Vikan - 18.04.2000, Blaðsíða 30
Hún tryllist aldrei
Vilji kona heilla alla karlmenn
upp úr skónum er gullna reglan
sú að sleppa sér aldrei. Kyngja
reiðinni, sárindunum og pirr-
ingnum eins og bragðvondu
meðali. Karlmenn eiga ákaflega
bágt með að þola að lifa við þá
óbærilegu spennu að eiginkonur
þeirra eða vinkonur taki upp á
þeim ósköpum að tryllast af reiði
á degi hverjum. Það hlýtur bók-
staflega að vera hræðilegt að vita
aldrei hvort von er á skömmum
eða blíðuorðum þegar hringt er
og ekki hægt að ætlast til þess af
viðkvæmum karlkynsverum að
þeir þoli slíkt. Einn í könnunni
nefndi að hann ætti löng og vin-
samleg símtöl við fyrrverandi
eiginkonu sína með reglulegu
millibili og margar konur sem
hann hefði verið með hefðu átt
bágt með að þola þetta. Nýjasta
vinkonan hló hins vegar að þess-
um samræðum og það kunni
hann að meta. Annar 35 ára
kvartaði sáran undan því að hann
hefði farið út með mörgum sjálf-
stæðum framakonum og þær
væru bókstaflega tilfinningleg
hrúgöld. „Tár eru í lagi af og til,“
segir hann „en konur sem gráta
í tíma og ótíma yfir einhverju sem
ég hef gert til að særa þær eru nóg
til að ég slíti sambandinu." Varla
er hægt að ímynda sér að tillit-
samur og elskulegur maður á
borð við þennan geri nokkurn
tíma nokkuð sem hætta er á að
kalli fram tár. Konur eru yfirleitt
ófeimnari við að sýna tilfinning-
ar sínar en karlmenn en fæstar
konur gráta að tilefnislausu. I
guðs bænum tryllstu í hvert ein-
asta skipti sem hann á það skil-
ið.
Hvernig á að gera liann
ánægðan í rúminuP Haltu við
neistanum í sambandinu.
Gerðu hann óðan. Þessar fyr-
irsagnir eru algengar í
kvennablöðum og þær selja
að bví er virðist grimmt.
Flestar konur renna í það
minnsta augum yfir þessar
greinar þótl þær kaupi blaðið
af allt öðrum ástæðum. Fyrir
nokkru rákumst við á grein í
bandaríska Cosmopolitan
sem hét: Hvernig á að vera
stúlkan sem allir karlmenn
viljaP Sjö einföld ráð voru
gefin um hvernig konur gætu
ræktað með sér eðliskostina
sem allir karlmenn sæktust
eftir hjá vinkonum sínum. í
greininni var fullyrt að síma-
könnun á vegum blaðsins
hafi komið í Ijós að óvenju-
margir karlmenn hafi nefnt
einmitt og akkúrat þetta. Og
hvernig á kona svo að breyt-
ast úr venjulegri öskubusku í
draumaprinsessu?
Hún getur heillað alla
Fyrsta reglan er sú að vera
þannig að þú bókstaflega lýsir
upp herbergið. Þú mátt ekki
slaka á og leggja sjarmann á hill-
una um leið og þið eru orðin tvö
ein heldur er til þess ætlast að þér
falli áfram gullkorn af vörum og
farðinn haggist ekki. Vitnað er í
sálfræðingin Kathleen Mojas
~ sem bendir á að karlmenn vilji
gj arnan að flestir kunningj a hans
» öfundi hann af konunni hans og
ro að hún sé honum til sóma hvert
e
- sem hann fer. Konan þarf sem
" sagt að heilla viðskiptafélagana,
töfra fjölskylduna upp úr skón-
^ um og gera vinina græna af öf-
S und. Alls ekki til mikils ætlast.
™ Eina sem kona þarf að gera er
'Z að vera gáfuð, orðheppin, lífleg,
œ gædd þeim eiginleika að aðrir
slaki auðveldlega á í návist henn-
x ar og útlitið flott. En hvernig
“ mann á þetta glæsikvendi að hafa
á arminum? Það er nefnilega
ekkert minnst á það. Ef síma-
könnunin hefur verið gerð eftir
slembiúrtaki eru það jú allir
venjulegu Jónarnir og Siggarnir
í Bandaríkjunum sem mæta jafn-
vel í samkvæmið með sorgar-
rendur undir nöglum eftir að
hafa gert við bílinn úti í skúr eða
hafa aldrei náð lengra í félagsleg-
um þroska en svo að þeir sitja
þumbaralegir úti í horni ef um-
ræðan snýst um annað en fót-
bolta og neðanbeltisbrandara.
Ekki ónýtt fyrir gáfukonuna.
Hún gerir kynlíf að
ævintýri
„Fréttatilkynning! Karlmönn-
um þykir kynlíf gott. Allt í lagi þú
vissir það. Þú hélst að svo lengi
sem þú værir viljug væri hann
ánægður, ekki satt? En það þarf
alls ekki að vera svo, samkvæmt
körlunum sem við töluðum við
(og þeir höfðu sérlega ákveðnar
skoðanir á þessu umræðuefni):
„Ekkert heldur áhuga mínum
jafnvel við og og kona sem kann
vel við fjölbreytni í kynlífi og
þykir gaman að reyna eitthvað
nýtt.“ (Bein þýðing úr Cosmo-
politan). Þegar þessi kostur hinn-
ar fullkomnu konu er ræddur er
vitnað í annan sálfræðing, Carole
Altman, sem segir að karlmönn-
um hætti til að leiðast fljótt. Það
er skylda kvennanna að halda
þeim við efnið líkt og litlu börn-
unum í leikskólanum. Finna
handa þeim nýja leiki, aðrar stell-
ingar og skemmtileg leikföng.
Hugmyndaflug þeirra þarf ekki
að virkja til að gera hana ánægða.
Þeir mega blessaðir vera bráð-
snauðir af allri þekkingu á kven-
líkamanum og jafnvanafastir og
máninn sem skríður alltaf sama
hringinn um jörðina. Það er
kvenmannsverk að halda við
gleðinni í kynlífinu svo það er þér
að kenna ef hann fer að staðna.
Okkar ráð hér á Vikunni er hins
vegar: Gefðu í samræmi við það
sem þú þiggur. Hafi hann ekki
áhuga á að vinna í sambandinu er
hann ekki áhugaverður.
Hún er stundum eins og
ein af strákunum
Cosmopolitan segir okkur að
óhætt sé að láta af kvenlegum
klækjum sínum af og til. Það geti
jafnvel skilað sér í því að hann
verði bara enn ánægðari. Einn
mannanna í símakönnunni sagði
meira að segja: „Mér þykir mjög
ánægjulegt þegar konan mín get-
ur bara verið hún sjálf í kringum
vini mína.“ Enn er leitað til sál-
fræðings sem segir okkur að kon-
ur sem af og til láti af þörf sinni
fyrir að vera kvenlegar séu eðli-
legar og virki fullar sjálfstrausts.
Er það sem sagt ekki kvenlegt
að hafa sjálfstraust. Ef eðlilegt
eða náttúrulegt er ókvenlegt er
tilgerðin ein þá kvenleg? Nei,
þetta er of stór þversögn fyrir
meðalmanninn að skilja. Hvern-
ig skyldi karlmönnum ganga að
láta af yfirþyrmandi þörf sinni
fyrir að virka karlmannlegir í
augum kvenna?
Hún er hreykin at þuí sem
hún hefur
Cosmopolitan segir okkur að
þrátt fyrir ímyndarheim auglýs-
inganna þurfi kona alls ekki að
líta út eins og Heidi Trump eða
Nicole Kidman til að vera aðlað-
andi. Karlmennirnir í könnun-
inni sögðu allir sem einn að ekk-
ert væri kynþokkafyllra en kona
sem elskaði líkama sinn og tilbú-
in að sýna kosti hans. Einn varð
svo þreyttur á vinkonu sinni sem
hafði „kompleksa" út af of litlum
brjóstum sínum að hann gafst
upp á henni. Hugsið ykkur, hún
fékkst ekki einu sinni til að sýna
brjóstin á ströndinni. Sennilega
hefur farið fé betra en sá elsk-
hugi. Konur eru ekki skyldugar
til að sýna líkama sfna frekar en
þær vilja. Margar eru mjög
ánægðar með útlit sitt og elska
líkama sína með kostum þeirra
og göllum en kjósa samt að hylja
sig fötum á almannafæri. Feimni,
hlédrægni og mismunandi við-
horf til nektar stjórna oft meiru
hér um en minnimáttarkennd.
Sýndu það sem þér sýnist og ekki
fersentimetra umfram það.
Hún gefur honum frelsi til
að stunda áhugamál sín
Samkvæmt þessu vilja fæstir
karlmenn binda sig 24 tíma á
daga sjö daga vikunnar jafnvel
þótt þeir séu mjög hrifnir af kon-
unni. Þeir þurfa frelsi til að
stunda áhugamálin og hitta vin-
ina. Konan má því ekki vera of
kröfuhörð og hún verður að hafa
30
Vikan