Vikan - 03.09.1998, Síða 4
le&andi...
Dag einn, þegar ég gekk yfir Lækjar-
torg í frekar þungum þönkum, mætti
mér þjóðkunnur maður sem heilsaði
svo innilega og fallega, og hafði í kring-
um sig einhverja áru eða töfra, að það
fékk mig til að brosa út að eyrum og
svífa í gegnum miðbæinn. Þetta minnti
mig á kveðju sem ég fékk einu sinni
þegar ég á unglingsaldri var á rölti meðfram Tjörninni; kunnur maður bauð góðan
daginn af svo mikilli kurteisi og gleði að ég man það enn. Það var eins og þeir tímar
væru komnir aftur þegar siður var að bjóða vegfarendum góðan dag og herrarnir tóku
ofan hattinn. Slíkar kveðjur geta auðveldlega breytt rigningu í sól í sinni.
Hvernig stendur á því að sumt fólk býr yfir slíkum töfrum? Vikan fékk nokkrar kon-
ur til að spá í þessi mál og velja 40 herra sem eru frægir fyrir fallega framkomu. Þeir
birtast í þessari Viku. Sem betur fer er þessi hópur svo stór að færri komust að en við
vildum. Fjölmargir hafa það nefnilega í sér að heilla konur upp úr skónum með fram-
komunni einni saman. Svo eru aðrir sem spúa eldi og brennisteini í kringum sig með
fruntalegri framkomu, troða sér fram fyrir í biðröðinni, með rassboruna upp úr buxun-
um - en þá lítur maður undan og flettir tímariti til að komast í gott skap aftur.
Ykkur lesendur góðir er velkomið að taka þátt í þessu vali með því að bæta á listann
mönnum sem þið teljið vera þekkta fyrir fallega framkomu, því maður er manns gam-
an. Hafið endilega samband; með því að skrifa, slá á þráðinn eða senda tölvupóst. Já,
og munið líka að skrifa mér nokkrar línur ef þið viljið fá ókeypis lestur frá Rúnameist-
ara Vikunnar (bls. 47). Þetta er nýtt og það verður gaman að sjá hver áhugi ykkar
verður.
Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að Marenza Poulsen, veitingastjóri og lista-
kokkur hefur slegist í lið með okkur Vikukonum og verður hún með fasta matarþætti
frá og með þessu tölublaði. Hún ætlar að vera í takt við árstíðina, bjóða upp á spenn-
andi rétti sem allir ættu að geta útbúið og gleðja þannig bragðlaukana og budduna.
Marenza hefur líka fallist ljúflega á það að vera með hugmynd að borðskreytingu í
hverju blaði. Að þessu sinni gefur að líta litríka appelsínuskreytingu og fleira fallegt
(bls.31-33).
Njóttu Vikunnar
Sigríður Arnardóttir ritstjóri
Seljavegur 2,
Sími: 515 5500
Fax: 515 5599
Stjórnarformaður
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjóri
Steinar J. Lúðvíksson
Sími: 515 5515
Framkvæmdarstjóri
Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512
Ritstjóri
Sigríður Arnardóttir
Sími: 515 5582
Vikan@frodi.is
Ritstjóraf ulltrúi
Anna Kristine Magnúsdóttir
Sími: 515 5637
Anna@frodi.is
Blaðamaður
Þórunn Stefánsdóttir
Sími: 515 5653
Thorunn@frodi.is
Auglýsingastjóri
Björg Þórðardóttir
Sími: 515 5628
Vikanaugl@frodi.is
Ljósmyndarar
Bragi Þór Jósefsson
Gísli Egill Hrafnsson
Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Ivan burkni
útlitsteiknari
Grafískir hönnuðir
Ivan Burkni ivansson
Ómar Örn Sigurðsson
Verð í lausasölu
Kr. 399,-.
Verð í áskrift
Kr. 329,-. Pr eintak
Ef greitt er með greiðslukorti
Kr. 297,-. Pr eintak
Unnið í Prentsmiðjunni Odda
hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir
Áskriftarsími:
515 5555