Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 39
þetta fyrir strák sem hafði
spanderað sumarfríinu sínu í
að vinna fyrir andstæðing-
inn."
En var ekki miklu meiri
hiti í pólitíkinni hér áður en
nú er?
„Jú, en þótt menn séu
pólitískir samherjar eru þeir
ekki alltaf bestu vinir.
Rammir andstæðingar geta
reynst betur. Ég varð svo
sem eins var við hitt að ég
fengi að gjalda skoðana
minna. Þannig var ég bók-
staflega lagður í einelti um
tíma í starfi mínu fyrir Út-
varpið. Þá áttu pólitískir
andstæðingar það til að
leggja út af því í löngu máli í
greinum í Morgunblaðinu
hvernig ég hefði sýnt and-
stöðu við álver í Straumsvík
með því að leika lagið
Frjálst er í fjallasal í útvarp-
inu."
Kaupsýslukona og
listunnandi
Pétri er einnig minnisstæð
Anna Friðriksson, kaup-
kona í Hljóðfærahúsi
Reykjavíkur. Hún hafði um-
boð fyrir hljómplötur frá
mörgum erlendum útgáfu-
fyrirtækjum og seldi mikið
af erlendum dægurlögum.
Henni var svo annt um ís-
lenskt mál að hún fékk
Freystein Gunnarsson,
skólastjóra Kennaraskólans,
til að þýða textana og lét þá
fylgja með hverri plötu á
einblöðungi.
„Anna var mikil kaup-
sýslu- og auglýsingakona.
Hún var frumherji í því að
varpa út á götuna danslög-
um af þeim plötum sem hún
hafði til sölu. Þetta var með-
an Reykjavíkurrúnturinn
var og hét, sem meðal ann-
ars Þórbergur skrifaði um.
Fólk gekk ákveðinn hring
um bæinn og
sumir voru í
makaleit.
Hljóðfærahúsið
var þá í Austur-
stræti 1 og af-
greiðslustúlkur spiluðu lögin
og fylgdust með mannlífinu
á strætinu. Seinna flutti
verslunin í kjallara þar sem
nú er áfengisútsala og lét
Anna þá mála gula ör á göt-
una er benti á dyrnar. Ein
afgreiðslustúlkna hennar
sagði mér að eftir flutning-
ana hefði verið allt annað að
fylgjast með fólkinu sem
gekk rúntinn því áður sáu
þær „spásseristana" í fullri
stærð en úr kjallaranum
sáust vegfarendur aðeins
upp að hné.
Anna var mikill listunn-
andi og hún flutti einnig inn
marga tónlistamenn til tón-
leikahalds hér. Systir hennar
rak kjólabúð sem hún kall-
aði Ninon
eftir heiti á
vinsælu dæg-
urlagi. Hún
stofnaði lista-
klúbb og hélt
skemmtanir í Rosenberg-
kjallaranum, Hótel Skjald-
breið og Iðnó. Þannig lifðu
og hrærðust þessar systur í
heimi listarinnar. Olga
Hejrnes og Anna Friðriks-
son eiga skilið að þeirra sé
minnst."
Pétur kann ótal fleiri sög-
ur af skemmtilegum íslend-
ingum en þessar verða að
nægja lesendum í bili en all-
ar endurspegla þær á ein-
hvern hátt ríkt einstak-
lingseðli og sjálfstæði þeirra
sem frá er sagt. Vonandi
verður einhver sagnaþulur
til þess rifja upp og segja frá
jafnmörgum litríkum ein-
staklingum um næstu alda-
hvörf.
Vikan 39