Vikan - 07.01.1999, Blaðsíða 40
HUSRAÐ
Dúkar og servíettur
ií
'okkar hraða heimi ber meira og meira á því að
fínlegir og vandaðir munir úr fortíðinni komist í
.tísku og verði nokkurs konar uppáhaldshlutir á
heimilinu. Petta sést vel á antikhúsgögnum og
„country“ stíl í húsgögnum og húsbúnaði. Gamlir dúk-
ar og servíettur út lérefti eða hör eru annað dæmi um
þetta. Fínlegir, útsaumaðir dúkar sem lengi hafa verið
geymdir í skúffum og ekki flaggað undir venjulegum
kringumstæðum eru nú komnir í tísku og þá er víða að
sjá á borðum á ungum heimilum.
Þessir dúkar eru ýmist erfðagripir, handsaumaðir af
mæðrum og formæðrum eða keyptir í búðum og þá
handsaumaðir í Austurlöndum eða vélbróderaðir.
Sumum þeirra fylgja servíettur í stíl.
pvottatoa\ar
fj'og ótttema
tneð P'' að ipvo og ðipvr
að Vtaía sttttt ^
íð Vtaía \raö »a
bæg.1 a hvotttttufa o% Y inn
ba\a ..félagat P
Margir dúkanna eru hreinustu listaverk og allir gefa
þeir borðhaldinu hlýju og virðuleik sem ekki fæst með
öðrum hætti. Margir slíkir hafa nú þegar verið geymd-
ir allt of lengi í skúffum og skápum þar sem enginn
nýtur þeirra. Geymslan fer ekki vel með þá og það er
um að gera að sýna þeim og hönnuðum þeirra þann
sóma að gera þá sýnilega við hátíðleg tækifæri.
Eini ókosturinn við notkun dúkanna er sá að þeir eru
viðkvæmir í þvotti og þarfnast strauningar. Það má
hugga sig við að í dag eru til mjög góð efni til að fjar-
lægja bletti og svo má líka spyrja sig að því hvort það
sé ekki allt í lagi að setja svona dúk í hreinsun þegar
mikið liggur við. Annað eins er borgað fyrir hugguleg-
heitin á heimilinu.
Gróðursettu kerti, þá
uppskerðu birtu
Blómapottar geta verið glæsileg-
ir kertastjakar og þegar þeir eru
fylltir með sandi eða smásteinum
eru þeir mjög öruggir. Pottakerta-
stjakar eru mjög fallegir í gluggum
og þá má útbúa að eigin vild. Það
má til dæmis mála þá í litum sem
fara vel við umhverfið eða líma á
þá myndir að eigin vali.
Allt sem þú þarft til að korna þér upp pottakertastjök-
um eru nokkrir leirpottar sem fást í flestum blómabúð-
urn, akríllitir og lakk. Það má líka klippa út myndir í
blöðum eða á taui og nota límlakk til að skreyta pottana
að eigin vild. Ef þú vilt mála mynstur eða myndir á pott-
ana má nota stensla við það. Hér eru auðveldar leiðbein-
ingar fyrir þá sem vilja búa sér til pottakertastjaka.
.
Margar saman
Það er viss kúnst að hengja upp myndir svo
vel fari.
Það er ekki nóg að myndirnar séu fallegar,
það þarf líka að fara vel um þær á veggnum.
Þumalputtareglan er þessi: Það er betra að
hafa nokkrar myndir saman en að dreifa þeim
út um allan vegg. Ef rammarnir eru svipaðir
gerir minna til þótt myndirnar séu ólíkar inn-
byrðis. Hengið efstu myndirnar allar í sömu
hæð. Það er líka gott að efri og neðri brún séu
jafnar, en það gerir minna til þótt myndirnar
teygi sig út til hliðanna. Ef myndirnar eru
mjög misstórar er gott að hæfa þær minnstu
yst.
Þegar á að hengja upp myndir er snjallt ráð
að klippa út pappír eða karton í sömu stærð og
myndirnar og festa með „kennaratyggjói“ á
vegginn áður en neglt er til að sjá hvernig þær
rúmast á fletinum. Pappírinn má flytja til og
frá án þess að skemma nokkuð og þannig er
hægt að vera alveg viss um að vera að gera rétt
áður en farið er að gera gat í vegg.