Vikan


Vikan - 20.12.1998, Blaðsíða 18

Vikan - 20.12.1998, Blaðsíða 18
Hvað með smá hjólreiða- túr? Húsgöng og smáhlut- ir úr smíðajárni eru í miklu úrvali í versluninni. Þau koma frá Tékklandi. Allir landsmenn þekkja Pálma Gestsson leikara sem bregður sér á snilldar- legan hátt í margs konar ólík gervi og hlutverk á leiðsviðinu. Nýjasta hlut- verk Pálma er hinsvegar ólíkt öllum öðrum sem hann hefur leikið hingað til; nýlega opnaði ný versl- un í Hafnarfirði, verslunin Ego Dekor, og er Pálmi annar eigendanna. ir jr PALMIGESTSIBUÐARLEIK NÝTT OG SKEMMTILEGT AUKAHLUTVERK Viðtal: Þórunn Stefánsdóttir Myndir: Gunnar Gunnarsson Hvað var það fyrir yður? Pálmi í nýja aukahlutverkinu. Hvað segir þú, Pálmi, um þetta nýja hlutverk, er gaman í búðarleik? „Þetta er fínt aukahlutverk, jú það er mjög skemmtilegt. En hvernig varð nýja hlutverk- ið til? „Það var búið að blunda lengi í mér að gera eitthvað allt annað en að leika. Maður verður nú alveg kolvitlaus af því að vera eingöngu í leiklistinni til lengri tíma. Við Friðvin Guðmundsson, vinur minn, fórum að velta því fyrir okkur að fara að gera eitthvað saman, t.d. að flytja eitthvað sniðugt inn og fórum að kanna málið. Við vorum svo heppnir að fá til liðs við okkur systur Friðvins, Björgu, sem hefur búið í Tékklandi til margra ára. Hún þekkir vel til mála í því ágæta landi og í gegnum hana komust við í samband við unga Tékka sem hanna og smíða húsgögn og smáhluti úr smíðajárni. Þá kviknaði hugmyndin að opna verslun með þessa muni og síðan var ekkert annað eftir en að skella sér á þetta.“ Pálmi segist lítið mega vera að því að standa sjálfur fyrir innan búðarborðið. „Það var ekki meiningin. Ég veit ekki einu sinni hvort það væri vænlegt til árangurs,“ segir Pálmi og er hógværðin uppmáluð. „En það eru nú ýmis handtökin sem þarf að gera þó að maður sé ekki mikið að þvælast fyrir vinnandi fólki hér í versl- uninni. Hún Björg er hér alla daga og hún á nú aðalheiðurinn af þessu. Þetta gengur ljómandi vel. Það er auðvitað stutt síðan við opnuðum, en þetta hefur gengið framar öllum vonum.“ Pálmi segir reksturinn góða slökun frá leiklistinni. „Ég held að það sé alveg nauðsyn- legt, þegar líf manns er farið að snúast í kringum eitthvað eitt ákveðið starf, eins og leik- listina í mínu tilfelli, að fara að gera eitthvað annað. Komast í snertingu við annað fólk, annars konar starf og aðra hluti. Það er mjög mikilvægt fyrir leikarann að fylgjast með því sem er að gerast í samfélaginu því þaðan er jú öll okkar list sprottin. Það versta sem getur komið fyrir listamanninn er að einangrast í fagi sínu. Þá kemur fljótlega að því að hann hefur ekki neitt að segja, ekkert fram að færa. Ef hann fylgist ekki með fólkinu þá fylgist fólkið ekki með honum. Þannig að það er mikið atriði að lifa og hrærast svolítið í samfélaginu." Við fengum Pálma til þess að ganga með okkur um nýju verslunina, Ego Dekor Bæjarhrauni 14 og eins og hans er von og vísa varð sýningarferðin tilefni til ýmissa upp- átækja, eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.