Vikan - 03.09.1998, Qupperneq 29
Kennir konum um allt
land að mála og föndra
Liturinn er borinn á með því að þrýsta penslinum
inn í mynstrið í skapalóninu. Helga notar ekta
skapalónslit úr olíu þegar hún málar útlínurnar.
Það er ekki ofsögum sagt af ís-
lenskum konum. Fyrir nú utan
það að vera taldar fallegustu kon-
ur í heimi eru þær margar ótrú-
lega lagnar í höndunum og sitja
oft heima og búa til undurfallega
hluti. Ein þessara kvenna er Helga Kristjánsdóttir
sem býr að Dalseli 29 í Reykjavík. „Það er alltaf
verið að hvetja mig til að nota hæfileika mína mér
til framdráttar, en ég segi nú alltaf að ég sé ekkert
öðruvísi og flinkari en þúsundir kvenna sem eru
að gera eitthvað skemmtilegt heima hjá sér. Ég
geri þessi hluti mína aðallega að gamni mínu og
nota þá til tækifærisgjafa.“ Þrátt fyrir þessa
hæversku Helgu eru margar konur um land allt
sem þekkja til hennar. Hún hefur nefnilega ferð-
ast um landið og kennt konum að mála og föndra.
Einnig hefur hún tekið að sér að skreyta sali fyrir
brúðkaupsveislur. „Jú, það er rétt, ég hef haldið
námskeið, aðallega úti á landi. Þá kem ég með
föndurvörur og liti. Ég hef aðallega verið að
kenna hvernig hægt sé að taka nýja hluti úr við og
gera þá sem ævagamla. Einnig hef ég gert mikið af
því að mála á veggi eftir mynstrum af tilbúnum
skapalónum. Það er mjög mikið um það að fólk
vilji skreyta híbýli sín með máluðu mynstri á vegg-
ina. Það hafa lengi verið á markaðnum mynstrað-
ir límborðar, en þeir vilja flagna af, sérstaklega á
baðherbergjum. Margir eru hræddir við að prófa
að mála mynstrin sjálfir og ég hef gert svolítið af
því að fara í hús og aðstoða fólk og jafnvel tekið
að mér málninguna.
Við báðum Helgu að sýna okkur réttu hand-
brögðin við að mála fallega mynsturborða á veggi
og ýmsa hluti eftir skapalóni. Hún segir að það sé
auðvelt, aðalgaldurinn sé að nota ekki of mikla
málningu, þá vilji hún leka og þá sé gamanið úti.
„Til eru sérstakir litir, bæði olíu- og vatnslitir, sem
eru hentugastir í þessu tilfelli. Annars er hægt að
nota venjulega málningu en þar sem hún er þynnri
en litirnir verður að gæta meiri varúðar að nota
ekki of mikið í pensilinn. Einnig er hentugast að
nota sérstaka pensla sem fást í föndurverslunum."
Helga er búin að líma skapalónið á vegginn og
hefur starfið, vopnu réttu penslunum.
Skapalón eða stenslar í öllum stærum og gerðum.
Réttu litirnir og penslanir frá FolkArt.
29