Vikan - 01.06.1994, Qupperneq 48
FJÁRMÁL
Thelma Grímsdóttir
þjónustustjóri og
Kjartan Birgisson,
þjónustufulltrúi í
Landsbanka ís-
lands.
s
FJÖLSKYLDUNN
ER AÐALSMERKI VÖRÐUNNAR
Rekstur heimilis og fjöl-
skyldu er margslung-
inn, oft flókinn og
mætti vera hagkvæmari.
Fjármál geta nefnilega verið
undarlegt fyrirbæri. Vextir,
afborganir, kostnaður og
fleira getur reynst þungt á
metunum því safnast þegar
saman kemur. Það getur
líka verið pirrandi að bíða í
biðröð eftir að fá að borga á
réttum tíma. Þegar reikning-
arnir berast öllum um sama
leyti troðfyllast allir bankar.
Því leitast fjármálafyrirtæki
við að leysa vandamál af
þessum toga til að geta þjón-
ustað viðskiptavininn betur.
Blaöamaður Vikunnar heim-
sótti útibú Landsbankans í
Háskólabíói til þess að
skyggnast ofan í úrlausnar-
skjóðu starfsfólks bankans.
Fyrir svörum urðu þau
Thelma Grímsdóttir þjón-
ustustjóri og Kjartan Birgis-
son þjónustufulltrúi.
Thelma hefur starfað við
Vörðuna, víðtæka fjármála-
þjónustu, allt frá því að Varð-
an var fyrst sett á laggirnar
árið 1990. Fyrst einbeitti
bankinn sér að þjónustu við
eldri borgara, sem eru fjöl-
margir í Vesturbænum, og
hefur Thelma reynt að þjón-
usta viðskiptavini Vörðunnar
á sem persónulegastan hátt.
Hún grípur meira að segja
stundum með sér kvittanir
og aðra bankapappíra til að
gauka að tilteknum við-
skiptavinum sínum í heim-
leiðinni.
Og þar er lykilatriði Vörð-
unnar komið: Viðskiptavin-
um er veitt persónuleg þjón-
usta. Fyrirkomulagið hefur
reynst vel og nú á Varðan
erindi til fólks á öllum aldri.
„Reynslan hefur sýnt að mik-
il þörf er fyrir fjármálaþjón-
ustu af þessu tagi,“ segir
Kjartan.
Einn af burðarásum þjón-
ustunnar er svonefnd út-
gjaldadreifing. Þar hjálpast
þeir aö, viðskiptavinurinn og
bankinn, aö jafna greiðslu-
byrði þess fyrrnefnda yfir ár-
ið þannig að erfiðustu hjall-
arnir, sem yfirleitt eru um
svipað leyti árs, verði ekki
óyfirstíganlegir. Bankinn
mætir sveiflutoppunum og
viðskiptavinurinn borgar
sömu fjárhæð alla mánuði
ársins.
Þó geta þeir, sem vilja koma
í bankann, sótt kvittanir og
önnur fylgirit eftir eigin hent-
ugleikum. Vörðufélagar eru
ekki lengur bundnir af
ákveðnum dögum ársins.
Þjónusta eins og fjármála-
ráðgjöf er innifalin í árgjaldi
félaga í Vörðunni, gjald sem
er hverrar krónu virði. Það er
mikill kostur fyrir Vörðufélaga
að hafa aðgang að ráðgjöf-
inni því herfilegustu rembi-
hnúta fjármálanna má leysa
ef tekið er á þeim í tæka tíð.
Greiðsluþjónusta Vörð-
unnar felst í þvf að bankinn
fær senda reikninga við-
skiptavina sinna. Starfsmenn
bankans sjá síðan um að all-
ir standi í skilum, að því til-
skyldu að innistæða sé á
reikningi viðkomandi.
Greiðsluþjónusta, út-
gjaldadreifing og beingreiðsl-
ur eru til þess fallnar að
draga úr biðröðum í bönkum
á álagstímum og á þennan
hátt geta sumir jafnvel slopp-
ið alfarið við ferðir í bankann.
„Fjármálaþjónninn“ sér um
að allt gangi nú snurðulaust
fyrir sig.
Allir félagar Vörðunnar
geta fengið gerða fyrir sig
greiðsluáætlun til árs í senn.
Þeir fá einnig vandaða
möppu með flokkunarspjöld-
um fyrir tekjur, gjöld, yfirlit og
annað. Og fjölmargt mætti
telja fleira sem félögum
áskotnast. Þess ber að geta
hér að eldri borgurum verður
auðvitað sinnt áfram eins og
áður. Varðan hentar þar af
leiðandi öllum sem hafa með
höndum rekstur heimilis og
vilja hafa góða yfirsýn yfir
fjármál þess. „Fólk getur hik-
laust treyst á Vörðuna til að
visa sér leiðina í fjármálun-
um,“ segja þau Thelma
Grímsdóttir og Kjartan Birg-
isson. □
48 VIKAN 5. TBL. 1994