Vikan - 18.01.2000, Blaðsíða 54
Hjónabandið einl
Ég uil meina að ástin sé
stundarhrifníng. Margir
tala um bessa einu sönnu
ást og nota hástemmd
lýsingarorð til að lýsa ást-
inni. Ég held að sönn ást
byggist ekki á líkamlegri
girnd heldur á vináttu og
virðingu. Það er að
minnsta kosti mín reynsla.
/
g hef þekkt eigin-
konu mína allt frá
því við vorum smá-
börn. Garðarnir
umhverfis húsin okkar lágu
saman og því man ég varla eft-
ir mér öðruvísi en að þekkja
hana Dísu mína. Við urðum
strax góðir félagar. Eg er einu
ári eldri en hún og því kom
það í minn hlut að kynna hana
fyrir skólanum og öllum
skólafélögunum þegar hún
hóf sitt grunnskólanám. Við
vorum alltaf samferða í skól-
ann og lékum okkur oft sam-
an. Þegar við urðum eldri fór-
um við að heyra athugasemdir
eins og „kærustupar" eða
„ertu skotinn í henni?'1. Við
létum það ekki trufla okkur
og héldum áfram að vera góð-
ir vinir. Þegar grunnskólanum
var að ljúka ákváðum við að
fara í sama framhaldsskóla til
að auðvelda okkur hlutina.
Að sjálfsögðu vorum við ekki
í sama bekk en við gátum
bæði haldið í vinahópana okk-
ar og verið áfram saman öll-
um stundum. Á þeim tíma
fannst mér Dísa vera mið-
punktur alheimsins. Ég hélt ég
54 Vikan
væri ástfanginn af henni en
vinir mínir horfðu á mig undr-
andi þegar ég sagði þeim frá
því. „Dísa er bara eins og syst-
ir þín." „Þú getur ekki verið
ástfanginn af henni." Þeir litu
á hana sem litlu systur mína
og reyndar öll fjölskyldan því
hvert sem ég kom einsamall
var ég alltaf spurður sömu
spurningarinnar: „Hvar er
Dísa?"
Sautián ára í sambúð
Þegar Dísa hóf menntaskóla-
nám rann upp fyrir mér að ég
átti hana ekki lengur einn. Ég
sá strákana þyrpast í kringum
hana og stara á hana aðdáun-
araugum. Þegar ég spurði
hana út í aðdáendurna hló
hún að mér og sagði að hún
ætti bara einn alvöru aðdá-
anda og það væri ég. Veturinn
leið og eins og venjuiega
eyddum við drjúgum tíma
saman. Ég fann samt að hún
var farin að vera meira með
öðrum strákum og þá meina
ég nú bara að skreppa í bíó
eða stunda eitthvað félagslíf.
Mér líkaði það illa því mér
leið eins og ég ætti hana einn.
Á einu menntaskólaballi
ákvað ég að telja í mig kjark
og segja henni hvaða hug ég
bæri til hennar. Dísa varð að
vonum hissa þegar ég kom
askvaðandi og játaði henni ást
mína. Það kom mér kannski
ekki mikið á óvart að hún
skyldi bera sama hug til mín.
Frá þeirri stundu vorum við
óaðskiljanleg. Fljótlega opin-
beruðum við trúlofun okkar
og vinir og kunningjar sam-
glöddust. Fréttin kom engum
á óvart. Æsingurinn í okkur
var mikill og við ákváðum að
leigja okkur litla íbúð í stað
þess að búa heima. Foreldrar
okkar beggja, sem voru miklir
vinir, reyndu að telja okkur
ofan af hugmyndinni. Þeir
bentu okkur á hversu dýrt það
væri að fara að búa og allur
okkar tími færi í að afla tekna.
Þeir óttuðust að það bitnaði á
náminu. Við misstum heyrn
og gerðum bara það sem okk-
ur langaði og bjuggum okkur
lítið ástarhreiður. Við hefðum
mátt segja okkur að glansinn
af þessu búsetubrölti tæki
enda og fljótlega blasti við
grámyglulegur hversdagsleiki.
Við náðum þó að haldast í
skóla og ljúka stúdentsprófi
bæði tvö, reyndar seinkaði
Dísu um eitt ár þar sem við
eignuðumst okkar fyrsta barn
innan við tvítugt. Á þessum
tíma fannst mér líf rnitt vera
fullkomlega eðlilegt, þetta
væri lífið í hnotskurn. Mér
fannst mjög vænt um hana
Dísu mína, hún var fyrirmynd-
arhúsmóðir, frábær móðir og
alltaf til staðar fyrir mig.
Börnunum fjölgaði og í dag
eigum við fjögur börn. Ég
ákvað að fresta háskólanámi
og fékk góða stöðu í sama
banka og pabbi. Ég er ennþá
að vinna á sama stað og hef
ekki ennþá hafið háskólanám-
ið sem mig langaði alltaf að
fara í. Mér finnst afar ólíklegt
að ég taki upp á því núna þeg-
ar fimmtugsafmælið nálgast
óðfluga.
í fyrstu bjuggum við í pínulít-
illi kjallaraholu en eftir að ég
fór að vinna vorum við dug-
legri að leggja fyrir. Við hljót-
um að teljast frekar „heppin"
því við ákváðum að hefja
byggingu á einbýlishúsinu
þegar verðbólgan var sem
mest. Við áttum auðvelt með
að koma þaki yfir fjölskylduna
og Dísa hefur alltaf verið
heimavinnandi.
Hvað er sönn ástP
Mér brá óneitanleg fyrir
nokkrum árum þegar elsti
sonur minn kom til mín alvar-
legur í bragði og spurði mig
hvernig ég vissi að ég elskaði
móður hans meira en allar
aðrar konur. I gegnum árin
hafði ég aldrei velt því fyrir
mér hvort ég elskaði hana í
raun og veru eða þætti bara
vænt um hana af því hún hafði
alltaf verið mér við hlið.
Strákurinn hafði svo mikið af
góðum rökum fyrir því að gift-
ast ekki að ég stóð á gati.
Ég neyddist til að vera hrein-
skilinn við sjálfan mig og satt
best að segja tók ég þessar
hugrenningar svo nærri mér
að ég fór til útlanda til að geta
verið einn með sjálfum mér.
Ég veit ekki hvernig ég á að
skilgreina ást mína til Dísu.
Ég fæ ekki í hnén eða öran
hjartslátt þegar ég sé Dísu
mína og hef aldrei gert. Mér
hefur alltaf liðið eins og ég
ætti hana aleinn. Ég hef
verndartilfinningu gagnvart
henni og hef ávallt viljað gæta
„Á eínu menntaskólaballi ákvað ég að telja í mig kjark
og segja henni hvaða hug ég bæri til hennar. Dísa
varð að vonum hissa begar ég kom askvaðandí og
játaði henni ást mína. Það kom mér kannski ekki mik-
ið á óvart að hún skyldi bera sama hug til mín."