Vikan


Vikan - 24.01.1994, Qupperneq 37

Vikan - 24.01.1994, Qupperneq 37
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: þar var líka mikið spilað. Þá var hápunktur vikunnar að fara í félagsvist. Foreldrar mínir voru auð- vitað í briddsklúbbi fyrir vest- an og ég var ellefu ára þegar mamma forfallaðist rétt fyrir mót. Pabbi sagði þá að ég yrði að spila í hennar stað á mótinu og fór yfir það með mér hvernig ég ætti að spila. Og við náðum nokkuð góð- um árangri þetta kvöld, lent- um f öðru sæti af átján pör- um. Ég vissi náttúrlega voðalega lítið hvað ég var að gera en ég hafði góðan spilafélaga og fannst mjög gaman að þessu. Síðan spil- aði ég eiginlega ekkert fyrr en í Reykjaskóla í Hrútafirði. Þar komst ég yfir bók með spilakerfum og stofnaði klúbb með það sama. Við spiluðum nokkur kvöld en í raun og veru byrjaði ég ekki fyrir alvöru að spila bridds fyrr en nú fyrir sex árum. Þá hringdi pabbi í mig og bað mig að koma suður í Sand- gerði og spila með sér á stórmóti." ÓVART í ELÍTUNA Eftir þetta varð ekki aftur snúið. í stuttu máli þróuðust málin þannig að þar sem Hjördís var að spila í undan- keppni að fslandsmótinu 1987 var stúlka á svipuðum aldri meðal áhorfenda. „Ég gekk til hennar og spurði hvort hún spilaði bridds. Hún sagðist ekki gera það og ég svaraði í sömu mynt, sagðist heldur ekkert geta. Og síðan spurði ég hvort hún vildi samt reyna og hún jánkaði því, sagði móður sína, Ester Jakobsdóttur, örugglega geta hjálpað okkur. Ester hefur verið mörg undanfarin ár í landsliði íslands og er mjög góður spilari." Stúlkan heitir Anna Þóra Jónsdóttir og þær Hjördís náðu vel saman, urðu meðal annars Norðurlandameistarar í kvennaflokki 1990. Eftir að Anna Þóra dró sig í hlé og Hjördís hafði spilað með Ás- mundi á nokkrum mótum brá hún sér til Bandaríkjanna til að spila bridds. Tylliástæðan var heimsókn til Karenar Mcallum, þrefalds heims- meistara í kvennaflokki, sem hafði boðið Hjördísi að koma til sín á Briddshátíðinni hér á islandi 1992. „Þarna úti gekk ég eigin- lega inn í briddselítuna án þess að vita af því og spilaði þar meðal annars með Eric Rodwell og fleiri atvinnuspil- urum sem hafa verið í heimsmeistarasveitum. Allt var þetta mikil upphefð fyrir mig persónulega en það að íslendingar höfðu þá nýlega orðið heimsmeistarar auð- veldaði mér ýmislegt. Úti var ég byrjuð að spila fyrir pen- inga á leigumarkaði eins og ég sagði frá áðan. Ég var leigð!" ÆTLA Á TOPPINN Að lokinni ævintýraferðinni til Bandaríkjanna kom Hjördís heim, tók aftur upp „makker- skapinn" við Ásmund og þau unnu Kauphallarmótið 1992 og fleiri mót. Saga þessa árs hefur þegar verið rakin í stórum dráttum. En áður en dregur að lokum viðtalsins má ekki láta hjá líða að kíkja smávegis á skapgerðina og hvernig hún brýst út í spila- mennskunni. Kunnugir segja snápi að Hjördís geti oft og tíðum spilað f fastara lagi og að hún taki stundum djarf- legar áhættur. Er hún þannig sjálf, við og fjarri spilaborð- inu? „Ég, veit það ekki. Sum- ir segja að ég sé aggressív meðan aðrir telja mig kisu, svona dálítið mjúka. Ég held sjálf að ég sé ekkert of mikið fyrir það að taka órökstuddar áhættur. Ætli ég sé ekki svona í meðallagi. Og sama held ég megi segja um einkalífið. Það snýst hvort eð er allt um bridds." Hjördís Eyþórsdóttir á ell- efu ára gamlan son, Eyþór Örn, sem býr á vetrum hjá föður sínum úti á landi. í leyfum kemur Eyþór Örn til móður sinnar og þannig lifa þau öll þrjú í mikilli sátt og samlyndi að því er Hjördís segir. „Og nú er ég búin að lofa að kenna honum bridds," segir hún og hlær við. „Hann er þó meira í skákinni eins og er. Annars bý ég ein með briddsinu og hef gert síðan í febrúar 1990. Enda held ég að ég sé svo erfið í sambúð að enginn þoli það nema briddsið, kannski.“ Má maður spyrja um framtíðaráformin? „Ég gæti vel hugsað mér að fara aftur til Bandaríkjanna og taka upp þráðinn að nýju þar sem ég lét staðar numið. Ég þarf líka að ná fleiri alþjóð- legum titlum og komast hærra á Evrópumæli- kvarðanum. Þar er ég rétt nýskriðin inn á „topp hundr- að listann" og þarf að hækka mig. En markmiðið er auðvit- að að komast á toppinn." Punktur. □ Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík sími: 39990 Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari, Ásta K. Árnadóttir. Elva B. Ævarsdóttir, Halla R. Ólafsdóttir. Þjáist þú af — vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka, gigt, tognun eða viltu bara grennast. Trimm-form getur hjálpað Bjóðum einn prufutíma VERÐ FRÁ 6000 KR. SNYRTISTOFU ARBÆJAR HRAUNBÆ 102 - SÍMI 68-93-10 HULDA HARSNYRTISTOFAN GRANDAVEGI 47 62 61 62 Hárgreiðslustofa * OPIÐ MANUD. - FOSTUD. KL. 9-18. LAUGARD. KL. 10-14. \§(W 13314 kunsl RAKARA- á HARqRfflSatSTDFA HVERFISGÖTU 62 101 REYKJAVlK l.TBL. 1994 VIKAN 37 BRIDDS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.