Vikan - 20.08.1998, Qupperneq 28
Þú vilt vera
gyðja og
drottna yfir:
a) fljótum og ám
b) eldinum
c) fuglunum
d) fjöllunum
e) gyðjum og guðum
f) geðsjúklingum
20)aP|? 'an9ar
a) svíkja undan skatti
b) aka yfir á rauðu ljósi
c) halda fram hjá
d) stelast úr vinnunni
e) fara á útsölu
f) garga á hljómleikum
til
Þig langar í:
a) fleiri ástarævintýri
b) sumarbústað
c) tómstundanámskeið
d) ferð með geimskutlunni
e) málaskóla
f) líkamsrækt
Á unga aldri
varstu hrifnust
af:
a) ævintýrabókum
b) teiknimyndasögum
c) ástarsögum
d) vísindaskáldskap
e) leynilögreglusögum
f) sagnfræðilegum skáld-
sögum
Þú gætir hugs-
að þér ársdvöl:
a) á nektarnýlendu
b) á Hornströndum
c) í klaustri
d) í MIR geimstöðinni
e) á olíuborpalli
f) á baðherberginu þínu
Nú leggurðu saman fjölda k
anna annars vegar og f-anna
hins vegar og dregur síðan
lægri töluna frá þeirri hærri.
Þá kemstu að raun um hvort
þú ert klettur eða fiðrildi.
F-in eru 8 eða fleiri.
ÞÚ VILT MEÐ ÁNÆGJU
HEFJA NÝTT LÍF.
M ert algert fiðrildi. M veist að
allt er hverfult og öllum hollt að
endumýja líf sitt. M ert mjög
forvitin, og jafnframt læt-
urðu þér annt um annað
fólk. Því knýrðu alls staðar
dyra. Þú ert sannfærð um
að breytingar séutilgóðs. M
lætur heillast af úthafinu, fram-
andi löndum og englasöng úr
fjarska. En jafnframt læturðu
auðveldlega blekkjast. Þú heldur
að þú getir stokkið hvert sem er
og ætíð komið niður á fætuma
eins og köttur.
En stundum færðu skell og
haltrar um stund. Þá ályktar
þú að fall sé fararheill og
heldur hoppinu áfram.
GÆTTU AÐ ÞVf AÐ
STÆRSTU VANDAMÁLIN
FYLGJA ÞÉR HVERT SEM ER.
F-in eru 3-8 eða fleiri.
ÞÚ GÆTIR HUGSAÐ ÞÉR AÐ
BREYTATIL.
Stundum líturðu í átt að sjón
deildarhringnum og hugsar:
Þarna á ég heima, þangað vil
ég fara. Svona læturðu hugann
reika. Því þú ert stöðugt að
láta þig dreyma um að vonir
þínar rætist. Þegar eitthvað
gengur illa, hvort sem þú eða
aðrir eiga sök á því, þá langar
þig skyndilega til að koma þér
burt, hvað sem það kostar. En
raunin er sú að þú lætur sjaldn-
ast verða af því. Fólki finnst
þú hálfgerð gufa, en í reynd
ertu hvatvís, viðkvæm og með
mikið ímyndunarafl. Þig skort-
ir raunsæi og slærð ákvörðun-
um á frest.
GÆTTU AÐ ÞVI AÐ GEÐ-
ÞÓTTAÁKVARÐANIR GETA
GERT ÞIG STEFNULAUSA
Munurinn á fjöfda F-a og K-a
er minni en 3.
ÞAÐ FER EFTIR ÝMSU
Þótt þú hlaupir einstaka sinn-
um út undan þér, kemur þú
alltaf niður á báða fætur.
Þú treystir fólki, einkum ást-
vinum þínum. Það þarf eitt-
hvað mjög mikið að gerast til
að þú snúir baki við þeim og
látir það lönd og leið sem þú
hefur byggt upp. Þótt þú lendir
í algeru öngstræti, snýrðu ekki
við fyrr en eftir nokkra hringi.
Þér þykir gaman að leita ráða
hjá öðrum. Sumir færa það sér
í nyt. Öllum finnst þú vera al-
gjör vindhæna í ákvarðanatök-
um.
GRÍPTU GÆSINA MEÐAN
HÚN GEFST.
K-in eru 3-8 eða fleiri.
NEI, ÉG HELD VARLA.
Stundum langar þig til að
segja öllum að fara til fjandans
og gefa fjölskylduna, starfið og
ástina upp á bátinn. En á síð-
ustu stundu reynist ábyrgðar-
tilfinning þín yfirsterkari. Þú
ert líka feimin að eðlisfari. Þú
hefur sjaldan frumkvæði að því
að slíta samböndum. Þegar
aðrir gera það skilurðu ekki
hvað þeim gengur til. Þetta
hryggir þig, en svo bíturðu á
jaxlinn. Sumum finnst þú vera
rola, en þú ert í rauninni gætin
og yfirveguð. Reynsla þín er
þess eðlis að þú veist ætíð hvað
þú hefur en aldrei hvað þú
gætir öðlast. Þú þolir ekki að
þér sé komið óþægilega á
óvart.
Þú vilt bæta umhverfi þitt, en
ekki kanna ókunn lönd.
EF ÞÚ FORÐAST AÐ TAKA
ÁKVARÐANIR, MUNU AÐR-
IR RÁÐSKAST MEÐ ÞIG.
K-in eru 8 fleiri en F-in.
Þú ert algjör klettur. Það
stafar bæði af uppeldi þínu og
eðlisfari. Allir geta treyst þér.
Þeir láta sífellt á það reyna, og
þér líkar það vel. Þú felur við-
kvæmni þína og efasemdir bak
við þykkan skráp. Stundum
óskar þú þess að þú hefðir ver-
ið uppi á minni umbrotatím-
um. Hvaða tilgangi þjóna
breytingar? Til hvers að gera
sömu vitleysurnar upp á nýtt?
Þar með er ekki sagt að þú sért
afturhaldssöm. En þú hefur trú
á því sem hefur sannað gildi
sitt. Þú gefur öðrum allt það
besta af sjálfri þér.
KYRRSTAÐA LEIÐIR
SJALDNAST TIL HAMINGJ-
UNNAR.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
a ff f bb b ff b bb f f kk k k f f k f f
b bb f b ff b ff bb f kk f ff kk kk k f
c b b bb b ff ff ff kk f k f f k k
d bb f bb f b b ff ff ff k f k ff ff ff ff f
e f ff b f b f f b k ff b ff k k kk k kk f f
f ff bb f b f bb bb ff bb b f f kk kk f k k ff ff kk kk kk