Vikan


Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 7

Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 7
flug til Bandaríkjanna og það sem verra var, það hætti jafnvel við að fara til íslands og fór eitthvað annað í frí. Því var tek- in sú ákvörðun að fljúga frá Frankfurt og París í stað Lúx- emborgar. Við höfum fengið ákaflega jákvæð viðbrögð hérna vegna þessa enda er Frankfurt miðpunktur Þýska- lands hvað varðar tenginu við útlönd. Hingað liggja allar leið- ir og það gildir einu hvort fólk kemur akandi eftir hraðbraut- unum, kemur með lest eða vill nýta sér tengiflug við smærri flugvelli landsins." Þjóðverjar „verðmætir" ferðamenn „ísland er samt aðalsöluvar- an, því þar eru mikilvægustu farþegarnir sem skipta fyrirtæk- ið og auðvitað íslendinga mestu máli. Þjóðverjar eru verðmætir ferðamenn ef hægt er að orða það svo, dvelja almennt lengur en aðrir ferðamenn á íslandi og skilja þar með meiri verðmæti eftir sig í landinu. Fjölgun þeirra er því ekki einungis hag- ur Flugleiða, heldur hagur allra landsmanna og á það leggjum við megin áherslur. Þar fyrir utan er auðvitað fátt skemmti- legra en að selja fólki ferðir til íslands." -Hvað hefur Frankfurt upp á að bjóða fyrir íslendinga? „Frankfurt er mjög áhuga- verð borg. Héðan er stutt í allar áttir, og ætli fólk að taka til dæmis flug og bíll um Evrópu er hvergi betra að leggja upp en einmitt héðan. Stutt er til Frakklands, Sviss og Austurrík- is, suður í Alpana á skíði á vet- urna og í fjallaferðir á sumrin. Steinsnar er bæði í Rínardalinn og Móseldalinn og ekki nema klukkutíma akstur í Svartaskóg. Við erum hér nánast í hjarta Evrópu." -Er ekkert því til fyrírstöðu lengur að aka í bílaleigubíl til Þorbjörg, amman frá Vestmannaeyjum, hefur gam- an af að heiinsækja fjölskvlduna í Þýskalandi. Austur-Evrópulandanna? „Til skamms tíma var ekki hægt að fara þangað í bílaleigu- bflum en með batnandi efnahag fólks í löndum hér fyrir austan hefur þetta breyst. Bílaleigurn- ar leyfa fólki reyndar ekki að fara á BMW, Audi eða Bens bílum vegna hættunnar á þjófn- aði en ekkert er auðveldara en bregða sér til Prag eða Búda- pest í bílaleigubíl frá Frankfurt og þetta eru svo sannarlega skemmtilegir ferðastaðir." Menningarlíf er mikið í Frankfurt, tvær óperur og stutt að fara í óperuferð til Wies- baden sem er mjög skemmtileg borg. Hún er auk þess ein af fáum borgum í Þýskalandi sem slapp algjörlega við eyðilegg- inguna í stríðinu. Annað sem heillar íslendinginn er að hag- stætt er að versla í Frankfurt, sérstaklega í janúar þegar útsöl- urnar eru upp á sitt besta. Þá er verðið alveg ótrúlegt að sögn Gunnars Más. „Þú færð mikið fyrir peningana og Þjóðverjar eru með vandaðar vörur. Það sakar heldur ekki að þýska markið hefur verið veikt gagn- vart íslensku krónunni að und- anförnu og allt vöruverð því mun hagstæðara en ella." Gott að búa í smábæ Fjölskyldan á heima í litlu þorpi, Hattersheim, sem er að- eins 25 km frá miðborg Frank- furt. Samgöngur eru þægilegar og Gunnar Már fer í vinnuna með lest á morgnana og flytur hún hann beint í kjallara bygg- ingarinnar þar sem hann vinn- ur. Þægilegra getur það ekki verið. „Það er gott að búa í svona litlum bæ og gjörólfkt því að búa inni í stórborg. Hér er gott umhverfi fyrir börnin. Mæðurn- ar í þorpinu eru í barnaklúbbi og Linda fór strax að taka þátt í klúbbstarfinu eftir að við kom- um til Þýskalands. Þar hittir hún konur sem eru með börn á sama aldri og Andri Steinn. Um miðjan október eignuðumst við svo stelpu sem heitir Silja." „Bærinn leggur mömmu- klúbbnum til húsnæði," segir Linda. „Við getum farið inn og fengið okkur kaffi og rabbað saman á meðan krakkarnir eru úti að leika sér." Mæðurnar eru bæði yngri og eldri en Linda, sem er 33 ára gömul, og með þeim yngri í hópnum. „Við hitt- umst auk þess reglulega á kvöldin og hlustum á fræðandi fyrirlestra og síðan eru málin rædd. Mikill samgangur er milli Vikan 7 Hciniiliö í Þýskalundi cr fal lcgt cn ýmislcgt hcfur |>urft aft kaupa þar scm fjölskyld- an kom úr 50 fcrnictra íbiíð cn hýr nií á 110 fcrmctrum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.