Vikan


Vikan - 23.05.2000, Page 53

Vikan - 23.05.2000, Page 53
Texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir Fypstaba Margir telja að mesta hamingja sem heim getur hlotn- ast í lífinu sé að eignast barn bví börn séu afsprengi ástar og kærleika. En ástin krefst tíma, orku og einka- lífs. Nýbakaðir foreldrar hafa lítið af bessu aflögu. Þvi er mikilvægt fyrir verðandi foreldra að búa sig vel undir aukið áiag en jafnframt gleyma ekki beim gleðistund- um sem fylgja fæðingu barns. Aðlögun Eflaust eru foreldrarnir ekki alveg undir það búnir hversu óskaplega tímafrekt og krefjandi foreldrahlut- verkið er. Áður en barnið kemur til sðgunnar er eðlilegt að foreldrarnir hafi aðallega verið uppteknir af sér sjálfum og sínum þörfum. En þegar barnið er komið fer tilveran fyrst og fremst að snúast um það og þarfir þess. Hinir nýbökuðu foreldrar ættu þó ekki að örvænta þótt fyrri venjur og lífshættir þeirra falli ekki alveg að þörf- um og kröfum barnsins. Hjá flestum foreidrum er þörf á aðlögun og hægfara breyting- um að hinu nýja fjölskyldu- mynstri. Faðirinn Verðandi faðir hefur að sjálfsögðu enga lík- amlega tilfinningu fyr- ir meðgöngunni líkt og móðirin en andlega þarf hann eins og hún að laga sig að hinu nýja fjölskyldu- mynstri. Hann hefur ekki fundið á sínum líkama hvernig barn- ið stækkar smátt og smátt og breytist. Þess vegna getur hann átt erfitt með að setja sig í spor hinnar verðandi móður og skilja full- Áríðandi er að hinir ný- bökuðu for- eldrar gleymi því ekki að þeir eru ekki bara foreldr- ar heldur líka elskend- ur og par. komlega hegðun hennar og tilfinningar. Þolinmæði og skilningur eru því lykilatriði hjá hinum verðandi föður. Alls kyns pör Móðir, faðir og barn mynda hinn sígilda þrfhyrning. Innan þessa þríhyrnings er líka hægt að búa til pör, s.s. móður og barn, föður og barn, móður og föður eða einfaldlega karl- mann og konu. Öli þessi pör geta rúmað samband með hlýjum tilfinningum, jafnvægi og gleði. Tíminn í kringum fæðingu fyrsta barnsins get- ur haft í för með sér vaxandi sambúðarerfiðleika. Þá er áríðandi að hinir nýbökuðu foreldrar gleymi því ekki að þeir eru ekki bara foreldrar heldur líka elskendur og par. Takturinn fundinn Þegar foreldrarnir koma heim með barn- ið þurfa þeir að stilla sig saman, kynnast barninu og eiga nota- legar stundir saman. Foreldrarnir hafa væntanlega horft fram til þessa dags með eftirvæntingu og gleði í huga. En kannski er tilveran ekki alveg eins og þeir bjuggust við þegar heim er komið. Miklar og heitar til- Mikdvægt er fyrir verð- andi foreldra að búa sig vel undir aukið álag en jafnfranit gleyma ekki þeim gleðistiinduin seni fylgja nieðgiingiinni og fæðingunni. finningar í garð barnsins koma ekki alltaf af sjálfu sér. Þær koma með tímanum. Að hafa ofan af fyrir barn- inu er ekki eingöngu í verka- hring móðurinnar. Faðirinn mun uppgötva að því meira sem hann sinnir barninu og tekur ábyrgð á því, þeim mun sterkari verða föðurlegar til- finningar hans og samkennd- in með barninu. Þess vegna er gott fyrir foreldrana að finna aðstæður þar sem hvort þeirra um sig getur verið eitt með barninu. Hlátur og grátur Lítil börn krefjast athygli og umhyggju. Þau geta grát- ið, vakað eða fengið maga- verk hvenær sólarhrings sem er. Hugsanlega verða foreldr- arnir því að færa til matmáls- tíma og þess háttar og hætta við allar fyrri áætlanir sínar. Þegar foreldrarnir geta loks sest niður getur verið erfitt að slaka á og tala saman. Stund- um er eins og öll tilveran sé úr lagi gengin. Þá er mikilvægt að geta stundum hlegið að ástandinu og séð spaugilegu hliðarnar á tilverunni því þrátt fyrir allt er umönnun ungbarns yndis- legt ævintýri sem getur bæði verið gefandi og þroskandi. (Hcimildir: Best, Meðganga, fæð- ing, ungbarnið, o.fl.) Umönnun ungbarns krefst mikils tínia og vinnu en er jafn- framt mjög gef- andi.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.