Vikan - 07.01.1999, Blaðsíða 42
Iln VÆNT
Vera kann að einhverjum finnist undar-
legt að við skulum birta hér mynd af
jólakaktusi og það að nýliðnum jólum.
Ástæðan er þó einfaldlega sú að jóla- og
reyndar líka nóvemberkaktusar, tvær
skyldar plöntur og mjög líkar í útliti,
blómstra oftar en rétt um jólin. Sumar
plönturnar eiga það til að blómstra bæði
um jól og snemma á vorin. Ekki vitum við
nákvæmlega hver orsökin er. Eigendur
halda því einfaidlega fram að þeir séu
einfaldlega svo snjallir blómaræktendur.
n I M
Frjð’a Björnsdóttir
% 11 P
/
Aður en lengra er haldið
er rétt að leiða ykkur í
allan sannleikann um blóm-
strandi kaktusinn á myndinni.
Hann er nefnilega „silki-
blóm“ og mun því blómstra
allt árið, sama hverjir eigend-
urnir eru. Kaktusinn er ein-
staklega eðlilegur og fer vel
þar sem honum hefur verið
stungið í pott með fíkjutré
Benjamíns. Eigandinn hefur
hlotið mikið lof fyrir plöntuna
og fólk verður undrandi þegar
í ljós kemur að um gerviblóm
sé að ræða.
En snúum okkur að raun-
verulegum jóla- og nóvem-
berkaktusum. Þeir eru svo-
kallaðir blaðkaktusar og bera
„tvílyft", löng blóm sem geta
verið rauð, rauðbleik, bleik
42
og jafnvel hvít. Best líður
plöntunum í gljúpri og
kalksnauðri mold. Hvíldar-
tími kaktusanna er frá því upp
úr áramótum og fram í mars
og á þeim tíma er sagt gott að
láta þá standa á svölum stað
og draga mjög úr vökvun.
Vaxtartíminn er yfir sumarið
og þá er ráð að vökva með
áburðarvatni. Að haustinu er
aftur dregið úr vökvun og
sumir halda því fram að gott
sé að láta kaktusana standa á
köldum stað þar til bryddir á
blómhnöppum. Fara verður
varlega með plöntuna því
blómhnöppunum hættir til að
detta af ef hún er hreyfð
harkalega. Nú er vökvað
meira og kaktusinn færður á
hlýrri stað. Reyndar halda
margir því fram að þeir færi
kaktusana sína aldrei og stað-
hæfa að þeir standi alltaf á
hlýjum stað og séu vökvaðir
jafnt allt árið. Samt blómstri
þeir á hverjum jólum og jafn-
vel um páskana líka. Ekki
þorum við að bera á móti því
að þetta sé rétt og heldur ekki
að fullyrða að okkar lýsing á
meðferðinni sé sú eina rétta.
Það er bara gott til þess að
vita að plönturnar gleðji eig-
endurna sem oftast og lengst
með blómum sínum.
Jólakaktusar geta orðið
býsna gamlir og heyrst hefur
um plöntur sem komnar eru
hátt á þrítugsaldur. Fjölgun er
auðveld; nokkrir liðir eru
teknir af kaktusnum, þeim
stungið í vatn og þeir látnir
róta sig. Einnig á að vera hægt
að stinga þeim beint í mold en
þá verður að halda henni
sæmilega rakri á meðan ræt-
urnar eru að myndast.
Hér eru í sambýli gervi-
jólakaktus og fíkjutré Benja-
míns sem er sprelllifandi. Þeg-
ar líða tekur á janúar hverfur
jólakaktusinn niður í kassa og
lætur ekki sjá sig aftur fyrr en
undir jól. Þá er hann í fullum
blóma og eiganda sínum til
sóma. Kaktusinn er frá Heild-
versluninni Ás, Smiðjuvegi 11
í Kópavogi, sem selur mikið
af fallegum gerviblómum.
(LjósmyndSiguijón Ragnar)