Vikan - 20.06.2000, Blaðsíða 4
Kæri lesand
Kristilegu
kœrleiksblómin...
Fyrir mörgum öldum tók
kirkjan sig til og bann-
aði árlega skemmtun
sem haldin var gleðinni og
kœrleikanum til heiðurs vestur
í Dölum. Petta var Jörvagleð-
in.
Þar ríkti kœrleikurinn sannar-
og sannanlega því aðalástœðan
fyrir því að þessi gleði var lögð
niður var hin feikilega spreng-
ing í barneignum sem varð í
byggðarlaginu í kjölfar hennar
og kirkjunni og yfirvaldinu
þótti ósœmileg. Svona var þetta
í þá daga.
En nú œtlar kirkjan sjálf
auðvitað styrkt afríkinu, að
fara að halda hátíð í tilefni af
1000 ára kristnihaldi á íslandi,
sem mérfinnst reyndar hœpið
eftekið er með í reikninginn
hvernig kristnitöku hér og
kristnihaldi var háttað framan
af. En hátíð skal það vera og í
hana hefur verið spreðað fúlg-
um afalmannafé (sem lœtur
nœrri að vera 16000 krónur á
hverja meðalfjölskyldu í land-
inu), þar af90 milljónum í
gatnagerð á þingvöllum á með-
an gatnabætur, sem löngu eru
orðnar tímabœrar og gœtu
bjargað mannslífum, eru látnar
sitja á hakanum.
En verst afölht er þó að
Kristnitökuhátíðin hefur ein-
hvern veginn ekki borið með
sér anda kœrleikans. Allt frá
því að fyrstu nefitdir tóku til
starfa hefur umrœðan ein-
kennst af árekstrum og illdeil-
um, ásamt brigslyrðum um
ójafnrœði og mismunun. Það
hefur fokið í marga undir þess-
ari umfjöllun og ég segi fyrir
mig að mérfannst illa að Asa-
trúarfélaginu vegið meðan
kamraumrœðan stóð sem hœst.
Ég veit ekki til að nokkurt
samfélag fari eins illa með og
beri eins litla virðingu fyrir
þjóðartrúarbrögðum sínum og
Islendingar. Það er til hábor-
innar skammar því hvað sem
mönnum finnst um þessi trúar-
brögð þá geyma þau í sér sögu
og menningu þjóðarinnar.
Nú eru aðeins fáir dagar til
stefnu og enn er ekki vitað
hvernig til tekst með hátíðina
sjálfa. Sjálfri finnst mérfátt
leiðinlegra en hátíðir þar sem
mannfjöldi vafrarfram og aft-
ur um afmarkað svœði eftir
fyrirfram ákveðnum göngu-
leiðum ogfylgist af takmörk-
uðum áhuga með skipulagðri
hátíðardagskrá. En, sem betur
fer, hafa margir gaman af
þessu og vonandi mœta nógu
margir á Þingvöll til að hœgt sé
að afsaka fjármunina sem farið
hafa í undirbúninginn. Ég
vona líka að einhver skemmti
sér velfyrir þann hluta afþessu
fé sem ég og mín fjölskylda
máttum punga út með íþessa
vitleysu. Mér fyndist verra ef
það fœri í súginn því ég hefði
frekar viljað að þeir peningar
fœru í að tvöfalda hinn stór-
hœttulega Vesturlandsveg í stað
þess að tœta í sundur þœr fá-
tœklegu framkvœmdir sem þó
var búið að gera þar.
En nú er Vikan komin og að
vanda er liún fidl afgóðu og
blönduðu efni svo allir œttu að
getafundið eitthvað við sitt
hœfi. Byrjaðu bara að fletta
og...
Njóttu Vikunnar!
Jóhanna Harðardóttir, ritstjóri
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir,
vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500
fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson, sími: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, sími: 515 5512.
Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily
Magnúsdóttir,
Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður
Sigurjónsdóttir
vikanaugl@frodi.is.
Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrimsson.
Verð i lausasölu 459 kr. Verö i áskrift ef greitt er með greiðslukorti
344 kr. á eintak.
Ef greitt er með giróseðli 390 kr. á eintak. Litgreining og
myndvinnsla: Fróði hf. Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll
réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími:
515 5555