Vikan - 20.12.1998, Blaðsíða 10
ijypjínum er h
Lyósambfk
h°rnum, be/n.
u vOru á
uPPboð
n/nn.
Halla hefur haldið miklar veislur I gegnum árin vegna starfs slns sem ræðis-
maður islands. Einn veggurinn í Borðstofunni er þakinn speglum sem
stækka rýmið.
„Mér finnst ég hafa verið hagamús hér áður fyrr uppi á hæðinni í
einbýlishúsinu mínu en nú er ég borgarmús. Pað er yndislegt að
búa hér. Þetta er í fyrsta skipti síðan ég kom til Ameríku fyrir
næstum fimmtíu árum sem ég get fengið allt sem ég þarf. Eg geng
út f búð, í bíó, á kaffihús og annað sem ég þarf að stússast, það er
líka svo hollt,“ segir Halla og brosir sínu geislandi brosi. Þar er
engu líkara er þessi kona sé rétt liðlega þrítug en ekki tæplega sjö-
tug svo leiftrandi sem hún er, full af orku og alltaf tilbúin að
stokka upp í sínu lífi og lifa í núinu.
„Ég var búin að kaupa íbúðina áður en ég gat selt húsið svo ég
vissi alveg hvað ég gæti tekið með hingað og hvað Davíð tæki með
sér og svo setti ég megnið af mununum á uppboð. Það tók sex vik-
ur að gera yfirlit og skrá sögu hvers hlutar. Svo var gerð uppboðs-
skrá yfir rnunina sem stóð yfir í tvo daga. Þannig hafði fólk tæki-
færi til að ákveða og skoða vel þá hluti sem það ætlaði að bjóða í.“
Þó Halla sé mikill fagurkeri og smekkmanneskja er hún ekki
háð veraldlegum hlutum sínum. Hún nýtur þeirra vegna fegurðar
og sögulegs gildis en lætur ekki stjórnast af þeim. Aðalatriðið, að
hennar mati, er að njóta lífsins og vera hamingjusöm með nýju
ástina í lífi hennar, eiginmanni sínum, Franscisco. Hann er fyrrver-
andi sendiherra og ættaður frá Equador, blóðheitur og elskar
Höllu augljóslega af öllu hjarta, enda byrjar hann allar setningar
N.