Vikan - 18.12.1993, Blaðsíða 63
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON / UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
NYTJAUST í LISTAGIM
Blaöamaður og Ijós-
myndari Vikunnar sáu
Ijós í glugga seint um
kvöld þegar þeim varö geng-
iö út úr kaffihúsinu Karólínu í
Listagilinu á Akureyri. Þeir
gengu á Ijósiö, beint yfir göt-
una. Forvitnin rak þá áfram,
þeir knúöu dyra og á móti
þeim tók glaðleg kona. „Nei,
þaö er ekki opið, ég er með
náskeið hérna.“ - Nú-ú,
námskeið? Við héldum að
hér væri opin listmunaversl-
un eða eitthvað í þeim dúr.
Fyrirgefðu ónæðið. „Nei, nei,
strákar mínir, hér er opið á
daginn en þið megið alveg
koma inn og skoða.“
Boðið var þegið. Sú sem
tók svo kankvíslega á móti
aðkomumönnum heitir Karín
Sveinbjörnsdóttir, textíllista-
kona og myndlistarkennari í
Verkmenntaskólanum. Hún
var í óðaönn að kenna
nokkrum áhugasömum kon-
um ýmsar aðferðir til þess
að lita silki á hinn margvís-
legasta hátt.
Hún fræddi gestina á því
að úr silki væri unnt að gera
til dæmis slæður, gluggatjöld
og margt fleira til nota sem
skraut í öllum regnbogans
litum að hætti hvers og eins.
Þetta var fyrsta kennslu-
stundin á námskeiöinu. Auk
þess sem Karín vinnur og
kennir í tengslum við silki og
textíl af öðru tagi kennir hún
bútasaum og býr til alls kon-
ar körfur. Einnig býr hún til
gjafakort alls konar sem hún
útbýr á þann hátt að litríkum
silkibút er komið fyrir í stað
teikningar eða Ijósmyndar
eins og algengast er.
Þarna er sem sé listmuna-
verkstæði þriggja kvenna
sem selja auk þess margvís-
lega framleiðslu sína þeim
sem áhuga hafa og er opið
hjá þeim fjóra daga í viku
milli klukkan 14 og 17. Lags-
konur Karínar eru Guðrún
Hadda Bjarnadóttir, sem vef-
ur, býr til kerti úr býflugna-
vaxi og tekur Ijósmyndir, og
Sigrún Ingibjörg Arnardóttir,
saumakona og hönnuður.
„Fólk kemur og skoðar
varninginn," segir Karín áður
en gestirnir kveðja, „og pant-
ar gjarnan eitthvað sem það
langar í. Við höfum ekkert
auglýst þessa starfsemi okk-
ar, við erum enn að þreifa
okkur áfram en erum
bjartsýnar á framtíðina.
Starfsemin hér í Listagilinu á
eftir að hafa mikið aðdráttar-
afl. □
Traust nterki...
tryggir gœði!
SALTKEX EINS
OG ÞAÐ GERIST BEST
Hæfilega stórt, mátulega stökkt,
passlega salt, einstaklega gott...
Meb ostinum, salatinu og ídýfunni.
Eba bara eitt sér...
Auðvitað Bahlsen
þegar eitthvað stendur tii!
íslensk^////
Ameríska
24. TBL. 1993 VIKAN 63
NÁMSKEIÐ