Vikan - 07.01.1999, Síða 48
Spurningar má senda til „Hverju svarar læknirinn?“ Vikan, Seljavegi 2,101
M w © ir j
Reykingar og kynlíf
Þorsteinn lœknir
Ég sá grein í Vikunni um
daginn þar sem stúlka var að
spyrja þig út í atriði varðandi
kynlíf og þá datt mér í hug að
snúa mér til þín með mjög
persónulegt mál. Við hjónin
höfum verið í ágætu sambandi
frá því við vorum ung. Eins og
gengur erum við ekki sam-
mála um allt. Það fer t.d.
hryllilega í taugarnar á mér
hvað hann reykir mikið, alltaf
og allsstaðar. Ég hef hvatt
hann til að hætta, innritað
hann á námskeið, fengið
börnin í lið með mér en hann
þolir ekki að heyra á þetta
minnst. Nú er hins vegar al-
varlegra mál komið upp.
Hann hefur svo lítinn áhuga á
samlífi okkar og stinningar-
vandamál (held ég að það sé
kallað) er farið að gera vart
við sig. Er þetta ekki allt út
af reykingunum? Ég heyrði
talað um þetta í þætti á Stöð 2
um daginn og nefndi það við
hann að svona færu reykingar
með karlmenn. Þeir verða
blóðlausir og duglitlir. Hann
bara stóð upp og fór. En
hvernig á ég að snúa mér í
þessu máli? Ætti hann að taka
lyf og er eitthvað sem ég get
gert? Mikið vona ég að þú
getir svarað þessu bréfi, en
ekki birta nafnið mitt.
Áhyggjufull eiginkona
Kæra eiginkona
Reykingar eru ekkert grín,
líklega vanmetum við oftar en
ekki fíknina sem fylgir þeim,
en hún kemur einmitt fram í
því að fólk verður ergilegt
eins og eiginmaður þinn þeg-
ar þú eða börnin reyna að ná
til hans og grátbiðið hann um
að hætta að reykja. En auðvit-
að er þetta ekki allt fíkn, frek-
ar en stinningarvandamálið er
allt reykingunum að kenna þó
að þær hjálpi ekki. Margt ann-
að kemur til eins og líðan
hans sjálfs. Er hann sáttur við
sjálfan sig, er hann í jafnvægi,
er hann ánægður með lífið?
Margir karlar ganga í gegnum
tilfinningavandamál, sem þeir
eiga í vandræðum með að
l wm
m
u'
□
greiða úr og eru ekki vanir að
ræða dýpstu tilfinningar eða
hreinlega þekkja þær ekki.
Ekki er óalgengt að karlar
segjast eða gefa í skyn með al-
höfnum að þeir þurfi næði og
er það oft merki um að þeir
þurfi að melta sínar tilfinning-
ar en getur líka bent til að
þeir séu komnir í vandræði.
Þunglyndi er líklega van-
greindur sjúkdómur meðal
karla, þar sem dofi t.a.m. í
kynlífi, stinningarvandamál,
reykingar og afskiptaleysi eða
önugheit geta komið fram.
Almennt séð er besta aðferð-
in, þegar reykingarmaður á
heimili vill ekki taka fortöl-
um, að hætta alveg að skipta
sér af reykingunum, en setja
þess í stað reglur þar sem
heimilisfólkið neitar alfarið
að sætta sig við reykingar á
ákveðnum stöðum, eins og
innan veggja heimilisins og í
bílnum. Segið þá að reyking-
arnar séu hans mál en hann
rnegi ekki reykja ofan í ykkur,
og ekki gefa þetta eftir. Segið
honum að ykkur þyki vænt
um hann og viljið gjarnan
halda í hann, en fyrst hann
þurfi endilega að flýta fyrir
sjúkdómum og dauðanum þá
sé það náttúrulega hans mál.
Smá hæðni er í lagi en fyrst og
fremst er valið hans þó að þið
stjórnið hvar hann reykir og
það má aldrei vera nálægt
ykkur. Svo okkar á milli get
ég sagt þér að karlar eru ótrú-
lega viðkvæmir fyrir lykt af
sjálfum sér. Segðu honum að
hann lykti eins og öskubakki.
Gangi þér vel,
Þorsteinn
Óþolandi frunsur
Til heimilislœknis Vikunnar
Mikið langar mig til að vita
hvers vegna ég fæ frunsur
mörgum sinnum á ári.
Er eitthvað hægt að gera við
þessu lýti? Tengist þetta lifn-
aðarháttum fólks? Ég er 26
ára og heilsuhraustur. Vonast
til að fá svar.
Gísli
Kæri Gísli
Frunsur eru oftar en ekki
VIKAN
taldar stafa af herpesvírus
sem hefur búið um sig í
einni af taugum líkamans,
og er algengt að það sé í
taug tengdri vörum okkar.
Margir taka eftir því að
frunsur koma þegar við
erum undir álagi í lífinu,
erurn með kvef eða erum
illa fyrir kölluð. í öðrum
tilvikum finnum við ekki
þetta samhengi. Herpes-
vírusinn er tækifærissýkill, sýk-
ingin blossar upp sem sagt við
þær aðstæður þegar varnir lík-
amans veikjast. Hægt er að fá
krem í apótekinu sem virðast
verka ágætlega ef þú byrjar að
nota þau nógu snemma.
Almennt séð er ekki nein ein
þekkt aðferð til að koma í veg
fyrir þetta, en ef þú gætir að
álagi í lífinu, borðar hollan og
fjölbreyttan mat og tekur þín
ÞORSTEINN NJÁLSSON
HEIMILISLÆKNIR
vítamín er möguleiki á að
draga úr þessum sýkingum. Ef
til vill er einhver lesandi með
betri lausn á þessum vanda.
Þorsteinn
Fæ aldrei fullnægingu
Með von urn fullkominn
trúnað sendi ég þér þetta
bréf. Ég veit ekki hvern ég á
að tala við, en þannig er að