Vikan


Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 63

Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 63
Þaö er fátt notalegra svona um hávetur en að vera lengi í heitu baöi og vefja sig síðan inn í hlýjan náttslopp. Það er al- veg sérlega góð tilfinning. Um þessar mundir eru margar verslanir með mikið úrval af þessum þarfaþingum og aldrei að vita nema að mögulegt sé að fá góðan náttslopp á niðursettu verði, nú rétt eftir hátíðarnar. Spá Vikunnar r-ÆtÍJ Hrúturinn 21.mars-20.apríl Árið fór vel af stað og nú ertu tilbúin/n að leggja kapalinn fyrir farmtíð þína sem þú hefur verið að undir- búa og safna spilum í. Það er svo spurn- ing hvernig þú vinnur úr þeirri óvenjulegu röð sem upp kemur en hitt er Ijóst að þú hefur bæði hæfileika og getu til að gera það vel. Hautið 21. april - 21. mai Það lítur út fyrir að þú hafir hitt naglann á höfuðið þegar þú strengdir þitt heit um áramótin. Vikan verð- ur stöðug áminning um að standa við heit sitt og láta ekki undan duttlungum og hvöt- um sem æpa á þig að svíkja loforðið. Tvíburinn 22. maí-21.júní Það er ekki einleikið hvað nýja öldin lofar góðu fyrir þig og öll teikn lofa þér upgangi á öllum sviðum. Þú mátt því huga að öðrum og sérstaklega þeim börnum sem sitja föst í feni fátæktar en þurfa bara smá stuðning til bjartrar framtíðar. Krabbinn 22. júní - 23. júlí Þú hefur alltaf haft sterkar taugar til fjölskyldulífsins og oftar en ekki dreymt um hina einu sönnu stórfjölskyldu þar sem allir ættliðir tengjast og miðla hver öðrum af reynslu sinni og speki. Nú hillir undir að þessi draumur þinn verði að veruleika og nýtt skeið taki við. Ljónið 24. júlí - 23. ágúst Á þrettándanum kemur nýtt tungl, svokallað aukatungl og ýfir á þér makkann. Þú iðar öll/allur af krafti og ferð því á álfabrennu. Þar syngur þú hástöfum jólin út, skýtur upp síðustu bombunum, skálar í botn fyrir fegurð landsins og kveður jólasveinana. Meyjan 24. ágúst - 23. september Þar sem þú slepptir fram af þér beislinu við aldaskiptin ertu nokkuð dösuð/dasaður og ekkert sértstak- lega æst/ur að æða út og suður. Best væri bara að hita sér gott „toddý", opna Mozart- kúlu kassann, kúra undirteppi og lesa nokkrar jólabækur. n 24. september - 23. október Það er ólga í lofti og breytingar yfirvofandi. Þú grípur rétta augnablikið og skiptir um gír, tekur nýja stefnu og brunar inn í annað lífsmunstur. Á þrettándanum tekur þú af skarið og sendir gamla jólasveininn í þér með hinum á fjöll og glottir kumpánlega framan í heiminn. Sporðdrekinn 24. október - 22. nóvember Mikið svakalega varstu smart í aldamótateitinu. Þú bókstaflega geislaðir af fegurð og allt lagðist á eitt um að gera þig ómótstæðilega, dressið og persónutöfrarnir. Enda stóðu augu margra á stilkum. Bogamaðurinn 23. nóvember - 21. desember Framtíðin er eins og ókannað landsvæði en þú ert nú þegar byrjaður að undirbúa könnunarleiðangur. Þar er náttúrulega góður tölvutengdur klæðnaður nauðsynlegur, bakpoki frá Dell og augnskyggnuskanni frá Sony. Þá getur komið sér vel að hafa nýju Tarot spiiin að spá í á kvöldvökunni. Steingeítin 22. desember-20.janúar Nú ertu líklega búin/n að lesa allar fínu bækurnar sem þú fékkst í jólagjöf nema kannski þessa þykku með svörtu spjöldunum? En eftir skrallið á miðvikudaginn tekst þér að finna lausan tíma og þú sekkur í þessa merkilegu og skemmtilegu bók. Skyldan kallar svo um helgina. Vatnsberinn 21.janúar- 19.febrúar Þú ert ekki enn búin/n að átta þig á að gamlárskvöld er liðið og nýja öldin þín byrjuð. Kvíddu samt engu því það er leyfilegt að skála fram að helgi og kveðja allt gamalt og gott, en þá hefst nýtt skeið í lífi þínu sem ekki sér fyrir end- ann á. Fiskarnir 20. febrúar - 20. mars Ákveðin ró kom yfir þig þegar klukkurnar hringdu öldina út og nýja öld inn og þér fannst hálfpartinn eins og þú kveddir gamlan vin þegar sú gamla hvarf. Það var ekki laust við að þú klökkn- aðir þegar síðustu ómarnir hurfu í myrkrið og „Nú öldin er liðin..." kvað við úr öllum áttum. Amtsbókasafnið á Akureyri 03 591 256
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.