Vikan - 18.01.2000, Side 4
Knlesandi
Griðland
glœpamanna
TTolva Vikunnar fór ekki í grafgötur
1 / með skoðanir sínar fyrir árið 1999.
v Spá hennar reyndist mjög rétt og
meira að segja fór Jeltsín frá áður en árinu
lauk, sem enginn hefði þorað að trúa. Pað
sama virðist vera uppi á teningnum núna
og ýmislegt í 2000 spánni var þegar farið
að rœtast þegar hún birtist, en hún var
gerð um miðjan desemberfDœmi: Finnur
mun sleppa velfrá málunum; þ.e.a.s.
Fljótsdalsvirkjun. Mikil læti verða út af
ráðningu Seðlabanka-
stjóra. Náttúruhamfarir
erlendis.)
Völvan hafði áhyggjur
af aukningu glœpa og
fangelsismálum á árinu
2000. Flún spáði að
glœpum mundi fjölga
stórlega og hœttulegir
glœpamenn ganga lausir
og valda miklu tjóni.
Er það nú eitthvað
nýtt?!
Nei, því miður og það er
skelfilegt efþað á eftir að versna frá því
sem nú er. Dómskerfið og viðhorftil
glœpa og glœpamanna á Islandi er til há-
borinnar skammar og svartur blettur á
þjóðfélaginu. Aumingjadýrkun á Islandi á
sér sennilega enga hliðstœðu í hinum sið-
aða heimi og hún birtist í sinni verstu
mynd í linkind gagnvart þeim sem fremja
glœpi.
Ofbeldismenn sem ráðast á saklausa
borgara og slasa þá eru teknir til yfir-
heyrslu og þegar þeir eru búnir að játa er
þeim klappað á öxlina og þeim sagt að
gera þetta aldrei aftur. Síðan er þeim
sleppt lausum til að bíða dóms. Á meðan
þeir bíða halda þeir áfram að berja mann
og annan, rœna fleiri sjoppur, ógna fleiri
konum og safna á sig kœrum. Alltafkem-
ur ný og ný kœra sem bíða þarfeftir að
tekin verði fyrir og réttarhöldum erfrestað
meðan verið er að safna þeim saman.
Aftur og aftur heyrir maður talað um
„veslings ógœfufólkið" sem „verður fyrir
því" að fremja glœpi. Rétt eins og þetta sé
einhver óskiljanleg tilviljun eða slys sem
nánast kemur þessum „ veslingum" ekkert
við.
Égfyllist mikilli reiði þegar ég hlusta á
svona aumingjadýrkun. Sjálfá ég son sem
varð fyrir líkamsárás við vinnu, hann var
slasaður illa og bíllinn hans skemmdur.
Það er síður en svo að ég beri lengur per-
sónulegt hatur í brjósti til mannanna
þriggja sem réðust á hann þótt ég hefði
helst vilja berja þá sjálffyrst eftir þetta at-
vik. Þetta mál snýst ekki um einstaklinga,
það snýst um það hvort glœpamenn eigi
meiri rétt íþessu þjóðfélagi en saklaust
fólk. Meðferðin sem sonur minn fékk eftir
árásina var ekki beint til fyrirmyndar og
rannsóknarlögreglumaðurinn sem tók
skýrsluna um málið ráðlagði honum að
kœra ekki! - Og afhverju ekki?
- Jú, vegna þess að þessir menn væru
hœttulegir og þeir myndu hefna sín, þess
vegna œtti að sleppa því að kæra þá!
Þessum stórhœttulegu mönnum var svo
sleppt sama kvöld og þegar málið var
loksins tekið fyrir, mörgum mánuðum síð-
ar, höfðu þessir „indælu" félagar svo
sannarlega hefnt sín með hótunum og
skemmdarverkum og safnað á sig að með-
altali þrem árásum á mánuði hver!
Þeir hlutu að sjálfsögðu sinn vœga dóm
(skv. lögum) og þeim var stungið inn í
einhvern tíma. Syni mínum voru dœmdar
bœtui; sem hann fékk auðvitað aldrei, þar
sem þessir aumingjar eiga náttúrlega ekk-
ert nema sína svörtu samvisku.
Þetta er því miður ekkert einsdæmi. Ég
liefoft sagt þessa sögu og margar svipaðar
hafa mér verið sagðar. Og það eiga allir
aðstandendur fórnarlambanna sameigin-
legt að skilja ekki hvernig í ósköpunum
stendur á því að þessir glœpamenn eru
látnir ganga lausir, eingöngu til þess að
þeir geti haldið áfram að meiða, nauðga
og rœna, - að eyðileggja líffleiri saklausra
einstaklinga.
Auðvitað erfallegt að fyrirgefa eins og
Gunnar í Krossinum gerði og það geta
menn gert persónulega í hjarta sínu. Hið
opinbera hefur liins vegar ekki leyfi til að
fyrirgefa fyrir hönd fórnarlambanna. Yf-
irvöld hafa ekki leyfi til að láta ofbeldis-
menn ganga lausa, það er glæpur gegn
saklausu fólki sem á sér einskis ills von.
Fljótum ekki sofandi að feigðarósi. Við Is-
lendingar erum ekki lengur „stikkfrí" í
hinum vonda heimi. Hér íþessu litla þjóð-
félagi vaða uppi glœpamenn sem fá að
ganga lausir þrátt fyrir brot sín og ógna
öryggi okkar hinna.
Það er kominn tími til að yfirvöld axli
ábyrgð sína. Það er á ábyrgð hins íslenska
dómkerfis að halda þessufólki í einangr-
un þannig að það geti ekki valdið öðrum
skaða. Það á ekki að hleypa fólki út á göt-
ur strax að loknum yfirheyrslum eftir að
það hefur limlest og meitt aðra, rænt eig-
um þeirra eða selt þeim dóp.
Ég lýsifullri ábyrgð á hendur yfirvöldum
fyrir þann skaða sem síbrotamenn valda.
Hann skrifast á ábyrgð þeirra sem hleypa
afbrotamönnunum út á göturnar.
Jóhanna Harðardóttir
ritstjóri
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund
Hauksdóttir vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði
Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599
Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson. Sími: 515
5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir
Sími: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður
Steinarsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Anna B. Þorsteinsdóttir og
Ingunn B. Sigurjónsdóttir. Vikanaugl@frodi.is.
Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar
Steingrímsson. Verð í lausasölu 459 kr. Verð i
áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. pr
eintak. Ef greitt er með gíróseðli 389 kr pr.
eintak. Litgreining og myndvinnsla: Fróði. Unnið
í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin
varðandi efni og myndir.
Askriftarsími:
515 5555