Vikan


Vikan - 17.09.1998, Qupperneq 8

Vikan - 17.09.1998, Qupperneq 8
500 kíló eiga að fjúka fyrir jól! um lífsstíl Þegar þau hittust fyrst var sameiginlegur þungi þeirra 4,8 tonn - 4800 kíló - og ef þau vaeru öll meó sama beltið þyrfti það að vera 50 metrar að lengd. Þessar fimmtíu mannesl<JUr eru í sameiginlegu aðhaldi við að breyta lífsstílnum og ætla að mæta á fundi hvert mánudagskvöld fram til jóla. Þau gera samning við sig sjálf um hversu mik- ið þau ætli að léttast og að þau ætli að mæta á fundi alla mánudaga og ef samningurinn rofnar hafa þau ekki við neinn að sakast nema sig sjálf. Markmiðið er að þessi hópur missi 500 kíló á 12 vikum. Þau ætla að losa sig við 500 kíló fyrir jól! Kátur hópur í aðhaldi ásamt Guðrúnu Þóru Hjaltadóttur næringarráðgjafa og Arnmundi Jónassyni, sölu- og markaðsstjóra. Pað er fyrirtækið Thorarensen-Lyf sem stendur fyrir þessu ókeypis aðhaldi. Þetta mánu- dagskvöld eru um fjörutíu manns saman komin til að hlýða á Guðrúnu Þóru Hjalta- dóttur næringarráðgjafa og Arnmund Jónasson, sölu- og markaðsstjóra, þar sem þau kynna einingakerfi Nupo-létt. Þunginn sem hópurinn kemur með í salinn er í algjörri and- stöðu við léttleikann sem svíf- ur í loftinu. Þetta fólk veit að það er ekki eitt að berjast við kílóin; þarna fá þau stuðning frá öðrum sem takast á við sama vandamál. Þau fá í hendur bæklinga. Einn þeirra skýrir hugmynda- fræðina bak við Nupo-létt kúrinn og þar eru leiðbeining- ar um hvernig best er að bera sig að. Þarna er líka að finna lista yfir matartegundir og hversu margar hitaeiningar hver fæðutegund inniheldur. Þau mega borða 10-12 ein- ingar - þ.e. 600 hitaeiningar - á dag og geta sett matseðilinn saman eftir vild. Þess á milli mega þau drekka Nupo-létt í magni sem gefur þeim 400 hitaeiningar á dag, en það eru 5 - 6 glös. Karlmenn þurfa meira en konur þannig að matur og duft, mega innihalda 1000-1200 hitaeiningar á dag. Arnmundur Jónasson, sölu- og markaðsstjóri, segir mark- miðið, 500 kíló, þýða að hvert um sig missi 9,8 kíló: „Við leggjum áherslu á að fólk auki grænmeti í fæðunni og bend- um á að því minna sem fólk borði, því hægari verði brennslan. Það er líka áríð- andi að forðast hitaeininga- ríka fæðu, eins og sósur og feitmeti, og auka hreyfinguna. Við verðum með gönguhóp og ætlum að ganga saman þrisvar í viku.” Guðrún Þóra Hjaltadóttir leggur ríka áherslu á það við hópinn að þau séu ekki í megrun, heldur sé markmiðið að breyta um lífsstíl: „Þriðji hver íslendingur er orðinn of feitur,” bendir hún á, „og 20% Islendinga eiga við alvarlegt offituvandamál að stríða”. Hún bendir á að það að grennast snúist ekki eingöngu um að það sé betra að bera léttari líkama, heldur verði þeir sem eru of þungir sjúk- lingar mun fyrr en aðrir. „Að- haldið byggist á því að hjálpa ykkur að komast úr víta- hringnum.” Þau hlusta af athygli og taka þessu greinilega af alvöru. A mánudagsfundunum, sem fram undan eru fram að jól- um, fá þau fyrirlesara. Þau eru beðin að koma í pontu og tala til hópsins til að efla sjálfstraustið og Guðrún Þóra og Arnmundur verða ævin- lega til taks til að svara spurn- ingum sem upp kunna að koma. Það verður spennandi að fylgjast með árangrinum og það munar um minna en 500 kíló! VIKAN mun fylgjast með framvindu mála og segja ykkur frá árangrinum... Texti: Anna Kristine Magnúsdóttir Mynd: Sigurjón Ragnar 8

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.