Vikan - 07.01.1999, Side 21
NÝJASTA ÆÐIð IÚTLÖNDUM - DJÚSB
Nú eftir hátíðirnar, veislur og ofát, er ekki úr vegi
að skoða aðeins nýjasta heilsuæðið í útlöndum -
grænmetis- og djúsbarina. Það er oft talað um
það að kvikmyndastjörnur séu leiðandi í þeirn straumum
og stefnum sem við hin fylgjum svo eftir. Stjörnur eins og
Tom Cruise, Nicole Kidman, Sean Connery og Richard
Gere ásamt fleirum eru meðal fjölda meðvitaðra einstak-
linga sem nýta sér svokallaða djúsbari bæði hér í Evrópu
og einnig vestanhafs. Þar á meðal einn þekktasta djúsbar-
inn í London, Planet Organic á Westbourne Grove, sem
einnig er heilsubúð. í streitu og hraða nútímaþjóðfélagsins
virðist hafa sprottið upp þörf fyrir fljótvirka leið til að hella
í sig hollustudrykkjum unnum úr lífrænt ræktuðu grænmeti
og ávöxtum. Enda kvarta margir undan orkuleysi, sérstak-
vetrarmánuðina.
í nýlegri ferð minni til Lundúna lagði ég leið mína á
þennan þekkta djúsbar í Planet Organic. Þegar inn var
komið blasti við slíkt ævintýri að ég hefði getað eytt þar
heilum degi. Planet Organic er fyrirtæki sem býður upp á
allt það besta í lífrænum vörum. Enda fólk að verða með-
vitað um gildi lífrænnar ræktunar. Hér eru engin eiturefni,
geymsluþols- eða litarefni notuð. Hér er hægt að finna
smáskammtalyf, ilmolíur, vítamín og bætiefni, sem og jurtir
alls staðar að úr heiminum. Einnig er hér gífurlegt úrval
bóka og tímarita, þar sem fjallað er um leiðir til betri
heilsu.
Stór hluti búðarinnar er lagður undir djúsbarinn, þar sem
hægt er að fá úrval drykkja samansetta úr grænmeti eða
ávöxtum. Þar sem ég bjó á Butlins Grand Hotel á Prince's
Square, aðeins steinsnar frá Planet Organic, hafði ég það
fyrir reglu að ganga þangað í byrjun dags. Þar pantaði ég
yfirleitt góða blöndu af grænmetissafa og einnig ávaxta-
blöndu sem alltaf bragðaðist eins og sælgæti. Best þótti
mér að fá blöndu af ávöxtum og múslí með smá prótín-
dufti. Þannig fór ég alltaf hress af stað í leiðangra mína um
borgina, og gat svo með góðri samvisku fengið mér það
sem hugurinn girntist, án þess að hugsa um hollustuna.
Ferðir til útlanda bjóða upp á alls kyns góðgæti og það
gefst enginn tími til að spá í hvað sé hollt og hvað ekki.
Það er því ómetanlegt að geta hellt í sig hollustudrykk
sem gefur næga orku fyrir daginn. Auk þess er boðið upp
á ginseng, drottningarhunang, sólhatt, lecitín, blómafrjó-
korn og þangduft út í drykkina. Og svo er einnig hægt að
fá nýkreist hveitigras eða Wheat Grass, en það á meðal
annars að vera mjög blóðhreinsandi og allra meina bót.
Hér á landi eru ekki enn komnir djúsbarir og er það von-
andi tímaspursmál hvenær svo verður. En hér er þó hægt
að fá keypt glös af nýkreistum djús á nokkrum stöðum.
Helstir eru grænmetisveitingastaðirnir Grænn kostur og A
næstu grösum. Hjördís á Grænum kosti segir að gulrótar-
safinn þeirra sé mjög vinsæll og einnig appelsínusafinn.
Sólveig bætir við að hún kreisti iðulega hveitigrasið fyrir
meðvitaða viðskiptavini. Gunnhildur á veitingastaðnum Á
næstu grösum gerir einnig gulrótarsafa eða aðrar blöndur
ef beðið er um það sérstaklega. Einnig er hægt að fá ný-
kreistan appelsínusafa og greipsafa í flöskum í grænmetis-
borðum Nýkaups og Hagkaups. Á öllum þessum stöðum
eru safarnir ferskir og án allra aukaefna. Svo er auðvitað
hægt að pressa sinn eiginn safa heima með einföldum
hætti í safapressu og hefur það reynst mér vel. Og góðar
uppskriftir við djúsgerðina eru til dæmis í bókum Leslie
Kenton sem hægt er að fá í Eymundsson.
Það er spennandi að fylgjast með þróuninni í hollustu-
bylgunni, sem verður sífellt meira áberandi eftir því sem
rannsóknir sýna fram á sterkari tengsl mataræðis og sjúk-
dóma. í nýlegu hefti Newsweek má til dæmis sjá forsíðu-
grein um tengsl milli fæðu og forvarna gegn sjúkdómum.
Læknar virðast einnig vera að vakna til meðvitundar um
þessi mál og kominn tími til. Gott dæmi um það eru vin-
sældir læknisins Andrew Weil sem starfar við Harvard og
skrifaði bókina Lækningarmáttur líkamans sem þýdd var
af lækninum Þorsteini Njálssyni. Og þá er bara að drífa sig
og kaupa nýkreistan safa og fjárfesta í safapressu. Ekki
veitir af eftir jólasukkiðl!
21