Vikan - 03.09.1998, Page 12
Umsjón: Þórunn Stefánsdóttir
Myndir: Gísli Egill Hrafnsson
Förðun: Erla Björk Stefánsdóttir, förðunar-
meistari hjá Face Stockholm. Laugavegi.
Jakkinn fæst í versluninni Hjá Hrafnhildi,
Engjateigi 5.
ú var tíðin að það hefði
verið óhugsandi að
mæðgur klæddust sömu
fötunum. Mamman var í
praktískum Hagkaupssiopp heima
við húsverkin, dóttirin klæddi sig
nákvæmlega eins og vinkonurnar.
í dag er hinsvegar ekki óalgengt
að mæðgur gangi í fataskápinn
hvor hjá annarri og skiptist á föt-
um. Við fórum í verslunina Hjá
Hrafnhildi og fengum lánaða tvo
sams konar svarta jakka, síða og
þrönga í mittið. Það snið eigum
við eftir að sjá mikið í tískuversl-
ununum í vetur. Síðan heimsóttum
við mæðgurnar Elínu Eyjólfsdóttur
og Soffíu Hreinsdóttur og afhent-
um þeim sinn hvern jakkann. Við
báðum þær að velja úr fataskáp
sínum föt sem þær myndu nota við
jakkann til að kanna hvort 20 ára
aldursmunur þeirra kæmi fram í
ólíkum smekk. Og viti menn: Ald-
ursmunurinn kom ekki í Ijós, þær
reyndust hafa sama stfl, mamman
og dóttirin.
12