Vikan - 20.12.1995, Page 37
TEXTI: ÓLAFUR SIGURÐSSON
TÖFRAR DISNEYS - NÚ Á MYNDBANM
FRUMHERJINN
Frá því aö Mjallhvít og
dvergarnir sjö var
frumsýnd 1935 hafa
Disney teiknimyndirnar ööl-
ast verðugan sess í kvik-
myndasögunni fyrir listrænt
gildi og ævintýraljóma sem
hafa síöan heillaö kynslóð-
irnar.
Svona hefur þetta verið,
allt frá teiknimyndinni um
Mjallhvít og til mynda eins
og Konungur Ijónanna þar
sem tölvutækni er beitt til að
gefa teikningunum nýjan
blæ.
Ákafi Walt Disneys var
slíkur aö ekkert var til spar-
að, ekki einu sinni í minnstu
smáatriðunum. Við gerð
Mjallhvítar var bókstaflega
allt lagt undir. Þá töldu menn
( iðnaðinum að maðurinn
væri orðinn vitlaus að gera
teiknimynd í fullri lengd, fyrir
börn og fullorðna líka! Nú er
teiknimyndagerð orðinn við-
urkennd listgrein, þökk sé
Mjallhvíti.
Það var ekki aðeins mynd-
irnar sem voru listaverk
heldur var Disney brautryðj-
andi í að þróa fjölrása hljóð-
rás fyrir Fantasíu (1940).
Hljóðkerfið nefndist „Fanta-
sound" og byggðist upp á
hægri og vinstri hljóðrás en
að auki var miðjuhátalara
bætt við sem og hátölurum
sem staðsettir voru meðfram
veggjum í kvikmyndasalnum
og áttu þeir að gefa meiri
vídd í hljóðið. Stokowski (þá
heimsfrægur tónlistarstjórn-
andi) sá um upptöku og
stjórnun á tónlistinni og þró-
aði Fantasound með Disney
sjálfum. Þeir, sem hlustuðu á
þessa útgáfu í kvikmynda-
húsunum á þeim tíma, áttu
ekki orð yfir hversu stórkost-
leg upplifun þetta væri.
Á fyrirlestri sem Vikan sótti
í London hjá lon Allen (en
hann þróaði Dolby hljóðkerf-
ið ásamt Ray Dolby) greindi
hann frá því að steríó hefði
ekki orðið almennt í kvik-
myndahúsum fyrr en á
seinni hluta níunda áratugar-
ins og í upphafi þess áttunda
voru flestar myndir með
mono hljóðrás og á sama
tíðnisviði og heyrist í símtól-
um. Fantasoundkerfið var
því áratugum á undan sinni
samtíð. Reyndin varð hins-
vegar sú að kostnaðurinn við
Gosi: Vel-
komin í æv-
intýraheim
Disneys.
Hvaöa barn
getur staö-
ist slíkt
boö?
12. TBL. 1995 VIKAN 37