Vikan - 20.12.1995, Blaðsíða 7
eöa klára mjólkina í ísskápnum. Nonni tók þá
alla á sig til aö vernda mig, jafnvel
þótt hann heföi ekki einu sinni
veriö í bænum þegar skemmd-
arverkin voru framin."
Þótt bræðurnir séu ólíkir
aö eðlisfari hefur þeim alltaf
komiö vel saman. Steingrímur
man aöeins eftir því aö þeir hafi
slegist einu sinni.
„Ég sigraöi meö því aö hoppa ofan á Nonna og
sitja þar sem fastast. Ég var dálítið feitur svo ég átti auö-
velt meö þaö. Ég man hins vegar ekki út af hverju viö
slógumst.“
Þeir kusu fremur aö kjafta sig út úr vandræðunum en
aö nota hnefana. Steingrímur viöurkennir aö hafa stund-
um skammast sín fyrir bróöur sinn og þá fyrir sérkenni-
legt fataval. Jón býr þó yfir eiginleika sem Steingrímur
vildi gjarnan búa yfir: „Hann kann aö fara með peninga.
Ég öfundaöi hann alltaf mikiö af því þegar viö vorum
yngri. Hann gat alltaf keypt sér nýjustu
plöturnar. Þótt viö hittumst ekki oft
núoröiö gætum viö þess ennþá aö
kaupa ekki sömu plöturnar. Nonni
var snemma góöur tónlistarmaöur
og mér fannst mjög gaman þegar
hann spilaöi fyrir mig. Ástæöan fyrir
því aö ég hélt ekki áfram í píanó-
náminu var sú aö ég sá aö ég yrði
aldrei jafn góöur og Nonni. Ég nennti
heldur ekki aö læra aö leika eftir nótum
og lék þess í staö eftir eyranu. Þaö komst
upp einn daginn þegar kennarinn lét mig leika
óundirbúiö í einum timanum.“
Steingrímur
stundaöi líka um
nokkurra vikna skeiö
munnhörpunám og
kann í dag aöeins aö
spila eitt lag en þaö er Ðe
Lónlí Blú Bojslagið
„Mamma grét".
„Þrátt fyrir aö Nonna hafi
vegnaö betur í tónlistinni afrek-
aöi ég þó aö veröa fyrri til aö
semja lag og heitir það „Gul
glerbrot". Hann á örugglega bágt
meö aö fyrirgefa mér þaö," segir
Steingrímur kotroskinn.
Stundum liöur langt á milli þess
aö bræöurnir hittist, enda vinnutím-
arnir ólíkir. Þeir eru báöir fjölskyldu-
menn. Jón og kona hans, Sjöfn
Kjartansdóttir, eiga tvær dætur og
Steingrímur á eina dóttur meö konu
sinni, Lindu Sif Þorláksdóttur.
„Viö höfum líka báöir veriö i námi er-
lendis og svo vinnum viö meira en góöu
hófi gegnir," segir Jón og Steingrímur bætir
viö: „Þaö er þó leitun á jafn nánum bræörum
sem hittast jafn sjaldan og viö. Þegar viö liitt-
umst er alltaf eins og viö höfum síöast sést
daginn áöur."
V? TBl. 199.S VIKAN 7
BERNSKUMINNINGAR