Vikan


Vikan - 20.08.1998, Page 10

Vikan - 20.08.1998, Page 10
Þórunn Stefánsdóttir þýddi og staðfærði MIKILVÆG Þegar þú getur ekki hugsað þér að fara í veisluna sem þér er boðið í, þegar þig langar alls ekki að hitta vini þína og getur ekki hugsað þá hugsun til enda að þurfa að fara í vinnuna skaltu draga þig í hlé frá skarkala lífsins. Tímann getur þú notað til hvers sem er, eða einfaldlega látið það eftir þér að liggja undir sæng og gera bara ekki neitt nema að leyfa hugsunum að streyma. / Ihraða nútímans verðum við fyrir áreiti frá því við vöknum á morgnana og þangað til við förum að sofa. Margir líta á það sem merki um velgengni að hafa mikið að gera, geta fyllt dagbókina með fundarboðum og stefnu- mótum, mæta á alla þá staði þar sem fólk kemur saman til að sýna sig og sjá aðra. Að vera með. En það er nauð- synlegt að taka sig stundum „úr sambandi”, slaka á og beina athyglinni að því sem gerist innra með manni. I stað þess að rembast við að taka þátt í öllu og vera alls staðar er stundum gott að vera heima, láta þreytuna fjara út og rósemina taka yf- irhöndina. Standast freisting- una að rífa upp símtólið eða hlaupa út um dyrnar. Slíkar einverustundir eru græðandi fyrir sálina og geta smám saman orðið vanabindandi. Einverustundirnar þurfa ekki að vera langar, sumum nægja 10-15 mínútur, aðrir þurfa lengri tíma. Sumir vakna á undan öðrum í fjöl- skyldunni og drekka morgun- kaffið einir, í ró og næði, aðr- ir nota tímann seint á kvöldin eða fara einir út að ganga í há- deginu. Það gildir einu hvar og hvenær ein- verustundin er tekin og hvernig hún er, bara ef hún gefur okkur tírna til að hvfla hugann. Eg þekki konu sem geymir alltaf nokkra daga af sumarfríinu sinu og nýtur þeirra meðan myrkrið og skammdegið herja á. Hún er rúmlega fer- tug, er deildarstjóri í stóru fyrirtæki og vinnur undir miklu álagi. „Þessa vetrarfrí- daga nota ég til að hlaða raf- hlöðurnar upp á nýtt. Ég hef það fyrir reglu að stilla vekjaraklukkuna, bara til þess að njóta augnabliks- ins þegar ég man að ég þarf ekki að fara í vinnuna og get sofnað aftur. Upplifa það að þurfa ekki að fara á fætur, láta renna í baðið, þvo hárið, blása það, bursta tennurnar, mála mig, stimpla mig inn í vinnuna á réttum tíma og standa á haus í verkefnum næstu átta tímana.... Stund- um klæði ég mig ekki, hef bækistöð í rúminu, fer bara fram úr til að fá mér kaffi og eitthvað að borða. Á þessum frídögum gleymi ég öllu sem bíður eftir mér á skrifborðinu og þegar ég kem til baka næsta dag er ég tilbúin til að ráðast í verkefnin.” Önnur kona rifjar upp hvernig hún lærði að meta einverustundirnar. „Ég var ein af þeim sem átti vont með að vera ein, er mikil hópsál og vil hafa sem flesta í kring- um mig. Þegar ég gekk með fyrsta barnið mitt gekk með- gangan illa og læknirinn minn sagði mér að hafa hægt um mig. Ég eyddi mörgum stund- um uppi í sófa, lá og horfði á snjókornin falla fyrir utan stofugluggann. Og allt í einu EINVERAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.