Vikan - 18.04.2000, Blaðsíða 11
Texti: Guðríður Haraldsd
Eliý borðar súkhulaði
^ allan árslns hring
„Eg get rettlæ
súkkulaðiátið
KHý, ÚMimt yrigsta barni sínn, dóttur
Pinni Haildóru Vtru. sem er sex mánaóa
gómul. Málvt-rkió lyrir olan imt-óyurn
ar máfaói l.llý / l'vrra. I»aó heitir Síó-
asia kviildmáliíóin o}> er til sölu.
Elínborg Halldórsdóttir,
öðru nafní Ellý, fæddist á
annan í páskum áríð
1962. Það tók hana lang-
an tíma að skilja að
páskarnír koma ekki
alltaf á sama tíma ár
huert og sagði hún huerj-
um sem um bað spurði
að hún ætti afmæli á
páskunum. Hún áttí erfitt
með að skilja huað fólki
Pótti pað fyndíð og uarð
oft suolítið sár.
, -j Willi táj/íSÍSÍ
Páskaegg í morgunmat
„Ég er ekki eina páskabarnið
í fjölskyldunni því Þórarinn, son-
ur minn, fæddist á páskadag,"
segir hún. „Páskarnir eru það
seint á ferðinni í ár að við fáum
að eiga afmælin okkar út af fyrir
okkur núna.“
Ellý kaupir alltaf mikið af sæl-
gæti fyrir páskana. „Börnin mín
hafa meira gaman af að kaupa
páskaegg en að borða þau og í
fyrra endaði ég með því að
fleygja afganginum af páskaeggj-
unum þeirra sem voru orðin frek-
ar ólystug," segir hún. „Ég kaupi
alltaf risastórt páskaegg handa
sjálfri mér og borða hluta af því
í morgunverð á páskadag,“ segir
Ellý brosandi. Páskarnir eru sá
paskan
tími þar sem ég get réttlætt fyrir
sjálfri mér hvað ég borða mikið
sælgæti."
Ellý ætlar í kaffibúð fyrir páska
til að kaupa eitthvert eðalkaffi til
að drekka með súkkulaðinu. „Ég
er mjög hrifin af sterku espressó-
kaffi og ætla til hans Simma í Te
og kaffi að fá mér birgðir af góðu
kaffi fyrir hátíðarnar," segir hún
brosandi.
Glæsíboð hjá mömmu og
kalkúni sem beið til jóla
„Við förum alltaf í matarboð
til foreldra minna á annan í pásk-
um,“ segir Ellý, „alveg stórglæsi-
legt boð. Við erum fjögur systk-
inin og eigum við samtals 13
börn. Eg á fjögur og systkini mín
þrjú hvert og til gamans má geta
þess að í þessum hópi eru bara
tveir strákar en hitt allt stelpur.
Það er nóg að gera hjá mömmu í
þessum boðum, en hún er engum
lík,“ segir Ellý og brosir. Svo gef-
ur hún okkur öllum páskaegg
líka.“
í fyrra keypti Ellý kalkúna til
að hafa í páskamatinn. Hann var
þó ekki eldaður fyrr en um jól-
in. „Ég var mjög önnum kafin í
skólanum í fyrra eins og undan-
farin ár. Börnin mín fóru til
pabba síns þannig að ég ákvað
bara að geyma kalkúnann til
betri tíma. Ég lét vini og vanda-
menn bjóða mér í mat og borð-
aði svo súkkulaði þess á milli.“
Páskaskraut og sjón-
uarpsgláp
„Eina páskana málaði ég alla
blómapottana mína og fleira
smádót með gulum þekjulit. Það
kom mjög vel út og íbúðin varð
afar páskaleg,“ segir Ellý. „Ég
skreyti alltaf frekar mikið fyrir
páskana. Ég er með afskorin
blóm og páskagreinar um allt og
mikið af gulum kertum. Svo eru
börnin mín dugleg að búa til
páskaskraut í leikskólanum og
það er upp um alla veggi hjá mér
líka,“ segir hún.
Ellý eignaðist barn fyrir hálfu
ári og er því í fríi frá myndlistar-
skólanum. Hún segist ætla að
njóta þess að slaka á án þess að
vera með samviskubit yfir að
vera ekki að lesa listasögu eða
eitthvað slíkt. „Ég veit ekki á
þessari stundu hvort ég fer í sum-
arbústað yfir páskana eða verð
heima,“ segir hún. „Ég horfi oft
á sjónvarpið um páskana ef það
er boðið upp á eitthvað gott, eða
ég hef tekið mér spólu. Annars
ætla ég bara að eiga afslappaða
og góða páska í ár, hvort sem ég
fer í sumarbústað eða ekki, háma
í mig risapáskaegg, drekka gott
kaffi og borða góðan mat,“ segir
Ellý að lokum.
„Ej> ætla að eiga afslappaóa og góða páska í ár, háma í itiij'
risapáskaegg, drekka gott kafli og boróa góóan mat.“
Vikan 11