Vikan - 20.12.1995, Blaðsíða 61
KYNÞOt
„nAtttt llt 21U3
ZZQLt
Qiilrrlíil 'JiA
^iJí^i'JJO ii^íJLlZiiAZ
Antonio Banderas er
ein skærasta stjarn-
an í bandaríska kvik-
myndaheiminum um þessar
mundir. Hann þykir ekki bara
fallegur maöur meö engils-
ásjónu heldur líka kynþokka-
fyllri en flestir aörir menn.
Hann sló fyrst í gegn í mynd-
inni Mambo Kings fyrir rúm-
um þremur árum og síðan
hefur ferill hans veriö upp á
viö. Á þessum stutta tíma
hefur hann leikið á mótir
stórleikurum eins og Meryl
Streep í Húsi andanna, Brad
Pitt og Tom Cruise í Inter-
view with a Vampire og Miu
Farrow og Söru Jessicu
Parker í Miami Rhapsody.
Nú koma myndirnar hver á
fætur annarri og ein þeirra,
Desperado, veröur frumsýnd
í Stjörnubíói í nóvember. Þar
leikur hann mexíkóskan ein-
fara og farandsöngvara í
miklum hefndarhug. Önnur
mynd „Two much“ verður
einnig sýnd í Stjörnubíói inn-
an tíðar en þar leikur Band-
eras á móti núverandi kær-
ustu sinni Melanie Griffith.
Antonio Banderas er
Spánverji og ólst upp í borg-
inni Malaga á suður Spáni,
heimabæ Picasso. Faðir
hans var lögreglumaöur og
móðirin kennari og hvorugt
þeirra skildi hvað Antonio
var að fara þegar hann til-
kynnti þeim fjórtán ára gam-
all að hann ætlaði að verða
leikari. Allt frá því hann fór í
fyrsta sinn í leikhús vissi
hann að hann vildi helga líf
sitt leiklistinni. „Þetta varð
næstum eins og trúaratriði
hjá mér,“ segir Banderas.
„Ég get enn fundið lyktina
sem var í gamla leikhúsinu
þar sem ég sá mitt fyrsta
leikrit. Það var gömul, forn-
eskjuleg og djúp lykt sem
greypti sig inn í hugarskot
rnitt."
Foreldrar hans leyfðu hon-
um með semingi að innritast
í leiklistarskóla með því skil-
yrði að hann lærði
líka að verða
kennari. Það nám
fór út um þúfur því
leiklistin átti hug
hans allan. Hann
tók þátt í söngleikj-
um, Shakespeare
leikritum, grískum
harmleikjum og
spænskum försum. Á
sumrin setti hann upp
leikrit sjálfur með styrk
frá greifynju í grenndinni
(„ég daðraði svolitið við
hana" segir Banderas) og
ferðaðist um nágrannahér-
uðin með leikflokkinn.
Banderas flutti til Madrid
þegar hann var átján ára
gamall. Hann hafði framan
af svolitla ímugust á kvik-
myndum en fannst leikhúsin
vera alvöru leiklist. En eftir
þriggja ára púl við að þjóna
til borðs á veitingahúsum, af-
greiða í súpermörkuðum og
leika í tilraunaleikhúsum
sem gáfu engan pening í
aðra hönd hafði andúð hans
á kvikmyndum minnkað.
Hann lék í sinni fyrstu mynd
undir stjórn Almodóvar, La-
byrinth of Passion, árið 1982
og það samstarf entist í tíu
ár. Að þeim tíma liðnum var
Banderas orðinn fremsti
kvikmyndaleikari Spánverja.
Og þar með kveikti Holly-
wood á perunni.
En það er ekki einungis
frami Antonios Banderas
sem allra augu beinast
að um þessar mundir
heldur er einkalíf hans
undir smásjá hjá þeim
sem fylgjast á annað
borð með kvikmynda-
heiminum. Hann er
ekki enn skilinn við
eiginkonu sína,
spænsku leikkon-
una Ana Leza, en
þegar hann er
spurður að því
hvort ekki væri
við hæfi að vera
ekki mikið í
KVIKMYNDIR