Vikan - 01.06.1994, Page 40
SJALRÆN SJONARMIÐ
JONA RUNA SKRIFAR UM SALRÆN SJONARMIÐ
STULKU
E
I inhverra hluta vegna
I missir sumt fólk tök á
Imataræði sínu og fer
að svelta sig til að fá ákveðið
útlit. Ástand þetta getur farið
út í sjúklega áráttu þegar
verst lætur. Við höfum flest
heyrt talað um lystarstol sem
er skelfilegur sjúkdómur.
Þessi óhuggulegi sjúkdómur
hefur lagst mjög þungt á við-
komandi fórnarlamb. Þau
eru oftar en ekki ungar,
greindar og viðkvæmar
stúlkur sem virðast a.m.k.
sumar vera haldnar einhvers
konar sjálfsútskúfun og mik-
illi þörf fyrir það að stjórna
sjálfar lífi sínu á þennan
undarlega máta, þótt fárán-
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt
dulnefni. Svörin byggjast
á innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður alls ekki hægt
að fá þau í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
legur virðist og engum til-
gangi þjóna öðrum en að
brjóta niður andlegt og lík-
amlegt þrek viðkomandi
fórnarlambs fæðuflóttans.
ÍO KÍLÓÁTVEIM
MÁNUÐUM
Læknisfræðin kallar þennan
sjúkdóm lystarstol en ég
kalla fyrirbærið lystarrof
eða fæðuflótta.Við gluggum
í bréf frá rúmlega sextán ára
stúlku sem segist vera miður
sín af flestum ástæðum,
ásamt því að vera jafnframt
með þennan sjúkdóm. „Fyr-
ir um það bil tveim árum
fór ég að taka upp á því að
svelta mig vegna þess að
mér þótti ég allt of feit. Ég
léttist um 1o kíló á tæpum
tveim mánuðum sem var
bara byrjunin á þessum
megrunarferli mínum sem
hefur dregið mikinn dilk
vandræða á eftir sér,“ segir
þessi hrygga stúlka sem kýs
að kalla sig Siggu.
SÉR ENGA LEIÐ ÚT ÚR
ÞESSU VÍTI
Hún er búin að leita eftir
læknisfræðilegum stuðningi
á vanda sínum og fengið þó-
nokkra hjálp ennþá er þó eitt
og annað að kvelja hana
sem hana langar til að ég
reyni að skoða dálítið í
gegnum mitt innsæi og\j
bregðast við ef hægt er. „Ég
hef verið mjög miður mín
núna í um hálft ár vegna
þess að ég sé enga leið út
úr þessu víti sem ég lifi í.
Ég er í skóla og
gengur það bara
vel þrátt fyrir að
ég hafi verið af
og til frá vegna
veikinda og þar
á meðal tvisvar á spítala.
Það eru mikil leiðindi sem
skapast hafa út af þessu
ömurlega ástandi á mér og
tengjast þessari þörf fyrir
að verða ennþá grennri en
ég er í raun,“ segir þessi ör-
væntingarfulla stúlka.
ÁFENGISVANDAMÁL
OG ERFIÐIR
FORELDRAR
„Foreldrar mínir eru bæði
alkóhólistar en hafa farið
inn og út af meðferðar-
stofnunum í langan tíma.
Við erum frekar efnuð og
gagnvart umheiminum er
allt látið líta út slétt og fellt
þótt allir séu upp á á móti
öllurn," segir Sigga og lýsir í
skrifum sínum mjög undar-
legum heimilisaðstæðum
þar sem nóg er af öllu nema
það virðist tilfinnanlega
skorta kærleika og um-
hyggju inn á heimilið. Hún á
tvö systkini sem bæði búa
heima eins og hún. Bróðir
hennar, segir hún, er á góðri
leið með það að feta sömu
refilstigu áfengisbölsins og
foreldarnir. Áfengið er átak-
anleg staðreynd í lífi þeirra
allra því miður.
ERFIÐLEIKAR VIÐ AÐ
OPNA SIG
Hún umgengst lítið sem ekk-
ert jafnaldra sína og hangir
mest með sjálfri sér, eins og
hún orðar það. Henni finnst
lifið lítils virði og hún aumust
og fráleitust allra sem ganga
um þessar mundir á guðs
grænni jörðinni. Hún nær
engu sambandi við foreldra
sína og treystir sér ekki til að
ræða vanda sinn við neinn.
Hún segist aldrei hafa opnað
sig eins ýtarlega eins og í
þessu
bréfi „Ég
hef mjög
gaman af
handa-
vinnu og
elska bíó-
myndir. Ég vona kæra
Jóna Rúna að þú aumkir
þig yfir mig og gefir mér,
eins og svo mörgum áður,
góð svör sem ég get notað
mér til að mér líði betur.
Hafðu það sem best og
takk fyrir öll skrifin sem ég
hef getað notað mér í Vik-
unni.“
FJÖLSKYLDUFJÖTRAR
ÁFENGISBÖLSINS
Vissulega er vandi á hönd-
um á þeim heimilum þar
sem áfengisáþján er í gangi
og nokkuð öruggt að það má
tengja ýmislegt af því sem
heimilisfastir eru að takast á
við og verður að teljast nei-
kvætt, einmitt við þennan
mikla og ömurlega skaðvald
sem óhófleg áfengisneysla
alltaf er. Það eru flóknir til-
finningalegir örðugleikar á
heimili þar sem aldrei er tek-
ist á við vandamál og engar
sterkar tilfinningar fá líf, m.a.
vegna þjálfunarleysis þeirra,
sem alast upp við áfengis-
bölið, í að takast á við raun-
verulegar og eðlilegar tilfinn-
ingar og ræða það sem af-
laga fer í samskiptunum.
Ruglið, sem skapast hjá
heimilisföstum, lýsir sér á
ýmsa vegu og tekur á sig
furðulegar myndir. Eilíf
spenna er í gangi sem allir
eru tilneyddir til að taka þátt í
sem búa á heimilinu.
ÓHEILLAVÆNLEG
MEINVÖRP
Eins og áður segir eru vand-
ræði f gangi þar sem áfeng-
isneysla foreldra stjórnar
gjörsamlega lífi barna þeirra
og ákvarðar alla þeirra tilvist.
Við erum þó lánsöm í öllu
áfengisfárinu að eiga kost á
að fá hjálp ef við kjósum það
sjálf og það gera sem betur
fer flestir á endanum, eins
og dæmin sanna. Líf okkar
er alls ekkert líf ef við förum í
gegnum það deyfð upp fyrir