Vikan - 20.12.1995, Blaðsíða 19
FRH. AF BLS. 10
heyra hvatningarorðin. Um
kvöldið var salurinn orðinn
fullsetinn, þ.e. um 500
manns, og mikil stemning.
Þá eru stöðurnar endurtekn-
ar og mér fannst það auð-
veldara en um morguninn.
Mér fannst líka eins og eitt-
hvað gerðist f líkamanum yfir
daginn og það er einmitt
galdurinn við vaxtarræktar-
mótin. Með því að drekka
nánast ekkert vatn og taka
inn kalíumtöflur hverfur allur
vökvi undan húðinni og fer
inn í vöðvana þannig að þeir
tútna betur út. Mörgum finnst
vaxtarræktarfólk hálf óhugn-
anlegt að sjá en ég get
huggað það með því að við
lítum ekki svona út nema rétt
í kringum keppnirnar. Um
leið og maður slakar á mat-
aræðinu aftur breytist útlitið.
Ég bætti t.d. á mig þremur
kílóum vikuna eftir mótið.
Þar munar mikið um vökv-
ann, þegar hann verður aftur
eðlilegur. Við Bárður fórum í
nokkurra daga ferð til New-
castle og leyfðum okkur
munað í mataræði eftir allt
erfiðið. Hann var líka að
keppa í fyrsta sinn í vaxtar-
rækt og lenti í þriðja sæti í
mínus 80 kílóa flokki."
-Keppendur í vaxtarrækt
eru mjög brúnir á hörund.
Fórstu í Ijós?
„Já, ég gerði það nokkrum
sinnum en tveimur dögum
fyrir mótið bar ég á mig
brúnkukrem. Ég er Ijós á
hörund og þurfti að setja á
mig fimm umferðir af krem-
inu. f byrjun keppnisdagsins
bera allir á sig sérstakt krem,
sem er eins og meik með
glansáferð, og sumir setja
líka á sig olíu til að ná fram
meiri glans. Ég gerði það
ekki,“ segir Nína og dregur
upp skyrtuna til að sýna mér
hvernig brúni liturinn er að
hverfa af hörundinu.
-Það vakti athygli hvað þú
hefur stór brjóst. Eru þau
ekta?
„Já, ég hef alltaf haft stór
brjóst og leið fyrir það sem
unglingur," segir Nína og
hlær en augsýnilegt er að
hún er ekki óvön spurning-
unni. „Fólk hefði átt að sjá
brjóstin á mér áður en ég
byrjaði að undirbúa vaxtar-
ræktarmótið. Þau minnkuðu
talsvert við undirbúninginn
því hluti af brjóstum er fita.
Ég vona að ég haldi líkam-
legri samsvörun þó að ég
haldi áfram í vaxtarrækt. Mér
finnst mikilvægt að vaxtar-
ræktarkonur glati ekki kven-
legum línum."
-Ætlarðu að taka þátt í
mótinu næsta ár?
„Já, óg stefni að því. Ég
ætla að reyna að halda mér f
63 til 65 kílóum þangað til ég
byrja að skera niður næst.
Þá næ ég vonandi betri
skurði, það verður auðveld-
ara eftir því sem maður gerir
það oftar. Fitan situr þá ekki
eins fast á manni. Ég vona
að fleiri konur taki þátt í
næsta móti. Þær ættu bara
að prófa. Þetta er meiriháttar
skemmtilegt, manni líður líka
svo vel þegar maður losnar
við fituna af líkamanum,"
segir Nína hressilega með
hvatningartóni í röddinni.
Fyrir tveimur árum var
Nína atvinnulaus og ákvað
að láta drauminn um að læra
hárgreiðslu rætast. Hún sett-
ist í Iðnskóla Hafnarfjarðar
og sl. haust komst hún á
samning á hárgreiðslustof-
unni Bylgjunni í Kópavogi.
Þar vinnur hún frá kl. tíu á
morgnana til sex á kvöldin
og fer síðan beint í Lækjar-
þrek þar sem hún æfir í einn
til tvo tíma.
„Gréta Stína nær í Rakel á
leikskólann og fer með hana
heim. Ég gæti ekki stundað
æfingarnar ef hún væri ekki
svona hjálpleg. í rauninni líta
dætur mínar á æfingarnar
sem hluta af vinnu minni.
Sjálfar æfa þær fimleika og
Gréta Stfna stundar hesta-
mennsku. Hún var svo
spennt meðan á mótinu stóð
og ætlaði að rifna af stolti
þegar úrslitin í mótinu lágu
fyrir,“ segir Nína og er ekki
minna stolt af dóttur sinni. □
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
MMRA- V- HfcG&mmofA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK
ANDLITSBÖÐ, HÚÐHREINSUN, LITUN,
FÓTSNYRTING, HANDSNYRTING,
DAG- OG KVÖLDSNYRTING,
VAXMEÐFERÐ (NÁTTÚRULEGT VAX)
Varanleg eyðing hára og háræðaslits
með Sylvia Lewis rafmagnsmeðferðinni
Snyrtistofan Sírnnd
snyrting • versíun • íjós
Qrænatúni 1 • 200 2(ópavogur • Sími 554 4025
HÁR-\\
TÍSKANW
Dalshrauni 13 - 220 Hafnarfirði - Sími 555 0507
C/Óós^
Snyrtistofa &
snyrtivöruverslun
Engihjalla 8
(hús Kaupgarðs) Andlitsbab kr. 2.500,-
200 Kópavogi Hand- og fótsnyrting kr. 3.000,-
Sími 554 0744 Litun og plokkun kr. 990,-
Katrín Karlsdóttir fótaabgerða- og snyrtifræbingur
HÁRSNYRTISTOFAN
Opib:
mán.-fös.
kl. 10.00-18.30
Laugardaga:
kl. 10.00-16.00
Hausttilbob:
GRANDAVEGI 47 <þ 562 6162
12. TBL. 1995 VIKAN 19
VIÐSKIPTAKORT