Vikan - 20.12.1998, Blaðsíða 55
'V- - m tiogsva IV\ Bastförc
C-Vítamin
<-31,.” T Sockerfii 1 <
LrUn 20 snabblösliga brustablette
...uppbyggjandi drykk
í sólarleysinu.
Hægt er að fá stórar C-
vítamíntöflur með
sítrónubragði í mörg-
um verslunum og ap-
ótekum. Töflurnar
er hægt að leysa
upp í heitu vatni
eða borða eins og
gospillurnar forð-
um daga. Fátt er
eins hressandi og
bolli af heitum C-
vítamíndrykk á
dimmum mánu-
dagsmorgnum.
...bókaverslun Eymundssonar í Austurstræti.
Eftir að versluninni var breytt og hún tekin í gegn lýsir hún upp Aust-
urstrætið í rökkri og er stærri og skemmtilegri en áður. í kjallaranum
er komin barnadeild og erlendu bækurnar fá aukið rými á efstu hæð-
inni. Það er gaman að gefa sér tíma, á kvöldin eða um helgar, og
gleyma sér við að skoða nýjar bækur. Svo er bara aö bíða eftir bóka-
kaffinu sem búist er við að tekið verði í notkun í vor. Og það verður
víst ekkert slor!
...Ævisögu þorsksins eftir Mark Kurlansky sem nýlega
kom út. Bókin er um fiskinn sem breytti heiminum og kemur
innihald hennar svo sannarlega á óvaiþr..þfnistökin eru leik-
andi létt og má þar meðal annars finna uppskriftir að gómsæt-
um saltfisk- og þorskréttum, enda höfundurinn þekktur fyrir
skrif sín um mat í tímaritið Food and Wine. Hér fylgir með ein
uppskrift úr bókinni sem Jóhannes ívar Guðmundsson kokkur
á Naustinu matreiddi.Saltfiskur og hrísgrjón upprunnið í
Kingston árið 1893: „Þetta er eftirlætisréttur innfæddra. Salt-
fiskurinn og hrísgrjónin, um það bil hálft pund af saltfiski á
móti pundi af hrísgrjónum, eru soðin saman með hinni venju-
legu ögn af söltu fleski og svolitlu sméri."
Ljósmynd: Áslaug Snorradóttir
...dönsku sjónvarpsþdttaröðinni taxa sem
Sjónvarpið sýnir á fimmtudagskvöldum.
Það er ekkert of seint að setja sig inn í söguþráðinn, því
alls verða sýndir 24 þættir. Sveinbjörn I. Baldvinsson er
einn af handritshöfundunum. Sagan er um líf og störf
fólks á lítilli leigubílastöð í Kaupmannahöfn. Þættirnir
eru vel gerðir og leikarar og leikstjóri standa sig einstak-
lega vel. Skemmtilegir og mannlegir þættir!