við reiðmennskuna.
„Þetta eru ekki allt gæð-
ingar. Það er ekki passað
nógu mikið upp á ræktunina
hjá sumum. Bændur eru að
láta hryssur undir hvaða
hest sem er hjá nágrannan-
um og eru ekkert að pæla í
gæðingum. Sama gildir um
ræktun í löndunum hér í
kring.“
Michaela og Höskuldur
hafa gert mikið á Forsthof.
Þar er komin stór og mikil
reiðhöll, 200 metra hringvöll-
ur, gerði og 250 metra lang-
ur skeiðvöllur. „Svo eru fínar
útreiðarleiðir hér ailt í kring.
Við erum búin að leigja vegi
en það verður að gera hér
og við erum nú með um 30
kílómetra af útreiðarvegum
sem við getum farið um með
fólk og hesta. Eftir nám-
skeiðin er farið í lengri ferðir.
Síðasta ár fórum við til
dæmis í tveggja daga ferð til
Mariazell og gistum á
bóndabæjum á leiðinni. Það
var ofsalega fallegt að ríða
þessa leið.“
Sjálf eiga Michaela og
Höskuldur um 10 hektara
lands en leigja auk þess 30
til 40 hektara í nágrenninu.
Við brugðum okkur í ökuferð
síðdegis, eftir að ég hafði
spjallað við þau, til að líta á
land sem þau höfðu auga-
stað á. Nokkuð þótti íslend-
ingnum leiðin löng og bit-
haginn fjarri Forsthof en
vegalengdir eru afstæðar og
fara víst eftir ýmsu. Á heim-
leiðinni skoðuðum við hesta
í girðingu, þar á meðal nýja
graðhestinn Silfurtopp sem
ku vera mikil gersemi.
ÍSLENDINGAR
VELKOMNIR
Skyldi Höskuldur nokkuð
vera að hugsa um að snúa
aftur til íslands og stunda
hestaræktina þar? „Maður
veit aldrei. Mann langar nú
alltaf heim en ég fer þangað
líka einu sinni eða tvisvar á
ári til að athuga hesta. Það
er gott að búa hér, sérstak-
lega svona aðeins uppi í
fjöllunum. Veðráttan er góð
og gott fyrir börnin. Kannski
svissum við einhvern tímann
yfir en þetta er eins og æxli
sem vex og vex og svo er
margt fólk hér sem treystir á
okkur, fólkið sem er með
hesta á húsi hjá okkur,“ segir
Höski og Michaela bætir við:
„Mamma er líka búin að af-
henda okkur þetta allt og við
höfum bætt miklu við síðan
yið tókum við búinu.“
Hverjir skyldu það vera
sem hingað koma og sjást
(slendingar meðal gesta?
„Hingað kemur aðallega
fólkið sem við erum með
hestana fyrir, auk þeirra sem
koma á námskeiðin. Við er-
um eiginlega með námskeið
allan ársins hring þótt mest
sé um að vera á sumrin, svo
hér er alltaf mikið af fólki. ís-
lendingar hafa ekki komið
hingað en þeir eru velkomnir
og væri sannarlega gaman
að fá þá. Við getum sótt fólk
út á flugvöll og það er hægt
að fara hér á skíði að vetrar-
lagi og einnig er hægt að
bregða sér í útreiðartúra
jafnt á sumri sem vetri og
getur verið gaman að riða út
í skógunum þegar snjór er
yfir öllu.“
Af orðum Höska og Michi
má ráða að dvöl á Forsthof
gæti verið skemmtileg viðbót
við hefðbundið skíðaferða-
lag að vetri, sem og sumarfrí
á öðrum árstíma. Eins og við
sögðum í upphafi er aðeins
rúmlega hálftíma akstur til
Vínar og ferð frá Salzburg
tekur rúma tvo tíma í bfl. □