Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 50
usmet'u's -
-v//<Áv
Margl íslenskt nútímafolk hef-
ur há trú að forfeður og for-
mæður hafi lítið kunnað að
nota náttúruna tíl að bæta
lífsskilyrði sín. ímynd Bjarts í
Sumarhúsum sem kaus frekar
að svelta en að nýta sér sil-
unginn í vatninu og fuglinn í
heiðinni hefur í of miklum
mæli veríð talin algild en hað
er langt í frá að svo hafi ver-
ið. Þekking á grösum
og hverníg nýta
beri íslenska
lággrúður-
inn bæði
íheilsu-
bótar-
skyni og til fleíri gagn-
legra hluta var víða mjög góð
og almenn. Brynjólfur biskup
Sveinsson flytur með sér vall-
humal tíl landsins áríð 1639 í
bví skyni að rækta hann og
nota til lækninga. Fjallagrös-
um var víða safnað og te af
blóðbergi, Ijónslappa og mar-
íustakk var víða drukkið og til
voru einhver rit um hær nytjar
sem mátti hafa af plöntum
bótt yfirleitt hafi fólk notast
við hekkingu sem ein kynslóð
tók í arf af annarri. Á tímabili
hóttu hetta hinar verstu kerl-
ingabækur og helst var að
gert værí góðlátlegt grín að
hessum fróðleík. Um bessar
mundír er áhuga manna og trú
á lækningamætti íslenskrar
náttúru að vakna á ný og
bónokkrir sem nýtt hafa gaml-
an fróðleík samborgurum sín-
um til gagns. Ýmislegt nýtt
hefur eínnig veríð uppgötvað
og stundum fyrir algjöra tilvilj-
un líkt og hegar áhrífamáttur
leirsins á botni Bláa lónsins
kom í Ijós.
íslenskrar náttúru
Nleð uppskrift frá
ommu aovopm
Ájöröinni Hvammi II ÍVatnsdal
hefur Þuríður Guðmundsdóttir
stundaö grasatínslu um árabil og
fyrirtæki hennar, Móa, framleiðir
orðið nokkrar gerðir af kremum
úr íslenskum jurtum. Grunnupp-
skriftin kemur frá ömmu Þuríðar,
Björgu Lilju Jónsdóttur, sem er
níræð og hefur því lifað að sjá
barnabarn sitt nýta þennan arf
sjálfri sér og öðrum til góðs.
Nafnið Móa er þannig tilkomið að
Þuríði var hugsað til huldukvenn-
anna sem oft lögðu íslenskum
konum til eitthvað gott að launum
fyrir greiða. Plönturnar koma úr
móanum og þess vegna þótti
Þuríði huldukonunafnið Móa hæfa
vel starfsemi sinni.
Vörurnar frá Móu hafa verið
seldar á netinu, í apótekinu á
Blönduósi og í Heilsuhúsinu. Verið
er að leggja grunn að heima-
kynningum og ætlunin erað
markað-
setja vörurnar nær ein-
göngu þannig í framtíðinni. Frá
Móu koma jurtakrem, næturkrem
sem er einstaklega græðandi og
dugar mjög vel á ýmis exem.
Lesandi hafði samband við Vik-
una til að láta vita af því að næt-
urkremið frá Móu væri það eina
sem virkilega hefði dregið úr
barnaexemi hjá barni hans og
lagað þann mikla þurrk sem oft
vill myndast í húð þeirra þarna
sem eru með exem. Hjá Móu er
verið að þróa nýja snyrtivörulínu
sem sett verður á markað á
næsta ári.
Ekjti luf heidur giöf
fra moður natturu
Urtasmiðjan framleiðir krem,
smyrsl, olíur og sturtusáþur úr ís-
lenskum jurtum. Gígja Kjartans-
dóttir setti Urtasmiðjuna á
stofn fyrir tíu árum. Hún hafði
haftmikinn áhugaájurtum
frá því hún var barn og átti
góðar minningar um kremið
sem amma hennar vann úr
grösum og bar á nef og
kinnar barnabarnanna við
sólbruna. Gígja las sértil
um lækningamátt jurta og
• • kynnti sér virkni þeirra
en það var ekki fyrr en
hún tók ofan úr hillu
hjá sér til að skoða
nánar bók þýskrar
nunnu frá miðöldum, Hildegard
von Bingen um jurtanytjar að hún
ákvað að reyna sjálf að búa til
eigin krem en mikið af þeim jurt-
um sem Hildegard notaði vaxa
hér.
Græðismyrslið frá Urtasmiðj-
unni er vel þekkt og er notað
gegn þurrkþlettum, exemi, psori-
asis örum, sólbruna og á sár.
Smyrslið hefur einnig reynst nyt-
samlegt í mörgum öðrum tilfell-
um og er bæði fyrir börn og full-
orðna. Krem sem verja og næra
húðina eru Rósa-, Kamillu- og
Morgunfrúarkrem. Olíur Urta-
smiðjunnar eru ekki síður mörg-
um kunnar og vöðvaolían hefur
reynst svo vel við gigt og til að
draga úr bólgum að læknar eru
farnir að benda á hana. Urta-
smiðjan framleiðir olíu sem ekki
er komin á almennan markað en
hefur reynst einstaklega vel við
sveppasýkingum í leggöngum
kvenna. Olíuna er þó hægt að fá
hjá Urtasmiðjunni og Jónasi
Franklín, kvensjúkdómalækni á
Akureyri, sem hefur verið með ol-
íuna til reynslu í eitt ár og segir
að eftir einnar viku notkun votti
ekki fyrir sýkingu. Hann hefur
50
Texti: Steingeröur Steinarsdóttir