Vikan - 20.12.1998, Blaðsíða 45
ar. Einfaldasta leiðin er að
taka gatarann í þjónustu sína
og binda svo blöðin saman
með fallegum slaufum eða
öðru slíku.
En það hafa ekki allir að-
gang að tölvu og auðvitað er
hægt að handskrifa þessar
ágætu bækur þó það taki
óneitanlega lengri tíma.
Einnig er hægt að kaupa fal-
legar bækur, t.d. úr endurunn-
um pappír, en mikið úrval er
af slíkum bókurn í öllum
bókaverslunum. Ein albesta
jólagjöf sem ég hef sjálf fengið
er ein slík bók sem dóttir mín
handskrifaði og dótturdóttir
mín myndskreytti. Bókin sú
heitir GÓÐA SKEMMTUN
YFIR POTTUNUM! og inni-
heldur margar góðar matar-
uppskriftir.
MYIUDIR
Táningarnir í minni fjöl-
skyldu halda mikið upp á
myndaalbúm sem frænka
þeirra gaf þeim ein jólin. Þeir
höfðu auðvitað búist við hinni
klassísku jólagjöf táningsins,
geisladiski. En í staðinn hafði
þessi frænka þeirra dundað
sér við að finna til myndir af
þeim, allt frá því einhver
smellti mynd af þeim allsnökt-
um í frumbersku og til dagsins
í dag. Pað var mikið um alls
kyns upphrópanir og hlátra og
gjöfin vakti mikla lukku.
MYNDARAMMAR
lagt vinnu í eigin jólagjafa-
framleiðslu. Hvers vegna ekki
að gefa henni/honum gjafa-
kort frá einhverri snyrti- eða
nuddstofunni, t.d. í fótsnyrt-
ingu, andlitsbað, nudd o.s.frv.
Það er góð tilhugsun að geta
mætt á góðan stað og látið
dekra við sig eftir jólaannrík-
ið.
FRUMLEGUSTU JÓLAGJAFIRNAR!
Það er um að gera að láta
ímyndunaraflið ráða för ef
buddan er nánast tóm í des-
embermánuði. Frumlegasta
jólagjöfin er líklega sú sem
ónefndur maður hér í bæ gaf
vinum sínum ein jólin. Hann
fór einfaldlega á bókasafnið,
valdi uppáhaldsbækurnar sín-
ar, pakkaði þeim inn í jóla-
pappír og lét pakkana undir
jólatréð. Með bókunum fylgdi
auðvitað spjaldið sem sýndi
hvenær skila ætti bókunum og
bað hann viðtakendur vin-
samlegast að skila bókunum á
réttum tíma!
Svo var það peningalitla
parið sem lifði á námslánum
og greiddi dýra húsaleigu. Þau
settust niður og bjuggu til
heimsins flottasta piparköku-
hús og gáfu fjölskyldunni.
Ekki spillti fyrir að í upp-
skriftinni var örlítið koníak
svo baksturinn varð skemmti-
legri og skreytingin var með
frumlegra móti.
JÓLAPAKKARNIR
Að síðustu langar mig að
minna ykkur á að jólapakkinn
verður persónulegri með
frumlegri innpökkun. Það er
t.d. sniðugt að notfæra sér
brúnu pappírspokana sem
margar verslanir nota undir
varning sinn. Þeim má loka
með fallegu skrauti, líma á þá
jólaglansmyndir eða teikna á
þá myndir. Á sama hátt má
skreyta venjulegan umbúða-
pappír og maskínupappír.
Hvítan umbúðapappír má
skreyta t.d. með því að skrifa
á hann jólavers með gylltu
bleki og loka pökkunum með
lökkuðu innsigli í stað líms.Á
maskínupappírinn er fallegt
að nota skraut í grófari kant-
inum; gróf bönd, þurrkaða
ávexti og kanilstangir.
Talandi um ljósmyndir. Ein
vinkona mín situr þessa dag-
ana við að mála á myndara-
mma. Hún fór í Ikea og keypti
einhver ósköp af ólituðum
viðarrömmum sem fást þrír
saman í pakka. Hún segir að
ekkert rói meira taugarnar
eftir erfiðan vinnudag en að
taka til penslana, litina og
stenslana og skapa lítil lista-
verk á þessa litlu rarnma. Inn í
rammana fara myndir af þeim
sem gjöfin er ætluð, mynd af
uppáhaldsleikaranum eða -
poppstjörnunni.
GJAFAKDRT
Og þá kviknar hugmynd fyr-
ir ykkur sem eruð búin að
fylgjast með þeim sem hafa