Vikan


Vikan - 17.09.1998, Page 14

Vikan - 17.09.1998, Page 14
Lífsreynslusaga LEG MAMMA Að blanda sér í vinahóp dótturinnar 4i hennar. Á mynd eru þær með sömu klippinguna; klippingu eins og Rachel í framhaldsþátt- unum „Vinir" er með. „Já, ég var með litað hár þarna," segir hún brosandi og segir það hafa verið ein af mis- tökunum sem hún hafi gert; mistök, sem hún sá ekki sjálf fyrr en það var næstum orðið of seint. Eg: -tók eftir því þegar ^ m j z— gamli bekkurinn y s l^Jút menntó hittist í vor að okkur finnst flestum við ekkert hafa elst á þeim 25 árum sem liðin eru frá útskrift. Flestir töluðu um að við hefð- um ekkert breyst og værum ennþá jafn ung í anda og við vorum á útskriftardaginn. Ef þetta nemendamót hefði átt sér stað einu ári fyrr hefði ég sjálfsagt talað hæst og mest um það hvað við værum ung í anda. En nú veit ég að það er blekking. Ég eignaðist dóttur mína nokkrum dögum eftir stúd- entsprófið. Það var ekkert á milli mín og barnsföðurins, en það kom ekki að sök. Foreldr- ar mínir bjuggu í stóru húsi og létu mig strax fá kjallaraíbúð- ina. Mamma var heimavinn- andi og tók ekki annað í mál en að ég héldi mínu striki og færi í Háskólann, eins og alltaf hafði staðið til. Ég var því ung- ur og áhyggjulaus háskóla- nemi, rétt orðin tvítug og naut lífsins. Samband okkar mæðgnanna var einstakt og ég hafði ekki bara eignast barn, heldur líka nýja vinkonu. Svo kom að því að dóttir mín fór að eldast. Þegar leið að fermingu kom að fyrsta árekstrinum: „Mamma, þú mætir ekki í kirkjuna í þessum fötum," sagði hún og benti á nýju buxnadragtina mína. „Mömmur stelpnanna verða í drögtum eða kjólum. Þú ert enginn táningur." Ég lét þessi orð sem vind um eyru þjóta. Dóttir mín hlyti að sjá það í kirkjunni að hún ætti langunglegustu mömmuna! Ég var tággrönn og leit vel út í dragtinni. Ég vissi vel að ég hafði háa og granna fætur og þröngu buxurnar fóru mér vel. Ástandið versnaði þegar hún var orðin sextán og sjálf kom- in í menntaskóla: „I guðanna bænum mamma, Verslunin Sautján er fyrir krakka á mínum aldri, ekki mömmur sem eru að nálgast fertugt!" Mér fannst hún ekki alveg skilja hvað vinir hennar héldu upp á mig. Þeim þótti bara gaman þegar þeir voru í heimsókn og ég settist inn í stofu til þeirra og söng með lögunum sem þau voru að spila. „Mamma, getur maður fengið „prívasí" á þessu heim- ili?" spurði hún bara með fýlu- svip. Hún virtist ekki sjá að vinum hennar fannst gaman að heyra mig segja sögur úr Glaumbæ og Sigtúni, frá kvöldinu þegar Glaumbær brann og partíunum sem við héldum til að drekkja sorgum okkar. Og hvaða unga mann - eskja getur státað af því að eiga mömmu sem er alltaf í stuði, á alltaf vín handa vinun- um og er til í að fá sér í glas með þeim og kjafta? Sprengjan sprakk - en ekki með látum. I fyrra leigði dótt- ir mín sér íbúð með vinkonu sinni frá æskuárunum „bestu vinkonu minni", eins og ég kallaði hana, því við áttum svo vel skap saman. Hún hlustaði ekki á rök mín fyrir því að henni lægi ekkert á að leigja fyrr en hún væri búin með Há- skólann. Ég mætti daginn sem þær byrjuðu að mála og viður- kenni það alveg að kannski hefði ég ekki átt að skipta mér af litnum á veggjunum: „Þessi er nú alveg „out"! sagði ég og benti á stofuna. „Sorrí mamma, þetta er ekki þitt mál," sagði hún brosandi. „Við ætlum að búa hér, ekki þú!" „Hei, á bara að yfirgefa mann?" spurði ég hress í bragði. Þær svöruðu engu, en litu hvor á aðra með tvíræðum svip. Ég hringdi til þeirra á laugar- dagskvöldi og ætlaði að plata þær með mér á kráarrölt. Ég hafði stundum slegist í för með þeim þegar þær fóru tvær sam- an eða fleiri og var hrókur alls fagnaðar, enda er ég sannköll- uð stuðmanneskja þegar ég er í glasi. Ég er ekki þessi mamma sem hneykslast á að unga fólkið detti í það eða fái sér jafnvel í nös. Maður þekk- ir nú ýmislegt frá því í „gamla daga" þótt enginn úr mínum vinahópi hafi prófað hass í þá daga. Þetta laugardagskvöld svaraði vinur hennar: „Bíddu aðeins, hún er að bera snakkið inn í stofu." Snakkið? Var partí? „Hæ, mamma mín," heyrðist kunnugleg rödd segja hinum megin línunnar. „Hva... Er bara partí og mömmu ekki boðið?" spurði ég- Já, það var innflutningspartí og mér var ekki boðið: „Þú getur ekki verið alls staðar, elsku mamma..." Daginn eftir sprakk sprengjan. Við settumst niður, mæðgurn- ar, og ræddum út um málin. í þessu uppgjöri sagði dóttir mín mér allt. Hún sagðist aldrei hafa þolað að sjá mig ganga um í sömu fatatísku og hún, jafnvel í hennar fötum. Henni fannst ekkert flott að eiga mömmu sem var svo grönn að hún passaði í föt dótt- ur sinnar, 20 árum yngri. 14

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.