Vikan - 01.06.1994, Blaðsíða 55
SJÚKRASKÓR, SÉRSTAKLEGA
MJÚKIR OG STÖÐUGIR.
EINNIG ÚRVAL AF STOÐ-
OG SJÚKRASOKKUM.
SJÚKRAVÖRUR HF
Verslunin Remedia
BORGARTÚIMI 20 REYKJAVÍK SÍMI 627511
FINNDU 6 VILLUR
BunjunAS Q0lu jn6u0| (>|>|0 J0 ueuo>j 'g }sÁ0jq jnjoq u!6uiqj!9 g
■jjS0A j uujiuo>| J0 uuunQBjAj > qsjnus jnjoq JBUunuo>| (Qjoq £ uuunjn|>j -e
•Qjjjoq J0 Q(QBqB|6nj z l!J jsjæj jnjaq uu|j|og j ubssocJ nj0 BpuÁuj j||jLU JB6ujjÁ0jg
STJÖRNUSPA
HRUTURINN
21. mars - 20. apríl
Breytingar á vinnustað verða
til þess að hreinsa andrúmsloftið sem
hefur verið svolítið þrúgandi að und-
anförnu. Flestum finnst þetta til bóta
og horfa björtum augum til framtíðar-
innar. Hvað ástarlífið varðar færð þú
áhuga á að ganga í augun á ákveð-
inni persónu. Þér fer samt best að
vera þú sjálfur.
NAUTID
21. apríl - 21. maí
Næstu daga skaltu reyna að
fá þér frí frá vinnu og hugsa um eitt-
hvað allt annað. Mikilvægari hlutir
verða að hafa forgang rétt um sinn.
Þú átt eftir að kynnast persónu sem á
eftir að breyta ýmsum fyrirætlunum
þínum og afstöðu þinni til margs sem
þú hefur hingað til litið á sem sjálf-
sagða hluti.
TVÍBURARNIR
22. maí - 22. júní
Þú ert ákveðinn í að Ijúka
verki sem þú hefur verið með á prjón-
unum um nokkurt skeið. Allt bendir til
þess að þér eigi eftir að takast að
komast betur frá þvi en þú reiknaðir
með. Júní verður mánuður hrifningar
og eftirtektar. Ástin á eftir að fá byr
undir báða vængi.
VOGIN
24. sept. - 23. október
Þú hefur mikla þörf fyrir að
víkka sjóndeildarhringinn og ert orð-
inn óþolinmóður að bíða eftir því að
eitthvað fari að gerast. Taktu þér tak
og reyndu þá að gera eitthvað sem
þú hefur ekki gert áður, - aldrei þorað
eða nennt. Tækifærin eru allt í kring-
um þig.
SPORÐDREKINN
24. október - 22. nóv.
( augnablikinu er heppnin allt
i kringum þig og allt virðist takast sem
þú tekur þér fyrir hendur. Slíkt verður
oft til þess að fólk sofnar á verðinum
og hættir að vera gagnrýnið á eigin
verk. Þú skalt því hafa vaðið fyrir neð-
an þig og gæta þess að gera þitt
besta á öllum sviðum.
BOGMAÐURINN
23. nóv. - 21. desember
Þú átt eftir að komast að
raun um að ekki eru allir jafn vamm-
lausir og þú. Þú skalt samt ekki taka
það of nærri þér þó að þú eigir eftir
að upplifa að ást og trúnaður eru ekki
alltaf endurgoldin. Þú átt líka eftir að
komast að því að ekki má alltaf taka
fagurgala annarra trúanlegan - að
viðhlæjendur eru ekki alltaf vinir.
KRABBINN
23. júní - 23. júlí
Ýmislegt virðist vera á seyði í
lífi þínu um þessa mundir. Það mun
birta upp hjá þér á fjármálasviðinu og
á það eftir að gera þér talsvert auð-
veldara fyrir á mörgum sviðum. Inn-
kaupalistinn verður að minnsta kosti
fjörlegri fyrsta kastið.
UÓNIÐ
24. júlí - 23. ágúst
Starfið á eftir að krefjast mik-
ils af þér á næstunni. Þér geðjast
ekkert að því í fyrstu en þú munt sjá
að þér er nauðugur einn kostur. Þú
skalt leggja þig fram og þú munt sjá
síðar að það borgar sig margfalt.
Hver veit nema þú eigir eftir að fá til-
boð í kjölfarið sem þú getur ekki hafn-
að.
STEINGEITIN
22. des. - 20. janúar
Loksins ertu búinn að ná því
marki sem þú settir þér. Nú getur þú
farið að taka lífinu með meiri ró og
hvíla þig áður en þú heldur áfram upp
á næsta þrep. Hvað varðar samband
þitt við annað fólk virðast ýmsar blikur
á lofti. Þú átt engu að síður að geta
haldið ró þinni.
VATNSBERINN
21. janúar -19. febrúar
Það eina sem þú gætir kvart-
að undan núna er að hafa ekki næg-
an tíma til að gera allt það sem þig
langar til og þyrftir að koma í verk. En
eins og þú veist er ekki við neinn að
sakast nema sjálfan þig í þessum
efnum. Það er kannski kominn tími til
þess fyrir þig að velta því fyrir þér
hvernig þú ætlar að verja lífi þínu
næstu árin.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Láttu ekki tímabundið mótlæti
slá þig út af laginu. Gefðu hinum já-
kvæðu hliðum í fari þínu lausan
tauminn, þú býrð nefnilega yfir gnótt
þeirra þótt þú hafir ekki orðið þess var
upp á síðkastið. Lífið er ævintýri ef þú
gætir þess að líta upp úr amstrinu
öðru hverju. Lifðu því og lærðu af
reynslunni.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Margt af því sem þú ert að
fást við um þessar mundir krefst fullr-
ar athygli þinnar og einbeitingar.
Engu að síður finnst þér þú vera í ein-
hverju tómarúmi sem þig langar að
fylla upp með gleði og góðum gjörð-
um. Minnkaðu við þig og gerðu helst
ekkert annað um sinn en það sem þú
hefur gaman af.
5. TBL. 1994 VIKAN 55
STJORNUSPA