Vikan


Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 34

Vikan - 17.09.1998, Blaðsíða 34
Get ég fengið uppskriftina? Uppskrift Vikunnar kemur að þessu sinni alla leið frá Flórída. Það er Guðrún Gunnarsdóttir, lesandi Vikunnar, sem sendir uppskriftina sem hún kallar „Systir ostakökunnar". Verði ykkur að góðu! Botn: 1 bolli hveiti 120 g smjör 3/4 bolli dökkur púðursykur 1 bolli valhnetubitar Hrærið saman smjöri og sykri og bætið öllu hinu saman við. Sett í form, u.þ.b. 30x20 sm á stærð. Bakað í 12-14 mínútur við 175°C. Látið kólna í forminu. Krem: 450 g rjómaostur 3/4 bolli sykur 1 tsk. vanilludropar Þeytt vel saman í hrærivél og blandað varlega saman við 1 pela af þeyttum rjóma (þeytirjóma eða G-rjóma). Sett ofan á kökubotninn í forminu. 1/2 dós niðursoðin bláber Smurt yfir rjóma/ostblönduna. Kælt í ísskáp. Kakan er best ef hún er búin til degi áður en hún er borin fram. Hvernig vœri aö gauka gómsœtri uppskrift að okkur á Vikunni og við sendum tveggja hœða konfektkassa frá Nóa Síríus um hœl, sem þakklœtisvott fyrir þœr uppskriftir sem birtast. Best vœri ef mynd af réttinum fylgdi með og nafnið á þeim sem á að fá glaðninginn. „Get égfengið uppskriftina? Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík”. Óskirnar þrjár Hvers myndir þú óska þér ef þú fengir þrjár óskir eins og í ævintýrunum? Allir hafa leikið sér að þeim draumi að mega óska sér ein- hvers og vita að óskin rættist. Þetta þótti svo spennandi draumur að gerð var könnun á þvi i Bandaríkjunum hvers menn óskuðu sér helst. Könnunin náði til 270 karla og 320 kvenna sem fengu öll sömu spurninguna: Hvers mundir þú óska þér ef þú ætti þrjár óskir? Og hér eru nið- urstöðurnar. Stórir sigrar (20% aðspurðra) t.d. að vinna ólympíugull. 2. Að vera hamingjusamur alla ævi (13%). 3. Auðveld samskipti við aðra (13%) m.a. að verða vinur einhvers sérstaks. 4. Völd (12%) t.d. að mega ráða á vinnustað eða I þjóðfélaginu. 5. Auður (12%) að eiga nægilegt fé til að geta gert allt sem maður vill. 6. Heilbrigði (6%) að halda góðri heilsu það sem eftir er ævinnar. 7. Gott útlit (2%) t.d. að vera 8 cm hærri 10 kílóum léttari, eða að líta út eins og einhver sérstakur. 8. Að geta breytt einhverju (2%) td "vildi að ég hefði ekki...." 9. Kynlíf (1/2%) að komast í rúmið með valinni persónu. Það kann að vera að hér finnist einhverjum áherslu- röðin vera undarleg, t.d. að heilbrigði skuli vera langtum neðar í röðinni en stórir sigr- ar. Það má þess vegna taka fram að munur eftir kynjum var mjög mikill. Karlmenn settu frekar völd og sigra í efstu sætin, en konur heil- brigði og hamingju. Það vakti líka athygli þeirra sem stóðu að könnunni að að- eins konur óskuðu sér að þær hefðu gott útlit og að- eins karlmenn óskuðu sér að komast í rúmið með ein- hverri sérstakri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.