Vikan - 07.01.1999, Blaðsíða 51
ur út á næsta ári og vilja að við byrjum á því að fara um landið.
Þeir eru að tala um að fá Polygram Records til þess að markaðs-
setja plötuna okkar með því að senda okkur í tónleikaferðalag.
Við byrjum á því að fara í háskólana því þar er stærsti markaður-
inn. Háskólaútvarpið er þekktasta útvarpið í Bandaríkjunum
fyrir fólk á aldrinum 18-20 ára og þeir vilja fá okkur í það. Einnig
verðum við með á Lollapalooza tónlistarhátíðinni sem er sú
stærsta þar í landi og þá er ferðast um öll fylki Bandaríkjanna.
Með haustinu ferðumst við með hljómsveitunum Screaming
Trees og Fuel og komum fram sem upphitunarhljómsveit. Þetta
er hluti af því sem búið er að fá staðfest að við munum takast á
við.“
Oft heyrir maður og les að þessi og hin hljómsveitin sé búin að
skrifa undir samning en veit lítið hvað það er sem er á bak við
slíka samninga. Ég spyr strákana hvort svona samingur þýði fullt
af peningum. „Samningur okkar er eingöngu við umboðsmann-
inn. Hann starfar fyrir umboðsskrifstofu sem heitir Fox Albert
Industry og er aðallega með leikara á sínum vegum, t.d. Myra
Sarvino og fleiri unga, þekkta leikara. Þeir vilja einnig komast
inn á tónlistarmarkaðinn og við erum prófsteinn fyrirtækisins;
fyrsta hljómsveitin sem þeir taka að sér. Umboðsmaðurinn sem
hefur tekið okkur að sér er virtur og þekktur í tónlistarheiminum
í New York. Hann heitir Don Thomas og hefur sjálfur spilað í 30
ár með mörgum þekktum listamönnum, t.d. Van Morrison, og
einnig spilaði með Barbra Streisand í 12 ár. Hann kom inn í fyrir-
tækið sem sérfræðingur í tónlist. Það kemst enginn áfram í
Bandankjunum án þess að hafa umboðsmann. Við áttum okkur
á því að með honum erum við að byrja á réttum enda. Plötu-
samningur er lítils virði ef við höfum ekki umboðsmann sem sér
um okkar hag, talar fyrir okkar hönd og þekkir markaðinn."
HUGLEIÐINGAR UM FRÆGÐ OG FRAMA
Hingað til hafa þeir félagamir haft spilamennskuna sem hobbí,
þeir eru allir í vinnu eða skóla og segjast ekki hafa kært sig um að
gera tónlistina að atvinnu. Segjast ekki hafa áhuga á að enda á
ballmarkaðnum því þar sé maður fljótur að brenna út. „Hljóm-
sveit á íslandi er í raun og veru alltaf bflskúrshljómsveit, það er
ekki hægt að verða frægur á íslandi. En við höfum ekkert vont
að segja um íslenskan markað og íslenskar hljómsveitir. Við
þurfum á hvert öðru að halda, þurfum „kontrastinn“ í tónlistar-
geiranum. Það sprettur enginn upp alfullkominn, það hefur tekið
okkur langan tíma að komast þangað sem við erum í dag. Þetta
er spuming um úthald. Okkur hefur aldrei verið kappsmál að
vera í sviðsljósinu, en í dag njótum við virðingar fólks sem pælir í
tónlist og lifir og hrærist í þessum geira. Það er okkur meira virði
en að eiga blöðrusmell á vinsældarlistanum. Foreldrar okkar
Dekraðu við þig og láttu þér líða vel. Nú
er tækifæri til að eignast BODYpHASE
ilmolíu og baðgel. BODYpHASE ilmolía
er unnin úr blómum, trjám og öðrum
jurtum. Blómasafinn eða bjarkarsafinn
er þéttur þar til einskonar kjarni eða
„essence" situr eftir og ilmur jurtarinn-
ar nýtur sín til fulls. Þessar ilmolíur og
baðgel er gjöf frá Heildarnæringu og
Nico til 5 heppinna lesenda Vikunnar, ef
þeir svara eftirfarandi spurningu rétt:
Hver er ulanáskrift lieiiiiilislæltnis Vikunnar ?)
Sendið okkur svörin fyrir 17. janúar '99.
Utanáskriftin er: „Vinnið“ Vikan, Seljavegi 2,101 Reykjavík